Fjarðarpósturinn - 02.05.2013, Side 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 2. maí 2013
Fjarðarpósturinn
vettvangur fyrir skoðanaskipti bæjarbúa
www.facebook.com/fjardarposturinn
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242
Allan sólarhringinn
Komum heim til
aðstandenda ef óskað erSverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
RAGNAR SCHEVING
ÚTFARARÞJÓNUSTA
ÓLÖF HELGADÓTTIR
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HÁLFDÁN HÁLFDÁNARSON
ÚTFARARSTJÓRI
FRÍMANN ANDRÉSSON
ÚTFARARSTJÓRI
FJÖLSMÍÐ
LÍKKISTUVINNUSTOFA
Síðan 1993
Stapahraun 5
220 Hafnarfjörður
www.uth.is
uth@simnet.is
565-9775
Hafnfirska
fréttablaðið
Hafnarfjörður á engan þing
mann. Þessi 27 þúsund manna bær
og þriðja stærsta sveitarfélag
landsins ætti í krafti stærðar sinnar
að eiga um 5 þingmenn. Það má
því segja að jafnræðinu sé verulega
raskað. Framsóknarflokkurinn
hlýt ur að teljast sigurvegarinn ef hægt er að útnefna
sigur vegara, fær 111% fleiri þingsæti en síðast. Samfylk
ingin galt afhroð og tapaði 55% þingsæta sinna og litlu
betri var árangur Vinstri grænna sem tapaði 50% þing
sæta sinna. Sjálfstæðisflokkurinn nær á ný að verða
stærstur en árangur hans er sá næst versti í sögu flokksins
en þó fjölgaði þingsætum um 19%.
Hrun Samfylkingarinnar er í raun stórfrétt kosninganna
og ljóst að illa gengur að sameina skoðanir þeirra sem
teljast vera vinstra megin við Sjálfstæðisflokkinn. Fólk
sem gefst upp á að hafa áhrif eða komast til valda stofnar
nýja flokka og þeir sem jafnvel eru með líkar skoðanir
kroppa augun hvor úr öðrum og þingsætin lenda hjá allt
öðrum flokkum. Flokksforustan á mikið verk fyrir
höndum og formannsskipti sem komu allt of seint höfðu
lítil áhrif til árangurs hjá flokknum. Þó sátt virðist ríkja
hjá VG þá er allt tal um varnarsigur hlægilegur þegar
flokkurinn tapar helmingi fylgis síns. Það er til lítils að
velja sér skoðanakönnun til að bera sig saman við. Þá
hefði Samfylkingin líka geta sagst hafa staðið í stað.
Hafnfirsk bæjarpólitík er greinilega ekki að geta af sér
áhugaverða þingkandidata og þeir fáu sem í framboði
voru, framarlega á lista, náðu ekki athygli fólks og enn
síður atkvæðum og sitja því eftir með sárt ennið.
Hástökkvarinn, Sigmundur Davíð hefur fengið
stjórnarmyndunarumboðið og þá er að sjá hvar þarf að
gefa eftir. Það er ekki nóg að lofa, það þarf að standa við
loforðin.
Guðni Gíslason ritstjóri.
HelgiHald í söfnuðum Þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði
Ástjarnarkirkja Hafnarfjarðarkirkja Víðistaðakirkja
www.astjarnarkirkja.is www.hafnarfjardarkirkja.is www.vidistadakirkja.is
Sunnudagur 5. maí
Messa
og barnastarf kl. 11
Sameiginlegt upphaf.
Leiðtogi barnastarfs er Nína Björg
Vilhelmsdóttir djákni.
Henni til aðstoðar er Margrét Heba.
Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs.
Kaffi, kex og djús í Ljósbroti Strandbergs,
safnaðarheimilis Hafnarfjarðarkirkju.
Sunnudagur 5. maí
Blómamessa kl. 11.00
Vorhátíð Víðistaðakirkju!
Stúlknakór Víðistaðakirkju syngur
undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Eftir guðsþjónustu á kirkjutorginu:
Grill og leikir.
Verið velkomin!
Sunnudagur 5. maí
Óvissuferð
sunnudagaskólans
Lagt verður að stað með rútu kl. 10.30 frá
kirkjunni og komið aftur til baka um kl. 13.15.
Engin guðsþjónusta verður í kirkjunni.
Starf eldri borgara
miðvikudaginn 8. maí kl. 13.30-15.30
Vorferð eldri borgara
fimmtudaginn 16. maí. Allir velkomnir.
Áhugasamir hafi samband við sóknarprestinn.
Sjá einnig www.astjarnarkirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Prentsmi›jan Steinmark
Stofnað 1982
Við prentum sálmaskrár
eftir þínum óskum!
Dalshrauni 24 • 220 Hafnarfir›i • www.steinmark.is
nnn nnn nnn nnn
nnn nnn nnn
nnn nnn nnn nnnnnn nnn nnn
nnn
nnn
nnn
nnn
nnn
nnn
nnn
nnn nnn
nnn nn
n
nnn nnn
nnn
nnn nnn nnn nnn
nnn nnn nnn
Hafðu samband
í síma 555 4855
Sálin á Ásvöllum
Sálin slær upp vorhátíð í hinum hýra Hafnarfirði
laugardaginn 11. maí eins og segir í tilkynningu frá
hljómsveitinni. Þangað eru vitaskuld allir velkomnir,
ekki síður utan en innanbæjarfólk. Sálverjar hyggjast
leika á als oddi og flytja öll sín þekktustu sönglög.
Forsala miða verður í Símabúðinni Firði frá 8. maí til
10. maí. Miðaverð: 3.000 í forsölu, 3.900 við hurð. Á
leikdegi verður húsið opnað kl. 22 og aldurstakmark
verður 20 ár. Hlakka sálarfélagar til að sjá Hafnfirðinga
með góða skapið í farteskinu og sól í sinni.
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn