blaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 26
*■
blaóið
Tilvalin jólagjöf
Forsala á þrjá stærstu viðburði
Listahátíðar Reykjavíkur 2007
hófst í gær en þar er um að ræða
sýningar San Francisco-balletts-
ins undir stjórn Helga Tómassonar
í Borgarleikhúsinu sem verða sjö
talsins og hefjast 16. maí og tónleik-
ar Dmitri Hvorostovsky, 20. maí,
og Bryn Terfel, 21. maí, sem hvor-
irtveggja verða i Háskólabíói. Er
þetta í fyrsta sinn sem Listahátíð
hefur miðasölu á völdum viðburð-
um í desember. „Ástæðan fyrir því
að við erum svona snemma á ferð-
inni í ár er sú að við erum að koma
til móts við óskir fjölmargra list-
unnenda sem vilja fá tækifæri til
þess að gefa miða á listahátíð í gjaf-
ir - ekki síst jólagjafir. Við finnum
líka fyrir mikilli eftirvæntingu í
loftinu fyrir þessum stóru viðburð-
um enda er þetta lítill heimur og
það spyrst fljótt út hvaða viðburð-
ir eru á dagskrá," segir Guðrún
Kristjánsdóttir, kynningarstjóri
Listahátíðar. Óþarfi er að kynna
ballettflokkinn fræga frá
San Francisco fyrir fslend-
ingum en mörgum er enn í ,
fersku minni þegar flokkur-
inn kom hingað á Listahátíð
árið 2000. Dmitri Hvorostov-
sky og Bryn Terfel eru tveir
af fremstu barítónsöngvur-
umheimsoghafaþeirbáð-
ir hlotið fádæma lof jl^
fyrir túlkun sína á
helstu hlut- *-0W'
v e r k u m ,i'A ,
óperubókmenntanna. „Okkur
þykir sérstaklega skemmtilegt
að geta boðið
^ -e - upp á tónleika
með þessum
t veim-
ur stór-
•**"■*" söngv-
urum dag eftir
dag,“ segir Guðrún. Miðasala fer
fram á vef hátíðarinnar www.
listahatid.is og í síma 552-8588 frá
klukkan 10-16 virka daga.
34 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006
Næstkomandi fimmtudagskvöld, 7. desember klukkan 20, flytja þeir Sigurður
Flosason saxófónleikari og Gunnar Gunnarsson orgelleikari spuna um þekkt
jólalög í Hallgrímskirkju. Dagskráin er á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju.
Ljósmyndarinn David McMillan
frá Winnipeg heldur fyrirlestur
í hönnunar- og arkitektúrdeild
Listaháskólans í dag sem ber yfir-
skriftina Tjernobyl í Ijósmyndum.
Árið 1986 leysti Tjernobyl-kjarn-
orkuslysið úr læðingi tvöhundruð-
falda geislun á við sprengjurnar
sem varpað var á Hiroshima og
Nagasaki. Um 135.000 þúsund
manns urðu að yfirgefa svæðið
í kjölfarið og yfir 11.000 tilfelli af
krabbameini voru greind. David
McMillan hefur heimsótt Tjerno-
byl nokkrum sinnum síðan árið
1994 og Ijósmyndir hans frá
svæðinu eru merkilegar heimildir
um hnignun staðarins. David er
vel þekktur Ijósmyndari og hefur
haldið fjölmargar einkasýningar
bæði í Kanada og á alþjóðavett-
vangi. Jafnframt hefur hann verið
gestafyrirlesari við Yale Univers-
ity í New Haven CT, Hong Kong
og víðs vegar um Kanada.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 17
og verður fluttur á ensku í stofu
113 í húsakynnum LHÍ í Skipholti.
Á morgun verða 90 ár liöin frá fæðingu dr. Kristjáns Eidjárns, fyrrum þjóðminja-
varðar og forseta íslands. I tilefni af því er efnt til hátíðardagskrár í Þjóðminja-
safni Islands sem hefst klukkan 12 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.
Vélrænar
þýöingar
Stefán Briem heldur í dag erindi
sem hann nefnir Vélrænar þýð-
ingar milli tungumála. Þar mun
Stefán fjalla um helstu áhrifa-
þætti á þróun vélrænna þýðinga
en hann hefur um árabil fengist
við rannsóknir á þessu sviði.
Hann mun ræða sérstaklega um
vélrænar þýðingar milli íslensku
og annarra tungumála. Stefán er
eðlisfræðingur að mennt en frá
árinu 1986 hefur hann eingöngu
sinnt störfum sem tengjast
tungutækni á einhvern hátt.
Fyrirlesturinn er haldinn í stofu 101
í Árnagarði og hefst klukkan 12.
Er til rétt saga?
Þorsteinn Helgason, dósent í
sagnfræði við KHl, flytur erindi
í hádegisfundaröð Sagnfræð-
ingafélags
íslands í dag.
Erindið ber
yfirskriftina Er
til rétt saga?
Um kanón í
sagnfræði og
sögukennslu.
í erindinu
segir Þor-
steinn frá viðleitni manna til að
festa söguleg atriði í sessi með
valdboði, umvöndunum eða gylli-
boðum. Einkum verður fjallað um
þá sögu sem kennd er í skólum
og hægt er að stýra og ákveðin
dæmi tekin frá ísiandi, Svíþjóð,
Danmörku og Hollandi. Erindið
hefst klukkan 12:05 í fyrirlestrar-
sal Þjóðminjasafnsins.
Tjernobyl
í myndutn
átt er íslenskara en
hvítfryssandi, vest-
firskt brim og karlakór
prýddur flauelsmjúk-
um röddum sem hefur
upp raust sína meðan vindurinn
gnauðar úti. Þetta vita þeir Ásgeir
Andri Kristjönuson og Halldór
Gunnar Pálsson manna best en
þeir hafa nýlokið við gerð plötunn-
ar Bræðralag en hún kemur út 11.
desember næstkomandi. „Platan
hefur yfir sér ákveðinn íslensk-
an blæ. Það er svolítill drungi og
skammdegi í henni og ég myndi
segja að þetta væri plata fyrir fólk
landsins, flutt af mönnum lands-
ins,“ útskýrir Ásgeir þegar hann
er spurður um tónlistina. „Þeir
sem unnu að þessu verkefni með
okkur Halldóri Gunnari eru flest-
ir strákar sem tengjast Flateyri
við Önundarfjörð með einum eða
öðrum hætti og ég held að platan
öll endurspegli ákveðinn vest-
firskan anda.“
Bændur að vestan
lögðu hönd á plóg
„Við Halldór kynntumst á Flateyri
á síðasta sjómannadag þar sem tón-
listarhátíðin Hafstraumar var hald-
in en henni er ætlað að efla tónlist-
arlíf á Vestfjörðum. Ég var að bogra
við að smíða svið þegar ég lít upp
og sé fúlskeggjaðan mann standa
yfir mér skælbrosandi. Þar var Hall-
dór kominn,“ segir Ásgeir hlæjandi.
Síðan hafa þeir félagar setið við að
semja tónlist og er hluta afraksturs-
ins að finna á plötunni. Halldór sér
að mestu um lagasmíðarnar en Ás-
geir gerði textana. „Samstarfið allt
gekk prýðilega enda höfðum við
með okkur fullt af góðu fólki. Jens,
kenndur við Brain Police, syngur
einsöng í einu laginu og Tómas Ax-
el Ragnarsson spilar á munnörpu
en annað er að mestu flutt af mér
og Halldóri.“
Piltarnir settu einnig saman karla-
kór sérstaklega til að syngja með sér
en það eru mest strákar ættaðir að
vestan. „1 byrjun stóð nú aldrei til
að gera kóraplötu, sú hugmynd kom
upp þegar við vorum búnir að semja
fyrsta lagið enda þótti okkur það
passa einstaklega vel fyrir kór. Hall-
dór gekk í það að hóa saman strák-
um og fékk með sér bændur, útgerð-
armenn og rafvirkja að vestan sem
tóku allir einstaklega vel í það að lið-
sinna okkur í þessu,“ segir Ásgeir.
Skringileg hljóðfæri
Óhætt er að segja að hljóðfæra-
val á plötunni sé með eindæmum
frumlegt en Halldór og Ásgeir
notuðu meðal annars gamlan ára-
bát sem trommað er á og tóman
olíutank sem sleginn er með sér-
smíðaðri sleggju frá góðum og
gegnum vélstjóra á Flateyri. „Við
prófuðum okkur áfram með ým-
islegt í þessa áttina og ég held að
það ljái lögunum skemmtilegan
blæ. Svo tókum við upp ýmis um-
hverfishljóð í Önundarfirði, til
dæmis vind og öldugang," segir
Ásgeir. Piltarnir ætla að halda í yf-
irreið um landið áður en langt um
líður og spila fyrir landsbyggðina.
„Okkur langar til að fara víða og
spila meðal annars á þorrablót-
um og öðrum samkomum til
sveita.“ Útgáfutónleikar verða í
Iðnó við Tjörnina 22. desember
næstkomandi.