Prentneminn - 14.02.1927, Page 4
4
PRENTNEMIN N
j(gT)o o o o o o o oQ
|0OOOOOOOO^
jy£)o OOOOOOOOOO o(JVj
J® O OOOOOOOOOO O0l^
Jooooooooyj
>)OOOOOOOO0'
Afmælishátíð Prentnemafélagsins
haldin í Iðnó 14. febrúar 1927, kl. 8 síðd.
Kaffidrykkja
Samkoman sett: G. L. F. Ræöa: Gunnar Einarsson
Minni félagsins: Jón H. Guðm. Gamanvísur: Oskar Guðnason
Upplestur: ABalbjörnStefánss. Upplestur: Friðf. Guðjónsson
OOOOOOOO0|J
0OOOOOOOO
\Qooooooooooo oQfí
7® O oooooooooo O0VJ;
^ooooooooQ,
yg)o OOOOOOO
Ég get ekki annað séð, en að prentlist-
ardeild hlyti að geta þrifist betur nú en
áður, þegar færri nemar voru.
Nú myndu líklega um 17 nemar sækja
skólann, ef í honum væri prentlistardeild,
í staðinn fyrir að nú sækja hann ekki nema
9. Ég sé ekki betur en að það sé nóg
verkefni fyrir eina deild, ef 17 nemar
sæktu kenslustundir. Ég sé ekki meiri á-
stæðu til að hafa sérstaka deild fyrir
bakaranema heldur en prentnema.
Stefán Ögmundsson.
ÐROT
Það hefir verið sagt, fyr en í dag, að
í syndinni væri sælan háleitust. En nú
fer að verða nokkuð erfitt að greina,
hvað er synd og hið gagnstæða. Þegar
trúarhugmyndirnar fara á ringulreið og
missa fótfestu, kemur ruglingur á dóm-
greindina, gagnvart hegðun og hugsunum.
Þegar maður er ekki nógu þroskaður
til þess, að láta hversdagslífið vera til-
breytingaríkt, verður ástríðan til umbreyt-
inga ill-þolandi. Hún teiknar ýmiskonar
töframyndir, sem teknar eru úr heimi
munaöar. Þær skifta lögun eins og skýja-
borgir skáldandans. Og í lífi borgarbúa
nútímans verður tilbreytingin æðsta boð-
orðiö. 7- G.
ÁRSREIKNINGUR
PRENTNEMAFÉLAGSINS 1926
Tekjur:
Inntökugjöld.........kr. 15.00
Mánaðargjöld . . . . . . — 63.00
Samtals kr. 78.00
G/öId:
Ýms útgjöld..........kr. 8.25
Ógreidd iðgjöld.......— 23.50
í sjóði...............— 46.25
Samtals kr. 78.00
Prentnemi rekinn. Nýlega hefir setj-
aranemmn Þorvaldur Kolb'eins, verið rek-
inn úr Prentnemafélaginu. Sök hans var
sú, að hann neitaði að borga gjöld sín
til félagsins. Tillagan, um að víkja honum
af vegum félagsins, var samþykt með öll-
um atkvæðum.
Félagar Prentarafélagsins voru um
áramótin:
8 á Akureyri,
1 á Seyðisfiröi,
2 í Vestmannaeyjum,
84 í Reykjavík.
Samkvæmt þessu eru þeir alls 95 (þar
með taldir einn aukafélagi og einn heið-
ursfélagi).
Útgefandi: Prentn ’afélagið. — Prentsmiðjan Gutenberg.