blaðið - 26.04.2007, Síða 8
28 • VIÐSKIPTI & FJÁRMÁL
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 blaðiö
Te og kaffi:
Ferskleikinn í fyrirrúmi
Te og kaffi hefur verið starfrækt frá
árinu 1984 og verið leiðandi fyrirtæki
á íslenska kaffimarkaðnum. Strangt
gæðaeftirlit hjá fyrirtækinu í öllu
vinnsluferli kaffibaunanna tryggir
gæði sem kaffiunnendur á íslandi
geta treyst. Brennsla og geymsluþol
kaffisins eru mikilvægir þættir til
þess að kaffið bragðist vel og haldi
ferskleika sínum alla leið til neytand-
ans. Te og kaffi fylgist vel með tækni-
nýjungum sem fram koma varðandi
vinnslu og geymslu á kaffi til þess að
bjóða viðskiptavinum sínum besta
kaffi sem völ er á. Til að tryggja fersk-
leika, bragð og geymsluþol sem best
hefur fyrirtækið nú tekið í notkun
nýjan ítalskan brennsluofn og pökk-
unarvél af nýjustu og fullkomnustu
gerð.
Með nýrri tækni við ristun aukast
gæði brennslunnar enn frekar því
að hægt er að stjórna brennslunni á
mismunandi tegundum kaffibauna
af mjög mikilli nákvæmni og tryggja
jafna og stöðuga brennslu ásamt því
að draga enn betur fram sérkenni og
keim hverrar kaffitegundar.
Til að fullkomna ferskleikann
er öllu kaffinu frá Te & kaffi síðan
pakkað strax eftir ristun í umbúðir
með einstreymisventli.
Þessar fullkomnu vinnsluaðferðir
tryggja enn betur ferskleika og
bragð.
Te og kaffi velur bestu kaffiteg-
undir frá hverju landi fyrir sig og
eru þær smakkaðar af okkar þaul-
vönu kaffisérfræðingum til þess að
tryggja gæði og gott bragð.
Til gamans má geta þess að ný-
lega fór fram Islandsmeistaramót
í kaffismökkun. Árni Ragnarsson, keppa fyrir hönd íslands á heims-
brennslumeistari hjá Te og kaffi, meistaramótinu sem haldið verður
var sigurvegari keppninnar og mun í Belgíu í vor.
1500 manns
missa vinnuna
Japanski bílaframleiðandinn
Nissan tilkynnti á dögunum að
fyrirtækið hyggist leggja niður
um 1500 störf innan árs. Starfs-
mönnum fyrirtækisins sem hafa
náð 45 ára aldri, hafa starfað hjá
fyrirtækinu í meira en fimm ár
og eru ekki í stjórnunarstöðu
stendur til boða að hætta að vinna
hjá fyrirtækinu með sérstökum
starfslokasamningi sem mun
gera starfsfólkinu kleift að setjast
snemma í helgan stein. Nissan
lagði nýverið niður 775 störf í
Bandaríkjunum með svipuðum
hætti og því er líklegt að áætla að
þessi leið hafi gefist vel.
Nissan er þriðji stærsti bíla-
framleiðandi Japans en hörð
samkeppni á innanlandsmark-
aði hefur gert það að verkum að
hagnaður fyrirtækisins hefur
farið minnkandi. 1 febrúar síðast-
liðnum breytti fyrirtækið hagn-
aðarspám sínum og er áætlaður
hagnaður um 12 prósentum lægri
en upphaflega var áætlað.
Til þess að blása lífi í innan-
landssölu Nissan hefur fyrirtækið
ákveðið að setja á markaðinn
ellefu nýjar eða endurbættar bif-
reiðar, og með þessu er reiknað
með að það takmark fyrirtækis-
ins að selja 4,2 milljónir bifreiða
náist fyrir árið 2009.
á laugardögum
Auglýsingasíminn er
510 3744
J
ÖRUGGA SAFNIÐ
16,1%ávöxtun
Stöðug ávöxtun, lágmarkssveiflur,
lítil áhætta.
• 75% skuldabréf
• 25% hlutabréf
Hversu hátt stefnir þú?
Þrjú fjárfestingarsöfn - þrjár mismunandi leiðir
Hægt er að fjárfesta f ákveðinni leið eða vera í reglulegri áskrift.
Allar ávöxtunartölur eru miöaöar viö áriö 2006. Ávöxtun í fortíð er ekki vísbending um ávöxtun I framtfö. Gengi veröbréfa getúr hækkaö jafnt sem lækkaö.
Kaup í þessum söfnum, sem sérfræðingar SPRON Verðbréfa hafa sett saman, miðast við að keypt sé fyrir lágmark 20.000 kr.
Miðað er við 5 milljóna kr. lágmark í Virkri sjóðastýringu. Stýringin felst í því að viðskiptavinur gefur sérfræðingum SPRON Verðbréfa
heimild til þess að fjárfesta í verðbréfasjóðum eftir fyrirfram ákveðinni samsetningu sem kemur fram í vali á sjóðasafni.
Netbankinn
Netbankinn býöur viðskiptavinum sínum
veröbréfaþjónustu og ráðgjöf í samstarfi
við SPRON Verðbréf. Þú sækir um rafrænt
á www.nb.is.
'spron
Vegmúla 2-108 Reykjavík - 550 1310 - verdbref@spron.is
www.spronverdbref.is - www.spron.is eða í næsta útibúi SPRON
VERÐBREF
HEFÐBUNDNA SAFNIÐ
Áhersla á góða ávöxtun og áhættu-
dreifingu, meðaláhætta.
• 50% skuldabréf
•50%hlutabréf
ÁVÖXTUNARSAFNIÐ
24,9% ávöxtun
20,8% ávöxtun
Meiri sveiflur, hærri væntingar.
Áhersla á góða áhættudreifingu með
erlendum og íslenskum verðbréfum.
• 75% hlutabréf
• 25% skuldabréf