FÁ-blaðið - 01.10.1962, Page 1
-BLABID
5. TOLUBLAÐ . OKTOBER 1962 . 7. ARGANGUR
Eru statív úrelfí
Hér áður fyrr var ljósmyndaranum statív algjör nauð-
syn. Að jafnaði gat hann ekki án þess verið. Á þeirn
tímum (á fyrsta fjórðungi þessarar aldar) var ljósnæmi
venjulegrar „hraðrar“ ljósmyndaplötu 14—16° Schein-
er eða 5—6 DIN, og linsur dýrustu og fullkomnustu
myndavélanna höfðu Ijósop f:4,5. Nú er ljósnæmi filma
og ljósop linsanna margfalt meira, og það hefur valdið
því, í flestum tilfellum, að hægt er að taka myndir á það
miklum hraða að óþarft er að hafa myndavélina á sta-
tívi, en statív er í hezta tilfelli fremur fyrirferðarmikið
og þungt, og er því oftast skilið eftir heima, þar sem enn
er notazt við það við andlitsmyndatöku og þess háttar.
I rauninni hafa margir Ijósmyndarar aldrei eignazt
statív. En er það viturlegt að afsala sér algjörlega þessu
hjálpartæki? Hættan á hristingi, þegar haldið er á vél-
inni við myndatöku, er miklu meiri en flestir halda. Það
getur auðveldlega komið fyrir, að mynd, sem tekin er á
1/100 sek., verði hreyfð. Þessi hreyfing er sjaldan svo
mikil að greina megi hana sem tvöfaldur eða lítt af-
markaðar útlínur. Yfirleitt greinir maður ekki með ber-
um augum áhrif hristingsins á negatívinu. En þegar
stækkað er, t. d. 6—7 sinnum á hvern veg, kemur í Ijós,
að myndin er ekki alveg skörp. Oft hafa menn kennt
linsu myndavélarinnar um, þó að mistökin væru sjálf-
um ljósmyndaranum að kenna, þar sem hann gat ekki
haldið myndavélinni algjörlega kyrri um leið og hann
smellti af.
Nú eru ekki allar myndavélar jafnslæmar í þessu til-
felli. Því þyngri sem vélin er, því betra er að halda henni
kyrri. Eitt gamalt bragð er að útvega sér skrúfu, sem
passar í skrúfuganginn neðan á myndavélinni. Við þessa
/--------------------------------------------N
FUNDUR F.Á.
verður haldinn mánudaginn 29. október í BreiðfirS-
ingabúð, niðri, og hefst kl. 8,30 e. b.
FUNDAREFNI:
1. Venjuleg fundarstörf.
2. Inntaka nýrra félaga.
3. Myndasamkeppnin. Frjálst val.
4. íslenzk kvikmynd. Gestur Þorgrímsson lýsir
töku hennar og ræðir um hana.
STJÓRNIN
V____________________________________________y
skrúfu er bundin snúra, en hinn endinn bundinn við
stein eða eitthvað annað, sem fyrir hendi er, til að
þyngja myndavélina, eða stigið er einfaldlega á snúru-
endann og strengt á henni upp á við.
Auðveldara er að halda myndavélinni kyrri, er henni
er haldið upp við augun, og gikkur, sem Ijósmyndarinn
þrýstir á að sér, veldur síður hristingi en væri hann stað-
settur ofan á myndavélinni og þrýst niður.
Við þorunt að fullyrða, að mjög fáir ljósmyndarar,
sem halda á myndavélinni við myndatöku, geti tekið
myndir á 1/30 sek. án þess að hristingur verði nokkru
sinni greindur á negatívinu. Þú heldur ef til vill að öðru
máli gegni unt þig. Prófaðu þá að taka nokkrar myndir
á 1/30 sek., haldandi á myndavélinni, og jafnframt
nokkrar með vélina á statívi, helzt af sama mótívi.
Stækkaðu síðan báðar myndaseríurnar 6 sinnum á hvern
veg og berðu þær saman.
Enn eru til mótív, sem krefjast langrar lýsingar: við
þurfum aðeins að nefna myndatökur að næturlagi. Einn-
FÁ-BLAÐIÐ
1