blaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2006
blaðið
tonlist@bladid.net
„Sítt hár er óafsakanlegur
glæpur sem refsa ætti
fyrir með dauða.“
Morrissey
Styttist í lceland Airwaves
Apparat Organ Kvartet
í Hafnarhúsinu Listasafn
Reykjavikur verður nýtt enn
frekaríár.
Röðunum útrýmt
Miðasala á Iceland Airwa-
ves-hátíðina hefst í dag í
verslunum Skífunnar og
BT. Um 180 listamenn
og hljómsveitir koma fram á hátíð-
inni sem sjaldan eða aldrei hefur litið
eins vel út og í ár. Heimsþekktar sveit-
ir á borð við Kaiser Chiefs, The Go!
Team, We Are Scientists og Wolf Para-
de koma fram á hátíðinni ásamt fjöl-
mörgum íslenskum sveitum á borð
við Mínus, Dr. Spock og JeffWho?
Miðasala hófst erlendis í sumar
og hefur að sögn Eldars Ástþórsson-
ar, kynningarfulltrúa hátíðarinnar,
gengið mjög vel. „Miðasala hefur
gengið betur en í fyrra. Af fyrri
reynslu að dæma virðast flestir mið-
ar vera að seljast í Bandaríkjunum og
í Bretlandi en miðar seljast nú í aukn-
um mæli í Skandinavíu, Þýskalandi
og Frakklandi."
Töluverð óánægja var meðal tón-
leikagesta í fyrra vegna raða sem
mynduðust fyrir utan helstu tón-
leika hátíðarinnar. Eldar segir skipu-
leggjendur hafa gert ráðstafanir og
að reynt verði að útrýma röðunum
í ár. „Við erum búnir að grípa til að-
gerða,“ segir Eldar. „Miðum hefur
verið fækkað miðað við í fyrra og ein-
um tónleikastað, Iðnó, verið bætt við.“
Eldar bætir við að nokkur stærstu
nöfn hátíðarinnar muni koma fram á
sama tíma á mismunandi stöðum og
að dagskráin í Listasafni Reykjavíkur,
sem er stærsti tónleikastaður hátíðar-
innar, verði efld. „Það má samt bæta
við að auðvitað getur komið upp sú
staða að raðir myndist.“
Dagskrá hátíðarinnar verður birt á
heimasíðu Icelandair og á síðu hátíð-
arinnar, www.icelandairwaves.com,
á næstunni. Miðaverð á hátíðina er
6.900 krónur auk miðagjalds og ald-
urstakmark er 20 ár.
atli@bladid.net
Þreytandi hressleiki
Ef einhver segði mér að hljóm-
sveitirnár Yeah Yeah Yeah’s og
Arcade Fire hefðu eignast barn
á laun og enginn vissi hvar það
héldi sig myndi ég segja barnið
halda sig í Svíþjóð. Þá myndi ég
bæta við að barnið braggaðist vel
og kallaði sig Love is All.
Nine Times That Same Song
er fjandi fín plata. Ég hafði ekki
kynnt mér plötuna fyrr en ég sá
sveitina á lista yfir hljómsveitir
lceland Airwaves-hátíðarinnar og
var hún það góð að ég sá eftir því
að hafa beðið. Söngkona sveitar-
innar, Josephine Olauson, hljómar
virkilega skemmtilega þó maður
þreytist smá á hressleikanum.
Trommarinn á einnig góða takta
og „Arcade Fire-lega“ viðlagið í
laginu Ageing Had Never Been
His Friend kemur skemmtilega á
óvart.
Rússíbanareið
Wolf Parade er hluti af tónlistar-
bylgju sem kennd er við borgina
Montreal í Kanada. Aðrar hljóm-
sveitir sem tilheyra bylgjunni
eru hin frábæra Arcade Fire og
Islands, sem ásamt Wolf Parade
kemur fram á lceland Airwaves-há-
tíðinni í ár.
Apologies to Queen Mary var
ein af allra bestu plötum síðasta
árs. Það var ekki að ástæðulausu
þar sem platan er í senn frumleg,
hrá og snjöll. Melódíurnar eru
flottar og tilfinningaríkar en detta
sem betur fer aldrei í væmni og
viðhalda alltaf vissu „kúli“. Þá er
söngurinn virkilega góður, text-
arnir skemmtilegir og allur hljómur,
sérstaklega á trommunum, framúr-
skarandi skemmtilegur.
Wolf Parade er hljómsveit sem
hljómar frábærlega á plasti en
Wolf Parade
Apologies to Queen Mary
Á Airwaves: Fös. á Gauknum kl. 00.00
IA ; 7 * í 1
Éi!\ 11
1 í ,r. •
Ekkert sem
★★★★★ vert er að nefna.
gefur enn betri fyrirheit um að
hljóma æðislega á tónleikum. Ef
tónleikarnir með sveitinni eru sú
rússíbanareið sem þessi plata
býður upp á mun ég sjást stíga
villtan dans uppi við sviðið í
október.
Love is All
Nine Times That Same Song
Á Airwaves: Fim. á Masa kl. 00.00
Á heildina litið er platan mjög fín.
Hressleikinn á það til að draga
hana svolítið niður og áhrifavald-
arnir eru stundum of augljósir en
útkoman er engu að síður flott
indípopp sem kemur manni í gott
skap.
viðtalJ
HUNDELTIR AF
0
GRUPPUM
NÝTT BLAD KOMID ÚT!
'edru I
_1 ÁSTARVIMU!
Helstu jaðartónleikastaðir borg-
arinnar, Grand rokk
og Gaukur á stöng,
hafa verið lokaðir
í sumar, hljóm-
sveitum og tón-
leikagestum til mik-
illar mæðu. Hallærið
hefur skapað grundvöll
fyrir tónleikahald á Café Amster-
dam, en áður fyrr tróðu aðeins
svokallaðar pöbbahljómsveitir
upp á staðnum. Nú virðist vera
að rofa til hjá rokkurum því sögur
af nýjum tónleikastað í Reykjavík
verða háværari með hverjum deg-
inum. Staðurinn ku vera svipaður
af stærð og gerð og Grand rokk,
sem úthýsti rokkinu nýlega og
varð sportbar. Ekki er vitað hver
stendur að baki staðnum og mikil
leynd hvílir yfir staðsetningu
hans.
Lítið hefur heyrst frá hljómsveit-
inni Jan Mayen í sumar en
sveitin ku stefna
á útgáfu þröng-
skífu á næstunni
Fyrsta útgáfa
sveitarinnar var
einmitt sex laga
þröngskífa sem
vakti mikla athygli á sínum tíma
en sú nýja mun væntanlega ekki
vekja minni athygli.
Fjölmiðlamaðurinn Kiddi Bigfoot
var nýverið ráðinn yfirmaður út-
varpsstöðvanna XFM og KissFM.
XFM hefur frá stofnun verið í
forystu meðal markhóps stöðv-
arinnar en KissFM
hefur ávallt orðið
undir í baráttunni
við FM957, sem
hingað til hefur
verið talið höfuð-
vígi hnakkanna.
Kunnugir segja Kidda
ekki þurfa að taka til hendinni á
XFM en margt þurfi að bæta á.
KissFM og ýmissa breytinga sé
að vænta.
Rokkararnir í Brain Police gáfu
í vikunni út plötuna Beyond the
Wasteland, sem er þeirra þriðja
breiðskífa. Ýmsum sögum fer af
gæðum plötunnar
og eru þær flestar
afar jákvæðar.
Snorri Sturlu-
son, dagskrár-
stjóri XFM, átti
vart til orð til að
lýsa snilldinni þegar
Jónbi, trommari Brain Police,
mætti í viðtal til hans á dögunum.
Talaði hann um gríðarlegar fram-
farir og að sveitin sé loksins farin
að hljóma eins og hún á að gera.
Nick Cave í
Laugardalshöll
Tónlistarmaðurinn, laga- og
rithöfundurinn Nick Cave heldur
tónleika í Laugardalshöll á morgun,
laugardag. Uppselt er á tónleikana
sem hefjast klukkan 20, en húsið
verður opnað klukkutíma áður.
Hr. örlygur, sem stendur að tón-
leikunum, hvetur gesti til að mæta
tímanlega því hér er um að ræða
sitjandi tónleika og það tekur sinn
tíma að vísa fólki til sætis.
Nick Cave er maðal virtustu
tónlistarmanna samtímans og á
að baki tímamótaverk bæði einn
síns liðs og með hljómsveitunum
Birthday Party og The Bad Seeds.
Hann hélt tvenna eftirminnilega
tónleika hér á landi fyrir fjórum ár-
um og var viðstaddur frumsýningu
uppfærslu Vesturports á Woyzeck
hérlendis í fyrra, en hann samdi
tónlistina við verkið.