Fjarðarpósturinn - 01.09.2011, Page 14
14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 1. september 2011
Komið
í karate!
Haustnámskeiðin eru að hefjast aftur eftir sumarið.
• Byrjenda- og framhaldsnámskeiðin hefjast mánudaginn 5. september
Tekið verður við byrjendum út septembermánuð.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu deildarinnar www.kdh.is
Óskum eftir að ráða 2 starfsmenn í 50%
stöður hjá Félagsþjónustunni í Hafnarfirði.
Störfin felast í að sjá um skömmtunareldhús
í einu af mötuneytum fyrir eldri borgara í
Hafnarfirði.
Gerð er krafa um jákvætt viðmót, mannúðlegt
við horf og hæfileika til lipurra samskipta. Sjálf
stæði og frumkvæði í starfi eru miklir kostir.
Við leitum að einstaklingum með menntun og/
eða reynslu af vinnu í mötuneytum eða með
mikinn áhuga á að starfa með eldri borgurum.
Um dagvinnu er að ræða.
Laun fara eftir kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar
og Verkalýðsfélagsins Hlífar.
Upplýsingar um störfin veita Sjöfn Guðmundsdóttir
fulltrúi heimaþjónustu og Kolbrún Oddbergsdóttir
deildarstjóri í síma 585 5700.
Umsóknum skal skila til
Félagsþjónustunnar í Hafnarfirði
Strandgötu 33
220 Hafnarfirði
ViltU Vinna með
eldri borgUrUm?
Þessa vikuna fer fram nám
skeið i blaðamennsku í sjálf
boðaliðastarfi „Young Corre
spontent“. Námskeiðið er hald
ið i borginni Vilanova i La
Geltrú sem er á suðurströnd
Spán ar. Tólf ungmenni frá 10
lönd um taka þátt í þessu nám
skeiði sem haldið er af sjálf
boðaliðasamtökunum Catal
unya Voluntària, en verkefnið
er styrkt af Evrópu unga fólks
ins. Smári Guðnason er fulltrúi
Banda lags íslenskra skáta á
nám skeiðinu. „Markmiðið með
þessu námskeiði er að þjálfa
ungmenni í að koma fréttum og
upplýsingum á framfæri og þá
sérstaklega í tengslum við sjálf
boðaliðastarf í Evrópu,“ sagði
Smári í samtali við Fjarðar
póstinn en Smári hefur unnið í
afleysingum á Fjarðarpóstinum.
„Hér lærum við grunninn í
fjöl miðlamennsku, þ.e. að
skrifa fréttir, taka viðtöl og
einn ig hvernig hægt er að nota
sam félagsmiðla á borð við
Face book til að koma upp lýs
ingum á framfæri. Hópurinn
hefur einnig það verkefni að
útbúa upplýsingapakka og leið
beiningar fyrir þá sem vilja
ger ast ungir fréttaritarar í sjálf
boðaliðastarfi. Það er von okkar
sem erum hér og skipuleggjenda
að fleiri sjálfboðaliðar taki að
sér að dreifa boðskapnum um
sjálfboðaliðastarf svo hægt sé
að auka það til muna í Evrópu.“
Ungir blaðamenn í námi á Spáni
Ekki amaleg aðstaða við að
læra blaðamennsku á Spáni.
Haustdagskrá Klifsins
fræðslu seturs í Garðabæ er upp
full af skapandi frístundanám
skeiðum fyrir fólk á öllum aldri.
Hafnfirðingar og Álftnesingar
eru sérstaklega boðnir velkomnir
á námskeiðin sem hefjast í
september.
Meðal nýjunga á haustönn
verður fjölbreytt úrval af barna
og unglinganámskeiðum. Má
þar nefna; leikjaforritun fyrir
börn og unglinga í samvinnu við
sprotafyrirtækið Skemu, vísinda
námskeið, stutt myndagerð,
skap andi hekl og prjón, skúlptúr,
leir mótun, skrautritun, gotneska
let ur gerð og töfrabragðanámskeið
í anda Harry Potter. Einnig verð
ur boðið upp á leiklistarnámskeið
í samvinnu við Leynileikhúsið
og myndlistarnámskeið í sam
vinnu við tvíeykið Villta Kýrin
eins og á síðasta starfsári.
Fullorðnir geta valið úr list og
handverksnámskeiðum, útivist
og hreyfingu, músík og menn
ingu og tölvu og tækni nám
skeiðum. Ábendingum um nám
skeið er hægt að koma áleiðis á
klifid@klifid.is
Fræðslusetur
Klifið fræðslusetur hóf starf
semi á síðasta ári. Með stofnun
Klifsins er ætlunin að skapa vett
vang þar sem fólk getur komið
saman og lært eitthvað nýtt og
framandi undir leiðsögn fagfólks.
Klifið hefur fengið til liðs við sig
úrvals leiðbeinendur sem kynntir
eru á www.klifid.is. Viðtökurnar
fyrsta starfsárið voru mjög góðar.
Ánægðir viðskiptavinir komu
aftur á námskeið og tóku vini og
fjölskyldumeðlimi með sér.
Flest námskeið á vegum Klifs
ins fara fram í Sjálandsskóla við
Löngulínu 8. Barna og ungl
inga námskeiðin dreifast þó um
grunnskólana í Garðabæ, þar
sem framboðið á námskeiðum er
mjög fjölbreytt.
Hægt er að skrá sig á
námskeiðin á vef Klifsins www.
klifid.is Eins er tekið á móti
skráningum í síma 858 1543.
Allir eru velkomnir í Klifið.
Hægt er að finna Klifið á
Facebook
Upplifið Klifið – lærið og lifið!
Skapandi frístundanámskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna
Frá einu af fjölmörgu námskeiðum Klifsins.
Lausir hundar þrátt fyrir skýlaust bann
Skýr ákvæði er í reglum um
hundahald að hundar skulu
hafðir í taumi innanbæjar en
svo virðist sem margir hunda
eigendur kjósi að virða þetta
ekki. Dæmi eru um að eldra
fólk fari ekki út vegna stórra
lausra hunda og börn geta orðið
mjög hrædd hlaupi ókunnugur
hundur upp að þeim. Vitað er
að slík atvik hafa haft veruleg
áhrif á börn sem hefur gert
þeim erfitt að umgangast hunda
síðar.
Þessir hundar sáust lausir í
Setbergi tvo daga í röð.