Fjarðarpósturinn - 13.12.2012, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. desember 2012
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242
Allan sólarhringinn
Komum heim til
aðstandenda ef óskað erSverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stofnað 1995
Stapahraun 5 - 220 Hafnarfjörður
www.uth.is - uth@simnet.is
sími: 565-9775
Hafnfirska
fréttablaðið
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Það er athyglisvert að ekki
virðist vera á hreinu hvort lagaleg
eða samningsbundin ábyrgð Hafn
ar fjarðarbæjar sé á lífeyris sjóðs
greiðslum úr Adeild Eftir launa
sjóðs starfsmanna Hafnar fjarðar
bæj ar til greiðenda í sjóðinn ann
arra en bæjarstarfsmanna. Starfsmenn Sparisjóðs Hafn
ar fjarðarbæjar, síðar Byrs fengu að greiða í sjóðinn og nú
er komið að skuldadögum og ljóst að Eftirlauna sjóðurinn
á ekki fyrir skuldbindingum sínum. Það er enn undarlegra
að það virðist ekki vera mikill áhugi bæjaryfirvalda að
kanna það nánar en það hlýtur að skipta bæjarbúa máli
hvort greitt sé utan skyldu eða ekki þegar fjárhagsstaða
bæjarins er ekki betri en hún er. Vart getur það verið
eðlilegt hlutskipti sveitarfélags að taka ótakmarkaða
ábyrgð á lífeyrisgreiðslum óskyldra aðila. Bæjarbúar
eiga heimtingu á að gerð séu grein fyrir hvernig það
megi vera og ef einhver minnsti vafi leiki á lögmæti þess
hlýtur að vera eðlilegt að fá dómstóla til að skera úr um
það. Jafnframt er eðlilegt að það sé uppi á borðinu
hverjir komu Hafnarfjarðarbæ í slíka stöðu á sínum tíma.
Var heimilt að skapa bæjar félaginu slíka skuldbindingu?
Ýmsir lífeyrissjóðir hafa farið illa og bæjarbúar hafa
tapað lífeyrisréttindum. Ekki hefur Hafnarfjarðarbær
kom ið þeim til hjálpar.
Nýlega var nafni á skipulagssvæðinu Vellir 7 breytt í
Hádegishlíð og er nafnið nú hluti af deiliskipulags tillögu.
Það hlýtur að vera óheppilegt að útbúa annað hverfi þar
sem göturnar fá endinguna hlíð eins og í Mosahlíðinni og
meira að segja er gert ráð fyrir að tvær Sóleyjarhlíðar
verði í bænum. Ekkert hverfi hefur endinguna dalur og
tilvalið að nýta gamalt kennileiti Flókadalur sem nafn á
hinu nýja hverfi og heiðra þar HrafnaFlóka í leiðinni.
Geta sumir dalbúanna þá búið við Sóleyjardal.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
HelgiHald í söfnuðum Þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði
Ástjarnarkirkja Hafnarfjarðarkirkja Víðistaðakirkja
www.astjarnarkirkja.is www.hafnarfjardarkirkja.is www.vidistadakirkja.is
Sunnudagur 16. desember
Barnastarf kl. 11
Kveikt á þriðja aðventukertinu í kirkjunni,
söngur, saga og bæn. Piparkökur málaðar.
Prestur sr. Þórhildur Ólafs, umsjónarmaður barnastarfs
Nína Björg Vilhelmsdóttir djákni, gítarleikari Einar Örn
Björgvinsson. Kaffi, djús og kex.
Jólavaka við kertaljós kl. 20
Ræðumaður Kristín Steinsdóttir rithöfundur.
Barbörukórinn og Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju
flytja fjölbreytta aðventu- og jólatónlist.
Stjórnendur eru Guðmundur Sigurðsson organisti, Helga
Loftsdóttir kórstjóri og Anna Magnúsdóttir píanóleikari.
Gunnar Gunnarsson leikur á flautu. Séra Þórhildur Ólafs
leiðir stundina. Sjá nánar í auglýsingu á bls. 7.
3. sunnudagur í aðventu, 16. desember
Fjölskylduhátíð kl. 11
Börn í 6-9 ára starfinu flytja helgileik.
Barna- og Unglingakór Víðistaðakirkju
syngur undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur.
Heitt súkkulaði og smákökur
í safnaðarheimilinu á eftir.
Verið velkomin!
Biblíuleg íhugun
á þriðjudögum kl. 18
Lestur Biblíunnar og bæn tengd saman
í notalegri kyrrðar- og íhugunarstund.
Sunnudagur 16. desember
Jólaleikur kl. 11
Brúðuleikhúsið Tíu fingur
sýnir leikritið Jólaleik.
Áhorfendum gefst kostur á
að taka þátt í hluta sýningarinnar.
Hressing og samfélag á eftir.
Foreldramorgnar
á þriðjudögum kl. 10-12.
Pantið tímanlega auglýsingapláss í jólablað
Fjarðarpóstins fimmtudaginn 20. desember!
www.frikirkja.is
Fríkirkjan
Sunnudagur 16. desember
Jólaball
í Jólaþorpinu kl. 11
Jólaball Fríkirkjunnar verður í
Jólaþorpinu á Thorsplani kl. 11.
Dansað í kringum jólatréð.
Hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn,
Grýla og jólasveinn líta við
Vertu velkomin(n)
í Fríkirkjuna!
Ljósin verða afgreidd frá og með 16. desember
til og með 23. desember.
Opið kl. 13-19 alla daga
Lokað aðfangadag.
Jólaljósin
í Hafnarfjarðarkirkjugarði
Jólaljósin ehf.
sími 692 2789
Ingibjörg Jónsdóttir