Fjarðarpósturinn - 01.09.2011, Side 16
16 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 1. september 2011
Kvennakór
getur bætt við
sig konum
Í kvöld, fimmtudaginn 1.
sept ember kl. 19 fara fram
radd prófanir hjá Kvennakór
Hafn arfjarðar. Raddprófun fer
fram í stofu 2 í Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar. Kórinn leitar að
hress um og áhugasömum
konum í allar raddir, kórreynsla
er ekki skilyrði. Stjórnandi
kórsins er Erna Guðmundsdóttir
söngkennari við Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar. Söngelskar kon
ur eru hvattar til að mæta og
kynna sér starfsemi kórsins.
Nánari upplýsingar má einnig
finna á heimasíðu kórsins
www.kvennakorinn.org
Rúm fyrir nýja
félaga í
Lúðrasveitina
Vetrarstarf Lúðrasveitar
Hafnarfjarðar hefst af fullum
krafti mánudagskvöldið 5.
september. Starfið verður með
hefðbundnum hætti í vetur; með
vikulegum æfingum, tónleikum
að hausti og vori, tilfallandi
æfingabúðum og innan sveitar
fögnuðum. Einnig er stefnt að
tónleikaferð næsta sumar.
Lúðrasveitin er skipuð um 25
félögum á öllum aldri, en alltaf
er rúm fyrir nýja félaga eða
gamla félaga sem vilja dusta
rykið af lúðrunum. Klarinettu
og slagverksleikarar eru sér
staklega velkomnir.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar æfir
í Tónkvísl, íþróttahúsinu við
gamla Lækjarskóla í Hafnar
firði, öll mánudagskvöld milli
klukkan 20 og 22. Stjórnandi
lúðra sveitarinnar er Rúnar
Óska rs son, klarinettuleikari
Tristram og
Ísönd frum
sýnt í Gaflara
leikhúsinu
Leikfélagið Sýnir æfir nú af
kappi í Gaflaraleikhúsinu, nýja
leikgerð af riddarasögunni um
Tristram og Ísönd og þeirri
óbærilegu ást sem þau báru
hvort til annars og þeim grimmu
örlögum sem stíuðu þeim í
sundur. Leikstjóri er Ármann
Guðmundsson en hann semur
einnig leikgerðina ásamt
Guðrúnu Sóley Sigurðardóttur.
Sýnt verður í Gaflaraleikhúsinu
við Víkingastræti og verður
frumsýning 10. september. Ein
ungis verða 5 sýningar.
Sagan af Tristran og Ísönd er
ein þekkasta ástarsaga miðalda
en hún segir frá riddaranum
Tristram, systursyni Markis
Englandskonungs, sem fengið
er það verkefni að vinna ástir
Ísöndar Írlandsprinsessu fyrir
hönd frænda síns. Ekki vill þó
betur til en svo að Tristram og
Ísönd fella hugi saman og
forboðið ástarsamband þeirra
hefst, þrátt fyrir að Ísönd giftist
Markis. Öfl innan hirðarinnar
sitja að svikráðum og sjá sér
leik á borði að notfæra sér
ástandið sér til framdráttar.
Leikritið er mikið sjónarspil,
mikið lagt í alla umgjörð og
tónlist spilar veigamikið hlut
verk í sýningunni. Ljósa hönn
uður er Benedikt Þór Axels son,
búninga hannar Dýr leif Jóns
dóttir, leikmuni gerir Jón Örn
Bergsson og hannar hann einn ig
leikmynd ásamt Ár manni
Guðmundssyni. Tón listin í
verk inu er samin af leik hópnum,
leikstjóra og Birni Thor arensen
sem jafnframt hefur yfirumsjón
með útsetn ingum.
Leikfélagið Sýnir var stofnað
af ofvirkum áhugaleikurum sem
sóttu fyrsta ár Leik listarskóla
Bandalags íslenskra leikara árið
1997.
Miðasala Gaflaraleikhússins
er opin virka daga kl. 16 til 18
sími miðasölu er 565 5900 og
sími í hópasölu er 860 7481
Einnig er hægt að panta miða í
midasala@gaflaraleikhusid.is
og á midi.is
Sjötti bikar
meistara titill
Sigurþórs
Bikarmeistaratitilinn í skeet
fellur þeim í skaut sem hefur
staðið sig best á landsmótum
sum arsins. Þess vegna er bikar
meistaratitilinn lang eftirsóttasti
titill í skeet enda gefur hann
ótvírætt til kynna hver sé besti
skotmaður ársins. Þrátt fyrir að
lenda í þriðja sæti á síðasta
bikarmóti sumarsins vann Sig
ur þór Jóhannesson SÍH bikar
meistaratitilinn 2011. Þar sem
Sigurþór er nú að vinna bikar
meistaratitilinn í sjötta sinn á sjö
árum þarf enginn að velkjast í
vafa um að Sigurþór er sterk asti
skotmaður í skeet á Íslandi frá
upphafi. Þess má geta að Sigur
þór er einnig Íslands meist ari í
einstaklings og liða keppni
ásamt Meistaraflokki 2011. En
það var Pétur Gunn arsson SÍH
sem varð í fyrsta sæti á mótinu
með 114 dúfur eftir venjulega
keppni og 23 í úrslit um.
Til að kóróna árangur félaga
úr Skotíþróttafélagi Hafnar
fjarðar sigraði sveit félagsins
sveitakeppnina en í henni voru
Sigurþór Jóhannesson, Pétur
Gunnarsson og Hörður Sigurðs
son.
Skátafélagið Hraunbúar fékk
á mánudaginn gæðamatsviður
kenn ingu Bandalags íslenskra
skáta. Gæðamatsviður kenn
ingin er kölluð „Skátafélag á
réttri leið“ og felur það í sér að
félagið hefur unnið og fram
kvæmt gæðamat á skipulagi
félags ins, starfi félagsins, fjár
málastjórn, fræðslumálum,
mennt un skátana, sett sér stefnu
í friðar, umhverfis og for
varnarmálum, aukið samstarf
við heimili og önnur skátafélög.
Það var Bragi Björnsson
skáta höfðingi sem afhenti
Guðjóni Rúnari Sveinssyni
félagsforingja skjal þessu til
sönnunar að viðstöddum Guð
mundi Rúnari Ólafssyni, bæjar
stjóra og skáta til margra ára,
ásamt fjölmörgum skátum.
Þetta er mikil viðurkenning
fyrir þetta rótgróna félag en
einungis þrjú íþróttafélög í
Hafnarfirði hafa fengið sam
bærilega viðurkenningu frá ÍSÍ.
Mikið var um dýrðir við
athöfnina, Skátakórinn söng,
bæjarstjórinn flutti ávarp og
boðið var upp á rjúkandi kakó
og kökur.
Hraunbúar á réttri leið...
Þriðja skátafélagið sem fær gæðamatsviðurkenningu
Bragi skátahöfðingi, Guðjón félagsforingi og Guðmundur Rúnar
bæjarstjóri kampakátir við afhendingu á gæðmatsviðurkenningunni.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Deiglan - Dagskráin á næstunni
Opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10-14
Deiglan Strandgötu 24 Sími: 565 1222 deiglan@redcross.is raudikrossinn.is/hafnarordur
Deiglan er opin öllum sem hafa áhuga og
atvinnuleitendur eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Mánudaginn 5. sept. kl. 10: List og handverk
Föstudaginn 9. sept. kl. 12 Matarlist, tælensk matargerð.
Mánudagar
Fastir dagskrárliðir Deiglunnar
Miðvikudagar kl.10 -14 Gönguhópur og menning
Föstudagar kl.10 -12 Þjóðmálahópur og matarlist
kl.10 -14 List og handverk
Reglulegar sýningar Kvik
myndasafns Íslands hefjast á
þriðju daginn kl. 20 í Bæjarbíói
sem er sýningabíó safnsins. Sýn
ingarnar verða eins og áður á
þriðjudagskvöldum og laugar
dags eftirmiðdögum. Gefin hef ur
verið út vönduð sýningaskrá þar
sem fjallað er um myndirnar sem
sýndar verða í vetur frá septem
ber og fram í maíbyrjun.
Að þessu sinni er dagskrá vetr
arins byggð upp þannig að í sér
hverjum mánuði verða sýnd ar
kvikmyndir frá einu tilteknu ári
undir yfirskriftinni: Minn ingar
þjóðar. Eitt af höfuð verk efnum
safnsins er að varðveita minn
ingar þjóðarinnar í lifandi mynd
um og nú gefst tækifæri til að lifa
sig inn í fortíðina með sérstökum
hætti. Myndavalið fyr ir hvert ár
samanstendur af ís lenskum
kvikmyndum, heim ildar mynd
um og bíómyndum, sem fram
leiddar voru á viðk omandi ári,
erlendum myndum sem voru
sýndar hér heima á ár inu og
er lendum kvik mynd um, sem
framleiddar voru á ári nu. Árin
sem orðið hafa fyrir valinu og
upptalin í þeirri röð sem þau
koma fyrir í dagskránni eru
þessi: 1968 (sept.), 1921 (okt.),
1952 (nóv.), 1983 (des.), 1965
(jan.), 1939 (feb.), 1947 (mars),
1967 (apríl). Dags kránni lýkur í
byrjun maí á syrpu íslenskra
kvikmynda sem spanna nokkra
áratugi síðustu aldar en eru
bundnar við einn stað á landinu,
sem að þessu sinni er Akureyri.
Starfsárið byrjar með sýningu
á japönsku kvikmyndinni Oni
baba, sem er mögnuð lýsing á
lífsbjargarhvöt mannsins og
byggir að hluta á fornri búdd ískri
þjóðsögu um mátt and lits grím
unnar. Myndin var sýnd í Bæjar
bíói árið 1968 og var sögð vera
fyrir taugasterkt fólk.
Sýning fyrir taugasterkt fólk í Bæjarbíói