Fjarðarpósturinn - 10.12.2009, Side 14
14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 10. desember 2009
1. hæð í verslunarmiðstöðinni Firði, Hafnarfirði • sími 562 0073
stærðir 42-54
Vorum að taka upp nýjar vörur!
m.a. glæsileg jólaföt
fyrir glæsilegar konur
.. stór föt fyrir stórar konur
Brotist
inn í bíla
Látið ekki sjást í
jólagjafirnar
Lögreglan á höfuðborgar -
svæð inu varar eigendur og um -
ráðamenn ökutækja við því að
skilja verðmæti eftir í bílum.
Talsvert er um að brotist sé inn
í bíla á höfuðborgarsvæðinu en
þjófum er ekkert heilagt og þeir
stela jafnvel jólagjöfum ef því
er að skipta.
Annars eru það einkum GPS-
tæki, myndavélar og tölvur sem
freista þjófa en þetta verða
eigendur eða umráðamenn öku -
tækja að hafa hugfast og muna
að skilja ekki nein verð mæti
eftir í bílum. Sé það óum -
flýjanlegt er mikilvægt að slíkir
hlutir séu ekki í augsýn. Sömu -
leiðis er rétt að benda á mikil -
vægi þess að skilja bíla frekar
eftir á upplýstum bílastæðum,
ef þess er nokkur kostur. Þjóf -
um finnst nefnilega fátt betra en
að athafna sig í myrkrinu þar
sem ekki sést til þeirra.
Látið þjófana ekki freistast.
Prjónabók á
metsölulista
Í nóvember gáfu Hafnfirð -
ingarnir Kristín Harðardóttir
textílkennari og Anna Margrét
Tómasdóttir arkitekt út bókina
Prjónadagar 2010. Bókin hefur
selst eins og heitar lummur. Í
Hagkaupum hefur bókin verið í
4. - 10. sæti yfir söluhæstu bæk -
urnar. Í Eymundsson hefur hún
verið í 6. - 8. sæti á lista yfir
sölu hæstu handbækur, fræði -
bækur og ævisögur. Einnig hef -
ur bókin selst mjög vel í
Fjarðarkaupum.
Í bókinni Prjónadagar 2010 er
dagatal og prjónauppskriftir úr
lopa, ein fyrir hvern mánuð.
Kristín hefur áður gefið út
bókina „Vettlingar og fleira“
sem hefur selst mjög vel og var
núna verið að prenta hana enn á
ný. Hún hefur einnig gefur út
kort með vettlingauppskriftum.