Fjarðarpósturinn - 14.03.1996, Side 3
Fjarðarpósturinn 3
Atvinnu-
leysi
minnkaði
í febrúar
Loðnufrysting gerði það að
verkum að nokkuð dró úr at-
vinnuleysi í Hafnarfirði síðari
hluta febrúarmánaðar. Alls voru
426 mann án atvinnu í lok febrúar
samanborið við 465 í mánuðinum
á undan, en búast má við að þeir
sem fengu þá tímabundna vinnu
við loðnufrystingu fari aftur á at-
vinnuleysisskrá.
Mun fleiri konur en karlar voru at-
vinnulausar í febrúar eða 248 á móti
178 körlum. Af 465 voru langflestir
úr röðum verslunarfólks og verka-
fólks, eða 173 verslunarmenn og 172
verkamenn. Atvinnulausir iðnaðar-
menn á skrá í lok febrúar voru 34.
Bærinn á tölu-
vert í útistand-
andi húsaleigu-
skuldum
Um 2,6
milljónir kr.
taldar
óinnheimt-
anlegar
Á síðasta fundi bæjarráðs var
lagt fram bréf frá bæjarlögmanni
ásamt lista yfir húsaleiguskuldir
16 aðila samtals að upphæð rúm-
lega 2,6 milljónir kr. sem taldar
eru óinnheimtanlegar. Leggur lög-
maður til að þessar skuldir verði
afskrifaðar.
Hafnarfjörður á nú einar 120
íbúðir í bænum sem leigðar eru á al-
mennum markaði. Að sögn Guð-
mundar Benediktssonar bæjarlög-
manns hafa óinnheimtanlegar húsa-
leiguskuldir ekki verið afskrifaðar í
mörg ár hjá bæjarsjóði og er það
helsta ástæðan fyrir því hve þessi
upphæð er orðin há. I fyrrgreindum
tilvikum sé um eignalaust fólk að
ræða og því þýðingarlaust að reyna
frekari innheimtu á skuldum þess.
Engin af þessum 16 aðilum býr nú í
húsnæði á vegum bæjarins.
Ingunn sýnir í
Fjarðarnesti
Ingunn Evdal heldur myndlist-
arsýningu á 17 verkum í Fjarðar-
nesti. Eru þetta grafík myndir og
mvndir unnar með blandaðri
tækni.
Ingunn hefur haldið 12 einkasýn-
ingar, og hefur tekið þátt í rúmlega
130 samsýningum víða um heim.
Tvívegis hefur Ingunn hlotið al-
þjóðleg verðlaun og sigrað í íslenskri
myndlistarkeppni (Iþróttasamband
Islands). Árið 1983 varlngunn borg-
arlistamaður (Reykjavík)
Sýningin stendur til 24. mars.
Nýkomið mikið
úrval af Ijósum
og lömpum.
Sjónvörp.
hljómtæki.
Fallegar
fermingargjafir
1AFBÚÐÍN
Alfaskcið 31 sími 555-3020
Hádegistilboð
allan daginn
9“ flatbaka m/ 2 áleggstegundum,
hvítlauksbrauð og 0,5 Itr. Coke
kr. 500.-
Gildir aðeins
þegar
sótt er.
Fjarðargata 11,
Hafnarfirði
Ljósasýning
15. mars til 15. api íl
s os&œ
Miðbæ sími 555-3750
OPNUNARTILBOÐ
Föstudag og laugardag frá kl. 20
Fordrykkur KIRR
Sjávarréttasúpa
Lambafillet m/kryddjurtasósu
Kaffi og konfekt
______Dans Aðeins kr. 1900,-_
Fljótlegt og ódýrt í hádeginu
Salatbar og súpa
ER VEISLA FRAMEADAA?
Árshátíðir-Afmæli
Briiðkaup-Fermingar
Móttökur
Opið: mán.-miðvikudaga 10-19
fimmtudag 10-01, sunnudag 12-01
föstud,- og laugardag 10-03
Frábært útsýni -Verið velkomin
Sprengitilboð frá
14. til 17. mars
Svínahamborgarahryggur
frá Goða kr. 779 kg.
Bayonaise skinka
frá Goða kr. 779 kg.
Agúrkur ís-
lenskar kr.
299 kg.
Reyktur lax kr. 988 kg.
Þykkvabæjar franskar kr. 119
íslenskir sveppir kr. 399 kg.
Laukur kr. 49 kg.
Kókó-
mjólk
kr. 35
4 Hamborgarar m/brauði kr. 258
Kjúklingar kr. 399 kg.
Salatbar - Ávaxtatorg
Kynningar föstudag
og laugardag
Miðvangi 41 s. 555-0292
Stórmarkaður í Hafnarfirði
Opið virka daga frá kl. 9.00 til 22.00
Opið um helgar frá kl. 10.00 til 20.00