FÁ-blaðið - 01.02.1961, Side 2
sem fram kemur á fullgerðri mynd. Þótt stækkunar-
glerið sýni korna-áferð á negativu myndinni, þarf það
ekki að vera nein vísbending um að þannig verði
myndin fullgerð, og sá sem álítur sig geta sagt fyrir um
grófleika, hann blekkir sjálfan sig.
Auðvelt er að sannfæra sig um þetta með því að
taka mynd af tveim samstæðum hlutum og hafa aðeins
annan nákvæmlega í brennipunkti: Sá hluturinn, sem í
brennipunkti var, virðist eftir kopieringu hafa miklu
minni korna-áferð en hinn sem ekki var nákvæmlega
í brennipunkti. Mismunandi korna-áferð í sömu mynd-
inni getur því aðeins stafað af því, að mestu ráði um
áferð á fullgerðri mynd hvort fyrirmyndin hefir verið
nákvæmlega í brennipunkti eða ekki, og þá einnig
hvort myndin er fullkomlega skýr eða ekki. Því skýr-
ari mynd, því minni hætta á korna-áferð.
Hin óverulegasta hreyfing myndavélarinnar, örlítil
skekkja í innstillingu brennipunkts, linsa, sem ekki er
full-skörp - allt þetta getur stuðlað að því að myndin
fullgerð virðist vera með korna-áferð.
Filmu-tegundin er mikilvæg. Þessi áhrif eru ekki til
í mjög fínkorna filmum, nema um mjög mikla stækkun
sé að ræða. Filmur eins og Agfa Isopan Record og II-
ford HPS eru allmjög kcrnóttar til að byrja með og
augað sér oftast korna-áferð á myndum af þessum
filmum, hve skýr, sem myndin annars er. Og því óskýr-
ari mynd, því meiri korna-áferð.
Þau áhrif virðast greinilegust á filmum eins og
Ansco Super Hypan og Kodak Tri-X Pan, og þau sjást
einnig á filmum með meðalhraða, af hverju sem þetta
stafar.
Frá HÍL (Hinu íslenzka Liósmyndaiélagi).
Alþjóðamyndamöppur FIAP
Alþjóðasamtökin FIAP (Fédération Internationale
de l’art Photographique), sem HlL er meðlimur í sem
heildarsamtök íslenzkra ljósmyndaáhugafélaga, þar
með einnig FÁ, hefur haldið ráðstefnu nú nýlega í
Opatija, þann 19. til 22. sept. sl.
Forseti samtakanna er áfram Dr. M. Van de Wyer í
Belgíu, varaforseti er Roland Bourigeaud, Frakklandi,
aðalritari er Ernest Boesiger, Sviss, gjaldkeri Dr. W.
Schwanke, Þýzkalandi og stjórnandi myndamappa er
H. B. J. Cramer, Danmörku.
Ráðstefnur þessar eru haldnar annað hvort ár að
Mynd. þessi er ein þeirra 37 mynda sem sýndar haja verið í glugg-
um Morgunblaðsins undanjarið.
jafnaði. Sú síðasta var haldin 1958, og var sú fimmta í
röðinni. 7. ráðstefnan og 7. svart-hvíta alþjóðasýningin
(7th Biennal Black/'White) verður haldin í Grikklandi
apríl eða maí 1962.
2. alþjóðalitmyndasýning FIAP (The 2nd Colour
Biennal) verður haldin í Múnchen í Þýzkalandi annað-
hvort í ágúst eða september 1961. .
Ný samkeppni er fyrirhuguð í samræmi við tillögu
frá forseta FIAP, Dr. M. Van de Wyer, og nefnist hún
„Fósturlandið mitt“ (“My homeland"). Þessi sam-
keppni er fyrirhuguð í samvinnu við UNESCO árið
1961.
Skrá yfir þátttakendur í alþjóðaljósmyndasýningum
verður aftur birt í Árbók FIAP og í tímaritinu Camera
(Sviss).
Árbók FIAP fyrir árið 1962 verður gefin út eins og
venjulega og verða í henni að minnsta kosti 8 litmynd-
ir. Er áætlað að bókin komi út haustið 1961, og verður
útgefandi sami og áður, C. J. Bucher SA.
2
FÁ-BLAÐIÐ