Fjarðarpósturinn - 01.09.2011, Qupperneq 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 1. september 2011
Viltu vinna ferð fyrir tvo til Tékklands?
Mánaðarlega eru flottir vinningar dregnir út, m.a.
10.000 kr. bensínúttekt, bíómiðar, DVD diskar o.fl.
Í árslok fær einn heppinn viðskiptavinur helgarferð
fyrir 2 til Prag, höfuðborgar Tékklands
Allir viðskiptavinir sem koma með ökutækin sín í
aðalskoðun á árinu 2011 fara sjálfkrafa í pottinn
Það er ódýrast að
koma með bílinn í
skoðun hjá Tékklandi
Samanburður á verði aðalskoðunar samkvæmt
vefsíðum fyrirtækjanna 22. júní 2011
Tékkland
Aðalskoðun
Frumherji
7.945
8.940
8.400
8.600
9.290
9.500
Undir 3.500 kg. Yfir 3.500 kg.
...eða eitthvað annað skemmtilegt sem við drögum út mánaðarlega
ReykjavíkurvegiHoltagörðumBorgartúni Sími 414 9900 www.tekkland.is
Sigga & Timo-mótið, veglegt
opið golfmót fyrir konur, verður
haldið á Hvaleyrarvelli Golf-
klúbbsins Keilis í Hafnarfirði
laugardaginn 3. september nk.
Þetta er eitt af allra vinsælustu
og fjölmennustu kvenna golf-
mótum ársins á landsvísu, enda
hefur verið fullbókað í það allar
götur síðan 2003 er fyrsta mótið
var haldið.
Bakhjarl mótsins er hafnfirska
skartgripaverslunin Sigga og
Timo og eru verðlaunin því
ekki af verri endanum, en boðið
er upp á verðlaun fyrir efstu
þrjú sætin sem og fyrir að verða
næst holu eftir teighögg á öllum
par-3 brautum vallarins.
„Fyrir átta árum hafði Golf-
klúbburinn Keilir samband við
mig og ég spurð hvort ég vildi
ekki standa að kvennamóti. Ég
vissi nánast ekkert út á hvað
þetta gekk, enda hef ég ekki
verið í golfi sjálf. Nú, átta árum
síðar, hef ég fengið að kynnast
íþróttinni betur. Það er ákaflega
gaman að taka þátt í þessu og
samstarfið við Keili og kvenna-
nefnd klúbbsins hefur verið
virkilega gott,“ segir Sigga, eða
Sigríður Anna Sigurðardóttir,
sem þó hefur ekki sjálf tekið sér
kylfu í hönd. Þess í stað hand-
leikur hún og vinnur skartgripi
úr gulli, silfri o.fl. ásamt eigin-
manni sínum, Timo Salsola frá
Finnlandi.
Sigga segir vinsældir mótsins
slíkar að hún fái oft spurningar
og fyrirspurnir frá áhugasömum
golfkonum með löngum fyrir-
vara, jafnvel í ársbyrjun, og hún
spurð hvenær mótið verði,
hvenær skráning hefjist og
fleira því um líkt.
Ekki er það til að draga úr
vin sældum mótsins að í móts-
lok er boðið upp á ljúffenga
smá rétti í klúbbhúsi Keilis, sem
út búnir eru af Brynju veitinga-
konu á Hvaleyri, og þeim skol-
að niður með hvítvíni. Þeir
kepp endur, sem ekki náðu sér á
strik í baráttunni við hvíta bolt-
ann, eiga þá enn von um glaðn-
ing, því dregið er úr skorkortum
og heppnir mótsgestir leystir út
með skartgripum og öðrum
mun um. „Þar er yfirleitt mjög
vel mætt og mikil stemmning
sem myndast þá, sannkölluð
konukvölds-stemmning,“ segir
Sigga.
Fyrirtæki Siggu og Timo
verður átján ára í nóvember.
Fyrst voru þau í tvö ár á Rafha-
reitnum, en fóru þá yfir í
Strandgötu 19, þar sem fyrir-
tækið hafði aðsetur í fjórtán ár.
Síðustu tvö árin hafa þau haldið
til á Linnetsstíg 2. „Núna er allt
á sama stað hjá okkur. Það er
notalegt að heyra smíðahljóðin
fram í verslun, en áður fyrr voru
smíðaverkstæðið og verslunin
aðskilin,“ segir Sigga, sem
kveðst hlakka mikið til að sjá
Hvaleyrarvöll þétt skipaðan
golf konum, jafnt fastagestum
sem nýjum andlitum. „Svo er
bara að panta gott veður,“ segir
hún.
Eitt fjölmennasta kvennamót landsins
Sigga & Timo-golfmótið á Hvaleyri á laugardaginn
Golf nýtur mikilla vinsælda og Hvaleyrarvöllurinn líka.
Víðistaðakirkja
Tónlistarnámskeið fyrir ungbörn
6 vikna krílasálmanámskeið
hefst þriðjudaginn 20. september nk.
Sjá nánar á heimasíðu kirkjunnar.
Þátttökugjald kr. 3.000,-
Skráning í síma 565-2050 og netfangi
arngerdur.arnadottir@kirkjan.is
www.vidistadakirkja.is
Sunnudaginn 4. september
n.k. býðst lítið og óvönum
veiðimönnum að koma í
Hlíðarvatn í Selvogi og renna
fyrir silung í boði
veiðiréttarhafa. Á staðnum
verða vanir veiðimenn frá
Stangaveiðifélagi Hafnarfjarðar
og fleiri stangaveiðifélögum
við vatnið sem gefa munu góð
ráð og tilsögn.
Hlíðarvatn er ákaflega gjöfult
bleikjuvatn i aðeins 45 mín.
fjarlægð frá Hafnarfirði, ekið
sem leið liggur fram hjá
Kleifarvatni til Krýsuvíkur og
svo austur á bóginn í átt til
Þorlákshafnar. Bleikjan í
Hlíðarvatni er annálaður
matfiskur en einungis má veiða
á spún eða flugu, beita er
bönnuð.
Ungir veiðimenn sérstaklega
velkomnir og foreldrarnir að
sjálfsögðu með.
Opið hús í Hlíðarvatni