blaðið - 30.11.2006, Blaðsíða 7
SAGAJOUVNNA
í SÖGU JÓLANNA er fjallað á ítarlegan hátl um jólahátíðina fyrr og síðar á fslandi og
víðar um heim. Rakin er saga jólanna frá upphafi þegar fátækir sem ríkir héldu Ijósahátíð
f skammdeginu. Hér er einstakur fróðleikur settur fram á litríkan hátt.
Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur, lýsir því hvernig kirkjan breytti eldra jólahaldi og
mótaði nýtt helgihald, höíðingjar svölluðu og almúginn dansaði en allir reyndu að tjalda
því besta sem til var á hverju heimili. Gerð er grein fyrir hugmyndum fólks um jólavættir í
myrkrinu. Sérstaklega er hugað að þróun hátíðarinnar síðustu hundrað ár sem hefur
skipað henni svo sterkan sess í hugum okkar nútfmafólks.
Hvernig væri líf okkar án jólanna? Hvers vegna byrjuðu þau yfirleitt? Hvenær uppgötvuðu
íslendingar jólasveina og hvaðan komu þeir? Af hverju er alþjóðlegi jólasveinninn
klæddur rauðu? Hver er Faldafeykir? Hvað voru barnafælur? Hvar er elsta jólatréð á
íslandi? Hverjir sömdu jólasálmana? Hvernig skemmti fólk sér á jólunum? Hvaða mat
borðaði fólk? Hver gerði fyrsta jólakortið í heiminum? Hvaða lög eru jólalög? Allt þetta og
ótalmargt annað finnur þú í þessari bók.
BÓKIN SKIPTIST í 17 KAFLA:
I '1ÁTÍOIK í SKAMMDLGINU JÓIAGJAFIK
KRISTNUN JÓIANNA JÓLASKEMMTANIR
JÓLASÁI MAR JÓLASÖNGVAR
JÓl AFASTA JÓIASVALL
1II I.GIDAGAR.Á ADVFNTU JÓLAGLLDI
JÓIAVÆTTIR JÖLAKVLDJUR
jÓLASKRI VTINGAK ÁKAMÖT
JÓLATRÉ JÓL UMVÍDAVERÖLD
JÓLAMATUR
Bókina prýðir mikill fjöldi teikninga og Ijósmynda sem setja sterkan svip á efnið. SAGA
JÓLANNA er sannkölluð fróðleiksnáma fyrir alla íslendinga. Höfundur bókarinnar, Árni
Björnsson, er löngu kunnur fyrir störf sfn og bækur enda er hann virtur fræðimaður á sínu
sviði.
SAGA JÓLANNA er fyrir unga sem aldna, alla sem vilja vita
eitthvað meira um jólin og njóta þeirra í leiðinni.
Tindur
Bókaútgáfa
Símar: 660 4753 • 534 6250
www.tindur.is •
tindur@internet.is • tindur@tindur.is