blaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 35
blaöið
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2006 35
Hvar er hann fæddur?
Hver var afi hans?
Hvaö á hann mörg börn?
Hver leikstýrði honum i Gengi New York-borgar?
asasjoos uujcjai 't?
QAi e
uopiea |aei|on/\| ji.s ‘Z
uopuoi rii
Stöð 2 kl. 22.05
Ryan Phillippe
innilokaður
Myndin Innilokun er dulmagn-
aður spennutryllir með Ryan
Phillippe, hinum sama og leikur
aðalhlutverkið í mynd Clints
Eastwoods, Flags of Our Fat-
hers, sem tekin var hér á landi.
(slandsvinurinn Phillippe leikur
ungan mann sem vaknar upp
á geðsjúkrahúsi, án þess að
muna hvernig hann lenti þar og
minnislaus um síðustu tvö árin.
En þegar atburðir úr fortíðinni
taka að læðast aftan að honum
fer ýmislegt miður skemmti-
legt að koma í Ijós. Myndin er
bönnuð börnum
Stöð 2 bíó kl. 14.00
Eltingaleikur
Kalla kanínu
Kalli kanína og félagar snúa
aftur á Stöð 2 bíó. Myndin er
bráðfjörug og skemmtileg fyrir
unnendur góðra teiknimynda
á öllum aldri. Hún er blanda af
teiknimynd og leikinni mynd
og skartar stjörnum á borð
við Kalla kanínu, Scooby Doo,
Shaggy, Brendan Fraser, Jennu
Elfman og Steve Martin. ( henni
er einn æsilegur eltingaleikur
frá upphafi til enda. Þegar Daffi
önd fær sig loksins fullsaddan
á allri athyglinni sem Kalli kan-
ína hefur fengið ákveður hann
að segja skilið við Hollywood
og skellir sér í leiðangur með
ævintýramanni sem er að leita
að föður sínum og bláum dýr-
mætum demanti.
Sjónvarpið kl. 20.20
Tekist á við
ástvinamissi
Kvikmynd Sjónvarpsins í kvöld
fallar um Breta sem missir kæst-
ustu sína í slysi stuttu eftir að
þau rifest. Hann fær tækifæri
til að lifa þann dag upp á nýtt
og vonast til að geta breytt
atburðarásinni sem varð til
þess að hún lést. Leikstjóri er
Gil Junger og meðal leikenda
eru Jennifer Love Hewitt, Paul
Nicholls og Tom Wilkinson.
Myndin er bandarísk/bresk frá
árinu 2004.
Sean Penn var í viðtali við Larry King á CNN
Tjáði sig um bróður sinn Chris í sjónvarpi
Bandaríski leikarinn Sean Penn
segir ofþyngdina hafa verið valdið
því að bróðir hans Chris lést. Sean
talaði opinberlega um andlát bróð-
ur síns í fyrsta sinn á fimmtudaginn
í viðtali við Larry King á CNN.
„Hann ofbauð sér á ótrúlegan hátt
í gegnum tíðina en það lagði hann
ekki á endanum," sagði Penn sem
er orðinn 46 ára. „Hann lést af nátt-
úrlegum orsökum, en þær ávann
hann sér með óæskilegum lifnaði,
þá sérstaklega offitu.”
Sagt er að Chris Penn hafi vegið
tæplega 150 kíló þegar hann
fannst látinn í íbúð sinni í Santa
Monica þann 24. janúar. Sam-
kvæmt skýrslum lést hinn fertugi
Chris af hjartabilun; hjartað hafði
stækkað vegna töku á verkjalyfjum
eins og valíum og morfíni og eit-
urlyfjum eins og marijúana ásamt
fleiri lyfjum, svo sem kódeini.
Penn sagði þá bræður hafa verið
mjög nána. „Ég missti hluta af
sjálfum mér. Ég er einn þriðji af
því sem áður var. Stundum er ég
hægri hliðin, vinstri armurinn eða
búkurinn. En það er lífiö og allir
koma til með að upplifa þetta.”
BE EO SVEFNSÓFI
SUÐURLANDSBRAUT 22 • SÍMI 553 7100* www.linan.is
Komdu í verslun
okkar að
Suðurlandsbraut
því sjón er sögu
ríkari.
Fjölbreytt úrval áklæða með
óhreinindavörn sem hægt er
að taka af og þvo.
LIIMAISI