FÁ-blaðið - 01.10.1962, Qupperneq 4
Eru statív úrelt
Framh. aj 2. bls.
unnar að miðju efri linsunnar og merkja hana á stöng-
ina. Þessi ágæti lyftuútbúnaður hefur þann ókost, að
statívið verður ennþá þyngra og fyrirferðarmeira.
Ljósmyndaiðnaðurinn hefur komið fram með ýmsar
gerðir af „hálfgerðum statívum“, sem eiga að nokkru
leyti að koma í stað statíva, án þess að vera eins þung
og fyrirferðarmikil og þau. Sem dæmi um slíkt má nefna
„eins fótar“ statív, sem hefur, eins og nafnið bendir til,
aðeins einn fót og skrúfu ofan á. Að sjálfsögðu getur
það ekki staðið óstutt, en með hjálp þess má auka tals-
vert stöðugleika myndavélarinnar. Ef vélinni er einnig
hallað að enni eða bringu ljósmyndarans, næst talsvert
meiri stöðugleiki en annars. Augljóst er, að „eins fótar“
statív kemur ekki að gagni, þegar tekið er á tíma.
Skylt þessu er „brjóst-statívið". Það samanstendur af
ól, sem hægt er að lengja og stytta, og liggur um háls
ljósmyndarans. Á ólinni er komið fyrir lítilli en djúpri
skál. I þessa skál kemur endi hins stutta fótar, sem
myndavélin er skrúfuð á. Síðan eru fóturinn og ólin
stillt þannig, að myndavélin verði í hæfilegri hæð, t. d.
augnhæð. Þetta eykur talsvert stöðugleika myndavélar-
innar, en í báðum fyrrnefndum tilfellum er mikið und-
ir sjálfum ljósmyndaranum komið. Hann verður að
geta staðið kyrr og haldið niðri í sér andanum á meðan
hann smellir af, án þess að nokkurs skjálfta gæti, en
hæfileikinn til þess er mjög misjafn hjá hinum ýmsu
einstaklingum.
Fyrir nokkrum árum voru „þvingu-statív“ mjög í
tízku, en þau voru í rauninni ekkert annað en þvinga
eða skrúfstykki með áföstum kúlulið. Þau voru skrúfuð
á stólbök, grindverk, trjágreinar eða annað sem hentugt
þótti. Við höfðum einu sinni slíkt tæki með okkur í
ferðalagið, en verðum að viðurkenna, að í hvert skipti
og við ætluðum okkur að nota það, var ekkert fyrir
hendi, sem hægt var að skrúfa það á.
Sem sagt mjög fáir ljósmyndarar hafa statív með, en
hafið þið ekki oft saknað þess. Ef þið notið aðdráttar-
linsu, munuð þið sakna þess enn oftar. Við álítum að
hin aukna notkun aðdráttarlinsa eigi eftir að endur-
reisa gildi statívsins.
(Þýlt úr Fotomagasinet).
ÞÉR FÁIÐ FILMURNAR
I AMATORVERZLUNINNI
LAUGAVEG 55 . SÍMI 227 1 8
REYKJAVÍK