Prentneminn


Prentneminn - 14.02.1927, Qupperneq 2

Prentneminn - 14.02.1927, Qupperneq 2
2 PRENTNEMINN HVÖT Lítt skal gráta liBnar stundir. Lftid fram með sjónir skarpar. Frægð, sem er af feðrum unnin, förlast — nema starfi garpar. Æskan flýgur óðum burtu. Ellin spennir gildru sína. DauBinn getur dyrnar opnaB, drepið eitri blöndu þfna. GlottiB ef að gengur illa gegnum lífsins skerjavíti. Boðann stækkar bölvuB hræðslan. Berjist nú með Ijóssins flýti. Krampo. STARFIÐ Petta starfsár Prentnemafélagsins hefir fært mönnum heim sanninn um það, að félagið hefir eigi veriö til einskis stofnaö, því það hefir unnið töluvert á. Pað er ekki svo að skilja, að það sé ekki mörgu bótavant í félaginu, en hvernig er hægt að búast við öðru í svo ungum félagsskap? í byrjun voru allflestir nemar þannig, aö þeir vissu tæpast hvað félagsskapur var, en það held ég að þeir viti allir nú. Einn af höfuökostum þessa félagsskapar er að hann er fámennur. Sem slíkur á hann miklu betra með að ná tilgangi sín- um, heldur en ef hann væri fjölmennari. í þessu félagi geta allir lært að starfa, vegna þess, að það er svo fáment. Allir félagsmenn gætu haldið ræðu á sama fundinum. í félaginu eru nú 14 meðlimir. Það hefir haldið 11 fundi og hafa að jafnaði mætt 8 fél. á fundi. Það gæti verið betra. Prentnemar þurfa aö læra að koma vel fyrir sig orði. Ég álít að fyrsta skilyröiö fyrir því að verða ræðumaður sé að vera ófeiminn. Þess vegna held ég að gott væri fyrir nema að byrja á því, að lesa upp á fundum ritgerðir eftir sig, eða kafla úr sjaldséðum bókum. Einnig er gott að segja æfintýri sín, eða eitthvað þess háttar. Svo er smátt og smátt hægt að færa sig upp á skaftið og tala bæði um menn og málefni. Prentnemar hafa nú undir höndum hand- rit af sögu prentlistarinnar. Það er mjög merkilegt og fróðlegt, á íslenzku prent- aramáli, sem fáir þekkja, og því eðlilega torskilið nemum. Handrit þetta hefur Hallbjörn Halldórsson þýtt og léð nem- um. Það ætti að geta orðið til mikils gagns fyrir þá. Ég hygg, að þegar félag vort hefir kom- iö fótunum vel fyrir sig, geti það orðiö að miklu gagni. Mér hefir heyrst á sumum prenturum, að félagslyndir menn væru fáir af yngri mönnum í Prentarafélaginu. En ég hygg, að ef menn starfa saman, frá því að þeir koma inn í smiöjuna sem nemar, mundi það breytast. 6. janúar 1927. Stefán ögmundsson. FÉLAGAR PRENTNEMAFÉLAGSINS [Við þá félaga, sem ekki eru stofnendur, er sett merkið - en f við þá sem hafa fariö.l - Gestur Pálsson (Félagsprentsm.). Guðmundur Kristjánsson (ísafold). - Gunnar Friðfinnsson (Gutenberg). Haukur Einarsson (Gutenberg). t Hrólfur Benediktsson (Félagspr.). jóhannes M. Zoéga (Gutenberg). )ón H. Guðmundsson (Gutenberg). - )úlíus Bjarnason (Alþýðuprentsm.). Ólafur Ð. Ólafsson (Gutenberg). óskar Árnason (Acta). Pétur Stefánsson (Félagsprentsm.). Stefán Ogmundsson (Gutenberg). Thór E. Cortes (Gutenberg). - Þórður Pálsson (Alþýðuprentsm.). t Þorvaldur Kolbeins (ísafold).

x

Prentneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentneminn
https://timarit.is/publication/954

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.