FÁ-blaðið - 01.02.1961, Page 1

FÁ-blaðið - 01.02.1961, Page 1
BLAÐIÐ 35 mm Eftir JOHN WOLBORST Æfmtýri í kornalandi: Eða, það se?n þú heldur þig sjá, getur reynzt vera allt annað. í fljótu bragði getur það virzt fráleitt að fullyrða, að þér getið dregið úr fyrirsjáanlegri korna-áferð á stækk- unum yðar, með því að veita athygli eftirfarandi for- skrift, sem vissulega er einföld. Notið myndavél með afbragðs linsu, fremur en sæmilegri. Gætið þess vel að fá fyrirmyndina nákvæm- lega í brennipunkt, hvort sem þér notið mæli, stillið inn eftir auganu eða á annan hátt, og haldið mynda- vélinni hreyfingarlausri. Yður finnst þetta broslegt? Því skal ekki mótmælt. En það er eins og þar stendur, þetta er - ótrúlegt en satt Áður en lengra er haldið langar mig til að skýra nokkur hugtök. Korna-áferð eru sjónhrif framkölluð í huga áhorfanda af gerð myndarinnar á blaði, eða myndar, sem sýnd er á tjaldi. Ef til vill sýnist myndin slétt, þægileg fyrir augað, samræmd. En ef til vill verð- ur myndin með hinni alkunnu „pipar og salt“ áferð, sem einkennir svo mörg 35 mm verk. Auðsjáanlega verður „negativið" að innihalda eitthvað það, sem veldur þeim sjónhrifum, er við nefnum ,,korna-áferð“. Eðlis-einkenni þau í „negativinu", sem valda korna- áferð á blaði, er hinn mismunandi þéttleiki, sem or- Z--------------------------------------------- AÐ ALFUNDUR F.Á. verður haldinn mánudaginn 20. febrúar 1961 í Breiðfirðingabúð (niðri) kl. 8,30 e. h. FUNDAREFNI: 1. Aðalfundarstörf samkv. félagslögum. 2. Lagabreytingar. 3. Önnur mál. 4. Kvikmynd. L.__________________________________________y sakast af tilviljanakenndri dreyfingu framkallaðra silfur-korna. Grófleiki (Granularity) er það orð, sem notað er í sambandi við eðlis-rannsóknir á þessum breytilega þéttleika. Með „densitometer" (þéttleikamæli) og öðr- um tækjum er hægt að sjá og rannsaka grófleikann. Dæmi um óvísindalega rannsókn: Maður, sem skoð- ar „negative" með 20X stækkunargleri og segir: „Það er kornótt“. Hann sér aðeins korna-áferð negativu- myndarinnar. Grófleiki er huglœgur (subjective). Þótt ég eigi á hættu að valda honum vonbrigðum, og mörgum öðrum, sem nota stækkunargler við rannsókn- ir sínar, þá vil ég benda á það, að það sem stækkunar- glerið sýnir um grófleika „negativsins“ (myndarinnar á negativinu) getur verið hrein blekking, gjörólíkt því FÁ-BLAÐIÐ I

x

FÁ-blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FÁ-blaðið
https://timarit.is/publication/947

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.