blaðið - 26.04.2007, Qupperneq 6
26 • VIÐSKIPTI & FJÁRMÁL
FIMMÍUDAGUR 26. APRÍL 2007 blaðiö
Eftirlaunum frestað:
Skipholti 17 - 105 Reykjavík
Sími 588 - 4699
Fax 588 - 4696
www.öbaJs
Það er ekki hlaupið að því að landa
draumastarfinu. I fyrsta lagi þarf
fólk að búa yfir öllum þeim kostum
sem nauðsynlegir eru til starfsins og
svo er einnig mikilvægt að fólk nái
að vekja jákvæða athygli á sér. Það
er einróma álit allra að besta leiðin
til að vekja athygli á sér sé að státa af
góðri ferilskrá. Það að gera góða fer-
ilskrá er mikil list og víða um heim
er boðið upp á námskeið sem kenna
fólki að gera góða og vandaða feril-
skrá. Flestir kannast við það að hafa
setið sveittir yfir ferilskránni og
hafa margir haft áhyggjur af því að
setja inn hluti sem skipta engu máli
fyrir tilvonandi vinnuveitendur.
Bandaríska atvinnumiðlunin Care-
erBuilders.com tók upp á því nýverið
að kanna hver væru skelfilegustu
mistökin sem fólk hefði gert varð-
andi ferilskrána sína. Fyrirtækið
Harris Interactive sem sérhæfir sig
í framkvæmdum skoðanakannana
fékk það verðuga verkefni að hringja
í þúsundir ráðningarskrifstofa og
af þeim rúmlega 2600 svörum sem
bárust leyndust ýmsir gullmolar. Til
þess að tryggja það að Islendingar í
atvinnuleit geri ekki sömu mistök
og Bandaríkjamennirnir verður
hér látinn fylgja topp tíu listinn yfir
heimskulegustu hlutina sem fólk
setti í ferilskrárnar sínar.
EB Einni ferilskránni fylgdi fal-
legt handskrifað bréf frá móður
viðkomandi.
0 Ein ferilskráin var prentuð á Ijós-
bláan pappír með litlum böngsum
prentuðum meðfram öllum köntum
blaðsins.
E2 Einn umsækjandi útskýrði
þriggja mánaða eyðu í atvinnuferl-
inum með því að hann hefði verið
að jafna sig eftir andlát kattar síns.
□ Annar umsækjandi tók fram
að geta hans til að vinna á
föstudögum, laugardögum og
sunnudögum væri verulega
skert þar sem þeir dagar væru
„drykkjudagar“.
m Ung stúlka í atvinnuleit lét fylgja
mynd af sér í klappstýrubúningi.
0 Umslagið utan um eina feril-
skrána skartaði fallegri handteikn-
aðri mynd af bíl; það fylgdi með að
bíllinn yrði gefinn þeim sem myndi
ráða hann.
B Einn umsækjandi taldi það
meðal áhugamála sinna að sitja
við árbakka um nætur og horfa á
krókódíla.
E2 Einum umsækjanda fannst
það mikilvægt að taka það fram
að systir sín hefði einu sinni unnið
jarðarberjakappátskepþni.
E2 Annar í atvinnuleit tók það skýrt
fram að hann ynni mjög vel nakinn.
C3 Einn reyndi að afsaka sakaferil-
inn með orðunum: „Við stálum svíni
en það var mjög lítið svín.“
Vonandi hefur engum hér heima
dottið í hug að setja eitthvað jafn
heimskulegt og þetta í ferilskrána
sína. Ef svo er þá er hinum sömu
bent á að kynna sér afbragðs-
námskeið sem eru í boði um
ferilskrárgerð.
Unnið fram í rauðan dauðann
HVAÐ GERIR ÞÚ VIÐ ÚRELD SKJÖL OG
TRÚNAÐARGÖGN?
Vlð seljum hlna viðurkenndu TAROS pappfrstætara
€ttc E. Arnar ehf.
John er einungis eitt dæmi af
mjög mörgum um löggilta eldri
borgara sem kjósa að vinna áfram
eftir að eftirlaunaaldri er náð.
Fyrir tíu árum voru um tuttugu
prósent allra Bandaríkjamanna
yfir sextugu enn að störfum en
nú er þessi tala komin upp í 25
prósent. Nýlegar kannanir hafa
gefið til kynna að þessi tala muni
hækka því 38 prósent eldri starfs-
manna á vinnumarkaðnum í
Bandaríkjunum hyggjast vinna
eitthvað áfram eftir að eftirlauna-
aldri er náð.
Leora Friedberg, hagfræðipró-
fessor við Virginiu-háskóla, segir
að þessi þróun sé alger viðsnún-
ingur frá því sem áður var en þá
reyndi fólk að setjast í helgan stein
eins fljótt og auðið var. Hún segir
að þessa þróun sé hægt að rekja til
hærri kostnaðar við heilbrigðisþjón-
ustu en enn fremur til þess að fólk
hreinlega lifir lengur og er vinnu-
fært mun lengur en áður þekktist.
í ljósi nýlegra eftirlaunareglu-
gerða í Bandaríkjunum er líklegt
að þessi þróun muni halda áfram
því nú geta eldri borgarar þegið
eftirlaunagreiðslur þrátt fyrir að
þeir séu enn að störfum. Fram að
því áttu eldri borgarar ekki rétt
á neinum opinberum greiðslum
fyrr en þeir væru alveg farnir af
vinnumarkaðnum. Það er engin
spurning að fyrirtæki geta hagnast
gríðarlega á því að nota starfsfólk
sitt eins lengi og kostur er. Eldra
starfsfólk býr yfir mikilvægri
starfsreynslu sem oft er vont að
missa úr fyrirtækjunum.
Láttu ekki aðra komast í pappírana þína!
Við erum reynsluboltar þegar kemur að vali á pappírstæturum.
Leitaðu ráðgjáfar hjá okkur um tætara sem myndi henta þínu fyrirtæki.
1. Setur í geymslu með gömlu dóti ?
2. Hendir þeim í ruslið ?
3. Fargar þeim á hagkvæman og
vistlegan hátt ?
Öflugur búnaður
sem þú getur
treyst!
Snjallt að hafa við
Ijósritunarvélina
TAROS 60.20
♦ Þægileg vinnuhæö
♦ Innibyggöur
skjalaháldari
♦ Breidd ops: 40,5cm
♦ Hæö: 102cm
♦ Geymslurýml: 130lítar
♦Tekur pappírklemmur,
geisladisíca, og plastkort
ÖRYCGI FYRIR
FYRIRTÆKIÐ
Atvinnumarkaðurinn er síbreyti-
legur. Einmitt þegar margir á
miðjum aldri eru farnir að láta sig
dreyma um að geta sest snemma í
helgan stein er sú þróun að eiga sér
stað að fólk er í síauknum mæli
að vinna fram yfir eftirlaunaald-
urinn. Þessi þróun er sérstaklega
áberandi í Bandaríkjunum þar
sem fjölmörg dæmi eru um að
eldri starfsmenn séu að nýta sér
sérstaka starfslokasamninga þar
sem vinnutími þeirra er smám
saman minnkaður í stað þess að
fólk hætti algjörlega um leið og eft-
irlaunaaldri er náð.
Hinn 73 ára gamli John Sayles
í Iowa-fylki er lýsandi dæmi um
þessa þróun. Hann hefur starfað
hjá sama fyrirtæki í ríflega 40 ár
og hann er enn ekki reiðubúinn að
setjast í helgan stein. „Ég er hrein-
lega að skemmta mér of vel til að
hætta.“
Vinnuveitendur Johns buðu
honum starfslokasamning sem
gerði ráð fyrir því að vinnutími
hans yrði smám saman skorinn
niður. Þegar hann var 69 ára og
hefði átt að vera búinn að vera á
ellilífeyri í fjögur ár, eftirlauna-
aldur í Bandaríkjunum er 65 ára,
minnkaði hann vinnu sína niður
í fjögurra daga vinnuviku. Núna
vinnur hann einn dag í viku og er
hæstánægður með það.
Ungur í anda Sumir
eldri borgarar vilja
vinna eftir 67 ára aldur.
Náðu figídMl GfláD
í sumar!
“Ég sexfaldaði lestrarhraða minn á 3 vikum!
Frábært!”
Guðjón Bergmann, 34 ára rithöfundur, f
yrirlesari og jógakennari,
“Ykkur að þakka mun ég rúlla upp samræmdu
prófunum.”
Jökull Torfason, 15 ára nemi.
“Þetta mun nýtast mér alla ævi.”
Jóhanna Helga, 15 ára grunnskólanemi.
“Snilldarnámskeið..kom skemmtilega á óvart hversu
miklum hraða ég náði.”
Guðbjörg Jónsdóttir, 40 ára Framhaldsskólakennari.
“...á eftir að spara mér hellings tíma af
námsbókalestri.”
Ragna Björk Ólafsdóttir, 17 ára nemi og golfari.
“Loksins sé ég fram á það að geta klárað
lesbækur fyrir próf”
Elín Björk Jónsdóttir, 15 ára nemi.
Skráning á sumarnámskeið Hraðlestrarskólans er hafin á www.h.is og í síma 586-9400
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott, skipulagning, einbeiting,
jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.