Fjarðarpósturinn - 01.09.2011, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 1. september 2011
Frá foreldramorgnum
Hafnarfjarðarkirkju
Foreldramorgnar í Hafnarfjarðarkirkju
hefjast aftur fimmtud 8. sept. nk.
Við erum á milli kl. 10 og 12 og það er alltaf
heitt á könnunni og með því.
Endilega látið sjá ykkur.
Nú hefjast hádegistónleikar
Hafnarborgar enn á ný, en
tónleikarnir verða nú framvegis
fyrsta þriðjudag hvers mánaðar.
Viðtökur hafa ætíð verið góðar
og tónleikarnir skipa fastan sess
í menningarlífi Hafnarfjarðar.
Antonía Hevesi píanóleikari er
listrænn stjórnandi tónleikanna
sem fyrr og hefur hún fengið til
liðs við sig marga af fremstu
söngvurum landsins.
Elín Ósk Óskarsdóttir ein af
okkar færustu söngkonum mun
hefja dagskrá vetrarins. Hún
hefur sungið fjölda mörg
óperuhlutverk innan lands sem
erlendis og fengið fjölda
viðurkenningar fyrir söng sinn
innan lands og utan auk þess
sem hún hefur verið sæmd
riddarakrossi hinar íslensku
fálkaorðu. Á efniskránni verða
aríur eftir Beethoven, Puccini
og Bellini.
Antonía Hevesi er fædd í
Ungverjalandi. Hún útskrifaðist
árið 1988 úr F.Liszt tón listar
akademíunni í Búdapest með
mastersgráðu í kórstjórn og
sem framhaldsskólakennari í
söngog hljómfræði. Frá árinu
1990 stundaði hún orgelnám í
Austurríki við Tónlistar há skól
ann í Graz. Antonía fluttist til
Íslands árið 1992 og frá því í
september 2001 hefur hún verið
búsett í Hafnarfirði. Antonía
starfar nú sem orgel og píanó
meðleikari og æfingarpíanisti
við Íslensku Óperuna.
Tónleikarnir, sem hefjast kl.
12, standa yfir í um hálfa
klukkustund og eru öllum opnir
á meðan húsrúm leyfir.
Svik og bænir Elínar Óskar
Hádegistónleikar Hafnarborgar nú á þriðjudögum
Elín Ósk Óskarsdóttir, bæjar
lista maður Hafnarfjarðar 2006
Antonía Hevesi hefur stjórnað
tónleikunum af miklum
glæsibrag og léttleika.
Út við Arnarvoginn, skammt
frá gömlum kartöflulöndum
Hafnfirðinga var í síðustu viku
vígt skilti sem kynnir helstu
gönguleiðir í Gálgahrauni, því
sögu fræga hrauni. Voru þar
viðstaddir fulltrúar Garðabæjar,
Hrauna vina, sem áttu frum
kvæði að gerð skiltisins og sem
hafa barist fyrir friðun á svæð
inu auk fulltrúa Íslands banka
Marels og IKEA sem styrktu
gerð skiltisins og sambærilegs
skiltis sem sett var upp við
Garðastekk.
Á skiltunum eru kort sem
sína fornar leiðir sem lágu um
hraunið í lituðum línum og
örnefni, ásamt texta um sögu
svæðisins. Í sumar stikuðu
atvinnuátakshópar helstu leiðir
með litamerktum hælum s.s.
(gul) Fógetagata nyrðri, (gul
brúnt) Fógetagata syðri (Álfta
nesgata), (blá) Gálgaklettaleið
og (grænt) Garðagata.
Gunnar Einarsson afhjúpaði
skiltið ásamt Pétri Stefánssyni
frá Hraunavinum og Júlíu
Ingvars d óttur form. umhverfis
nefndar Garðabæjar.
Gönguleiðir í Gálgahrauni
Garðbæingar sáttir við Hraunavini
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Á fundi sínum þann 9. ágúst
síðastliðinn tók Skipulags og
byggingarráð fyrir erindi frá
Knattspyrnudeild FH þar sem
óskað var eftir því að gefið yrði
tímabundið leyfi til að leggja
bílum á graseyjum í nágrenni
Kaplakrika. Það má
hrósa forsvarsmönnum
knattspyrnudeildar
fyrir frumkvæðið og
viðleitni þeirra til að
leyta leiða til að þjón
usta betur þá gesti sína
sem þurfa stæði þétt
upp við leik völlinn.
En í framhaldinu er
líka hægt að velta fyrir
sér almennri forgangs
röðun og viðhorfum til aukinnar
lýðheilsu og umhverfis
markmiða hvað varðar sam
göngu mál nú þegar styttist í
evrópska samgönguviku.
Ráðið hafnaði erindinu með
vísan í umsögn lögreglu sem lá
fyrir fundinum, enda hefur
Skipulags og byggingarráð
Hafnar fjarðar ekki umboð til
þess að leyfa ólöglega lagningu
bifreiða, sbr. 27. og 28 gr.
Um ferðalaga frá 1987. Þess ber
líka að geta að Kaplakriki er
umkringdur umferðagötum á
þrjá vegu og liggur Fjarðar
hraun, ein umferðamesta gata
bæjar ins meðfram
svæðinu. Það er enn
fremur mat ráðsins að
ekki sé for svar anlegt
að auka hættu bæði
akandi, gang andi og
hjólandi veg farenda á
þessu svæði, ekki einu
sinni tíma bundið. Sú
ákvörð un að hafna
erind inu var því tekin
með almanna hags
muni og umferðar öryggi í huga
en alls ekki, eins og gefið er í
skyn í pistli for manns knatt
spyrnudeildar á heimasíðu
félagsins, í þeim til gangi að
draga úr aðsókn eða þrengja að
þjónustumarkmiðum FH. Þá
má hins vegar svo sannarlega
taka undir orð Jóns Rúnars
Halldórssonar formanns knatt
spyrnudeildar FH þar sem hann
hvetur alla þá sem hafa hug á að
sækja FHinga heim til að ,,...
leggja bílum sínum lög lega.
Einnig er ráð fyrir þá sem tök
hafa á að koma hjólandi, gang
andi eða taka strætó. Um fram
allt er gott að vera tíman lega
því þá gefst tími til þess að
ganga lengri vegalengd ef
leggja þarf langt frá Krik
anum.“ Þetta mættum við mörg
hafa í huga þegar ýmsir við
burðir eru sóttir, hvort sem um
er að ræða íþróttakappleiki eða
aðra menningarviðburði.
Ég ætla svo að vona að iðk
endur og áhangendur FH láti
tilfallandi skort á bílastæða
fram boði í Kaplakrika ekki
hafa áhrif á aðsókn sína á ein
staka íþróttaviðburði enda er ég
sannfærð um að stuðningsmenn
FH setji það ekki fyrir sig þegar
á hólminn er komið.
Höfundur er formaður
skipulags og byggingarráðs
Hafnarfjarðar.
Bílar, íþróttir og umferðaröryggi!
Sigríður Björk
Jónsdóttir
SJÚKRAÞJÁLFARINN HEILSURÆKT
Tækjasalur
Bjartur og vel búinn tækjasalur
Kvennaleikfimi
Hressileg leikfimi fyrir konur á besta aldri
Hópþjálfun fyrir hjarta- og lungnasjúklinga
Fjölbreytt þjálfun fyrir hjarta- og lungnasjúklinga,
eftirlit og fræðsla (hefst 12. september)
Opið: mánudaga – föstudaga kl. 8 - 19
laugardaga kl. 9 - 12
Skráning og nánari
upplýsingar
í síma 555 4449
Strandgata 75
220 Hafnarfjörður
www.sjukrathjalfarinn.is