Prentarinn - 15.11.1985, Side 1
prentarinn
■ MÁLGAGN FÉLAGS BÖKAGERÐARMANNA
FELAGSBREF-3
Bfélag
bókageröar-
manna
NÓVEMBER 1985
Abm. MAQNIÚS EINAR SIGURÐSSON
SAMNINGAMAL - ATVINNUÖRYGGI
I síöasta félagsbréfi er fjallað um breytingar varðandi vinnslu
þinggagna og bent á mikilvægi þess að taka á þessum málum.Frá-
farandi Trúnaðarmannaráð félagsins ákvaó að reyna yrði til þrautar
aö gera samkomulag við Alþingi um að það væru félagsmenn i FBM
sem önnuðust setningu þinggagna, eins og þeir hafa alltafgert.
Alþingi, eða hið opinbera, hefur hingað til ekki talið sér fært
aö gera um þetta samkomulag við FBM, þó svo að fram hafi komið
i hugmyndum félagsins aó hvorki væri ætlunin að krefjast þess
að það fólk sem fyrir er i störfum skipti um stéttarfélag né
heldur að breyta þeim undanþágureglum sem Alþinginýtur i vinnu-
deilum. Fyrst og fremst var gerð krafa um að við nýráðningar
yrði viðkomandi félagi i FBM, væri hann þaö ekki fyrir, og að
unnið væri í samráói og samstarfi vió starfsfólk Rikisprentsm.
Gutenberg. Þaö hefur þegar komið í ljós að Alþingi sækist eftir
þjálfuðu fólki úr FBM, þó það vilji ekki viðurkenna félagsaöild
þess, en nú hefur einn félagsmanna FBM verið ráðinn til þessara
starfa á Alþingi.
I ljósi þess aö Alþingi virðist ekki vilja gera um þetta sam-
komulag og í samræmi við ákvörðun Trúnaðarmannaráðs FBM var á-
kveðið að láta til skarar skriöa og beita samningsákvæðum og
banna framhaldsvinnslu á þeim texta sem settur er á vegum Al-
þingis frá og með n.k. fimmtudegi, 14. nóvember 1985, hafi þá
ekki tekist að gera um þessi mál samkomulag. Áöur en þetta bann
kemur til framkvæmda telur stjórn félagsins nau&ynlegt að halda
félagsfund. Þannig verður afstaða félagsmanna ljós i þessu máli
sem og afstaða þeirra til hugmynda sem fram hafa komið um að
eölilegra sé aö taka samtimis fyrir alla þá aðila semvinna meó
texta á þann hátt sem hér um ræðir.
Eins og fram hefur komið er hugmynd stjórnar og Trúnaóarmanna-
ráðs hins vegar súáð taka fyrir hvert einstakt tilvik i senn.
Hvað sem verður ofaná í þessum málum er naiúsynlegt aó sem flest-
ir félagsmenn taki afstöðu og móti stefnu félagsins Rétt er að
það komi fram að þó svo kunni' að virða að þetta snerti aðeins hluta
félagsmanna, þá sem sjá um prentformagerðina, er það alls ekki
svo. Hér er á ferðinni mál, sem snertir atvinnuöryggi hvers og
eins einasta félagsmanns, þess vegna verða sem allra flestir aó
mæta á fundinn.