Grænlandsvinurinn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Grænlandsvinurinn - 01.01.1955, Qupperneq 2

Grænlandsvinurinn - 01.01.1955, Qupperneq 2
22 GRÆNLANDSVINURINN Janúar—marz 1955 Dr. Jón Dúason: Grænland Þrælabúðir einokunarvalds Svar fil Krisfjáns Alberfssonar i. Arngrímur Vídalín bróð- ir Jóns biskups reit mikið rit í þrem bindum um hjálp til íslendinga í Eystribyggð, um viðreisn Grænlands og hald ís- lenzkra landa í Vestur- heimi, er hann og Islend- ingar þeirra tíma, þar á meðal Þormóður Torfason, töldu enn lúta hinni norsk- dönsku krónu vegna fyrsta f undar og náms Islendinga. Dr. jón Dúason Hugmynd' Arngríms var að stofna verzlunar-, land- náms-, menningarboðs- og trúboðs-stöðvar um Græn- land og þaðan suður austurströnd Ameríku og vest- ur norðurströnd hennar meðfram Norðvestursund- inu vestur úr og opna þannig stutta sjóleið til Ind- lands og Kína. Markmið Islendinga var að tryggja hinn gamla rétt sinn með nýju landnámi, og manna frumbúana og hjálpa þeim (sbr. menningarboðið). Arngrímur fékk konung til að fallast á framkvæmd þessara ráðagerða 1703, en sjálfur ætlaði hann að standa fyrir framkvæmdum. Þá lézt hann skyndilega 1704, og kom upp kvittur um, að Danir hefðu séð fyrir honum. En á áhugöldu þeirri sem Árngrímur, Þormóður Torfason og margir aðrir íslendingar höfðu skapað flaut H&ns Egede til Grænlands, er aldrei hefði þang- að átt að koma því að með komu hans þangað var framkvæmdin tekin úr höndum íslendinga. Þegar allt gekk á tréfótum fyrir Egede og Björgvinarfélag- inu, krafðist hann þess að allir Grænlendingar yrðu gerðir að þrælum (Slaver). Grænlendingar skyldu lokaðir inni milli stöðva, og herflokkar sendir um landið, er setja skyldu byssuhlaupin fyrir brjóst hverjum manni og kref jast af honum spiks og skinna miskunnarlaust. Krafa Hans Egede um að gera alla Grænlendinga að þrælum náði fram að ganga, en með verzlunar- einokun í stað hermanna. — Síðan hefur Grænland verið féflett og Grænlendingar arðrændir af herra- þjóðinni með öllu upphugsanlegu móti. n. Kryolytnáman í Miðfjörðum er starfrækt með dönskum verkamönnum á háum launum. Útborgað- ur arður af því gróðafélagi 1946 var 9.6 milljónir danskra króna, en eflaust miklu meiri nú. Rennur þetta fé allt í ríkissjóð Danmerkur og til gæðinga Grænlandsstjórnar, en ekki inn í landssjóð Græn- lands, en öll útgjöld hans eru litlu meiri en helming- ur útborgaðs arðs af krýólítnámunni. Kol eru brotin af Grænlendingum með þrælavinnu- fyrirkomulagi. Fá Danir kohn fyrir lítið verð, til þess að hita hús sín með á Grænlandi, til sighnga milli Danmerkur og Grænlands, og svo kann nokkuð af kolunum að slæðast inn til Danmerkur. Marmari er brotinn og tilhögginn með þrælavinnu- fyrirkomulagi. Danir taka svo marmarann á litlu verði, nota hann sjálfir eða selja til annarra landa. I undirbúningi er nú mikil og gróðvænleg blývinnsla í Grænlandsóbyggðum. Ekki hefur heyrzt að þessa námu eigi að starfrækja með þrælavinnu, en engum eyri af gagni hennar er ætlað að ganga til þarfa Grænlendinga. Á Grænlandi eru feikn af kolum, auðunnum járn- málmi, kopar, ágætt og mikið asbest, eitthvert bezta grafít sem til er — og mikið af því, steinolía á svæði á stærð við Sjáland, úraníum, mikið af ágætum gull- málmi og er hann einkanlega á austurströndinni and- spænis Reykjavík. Silfur og blý er þar víða. Ivar Bárðarson ráðsmaður á Görðum segir um 1360, að á Grænlandi sé „gnógt af silfurmálmi11. Hafa hreinir óbræddir silfursteinar fundizt í Eskimóakofa í Júlí- önuvon og staðfestir þessi fundur sögu Ivars. Á Grænlandi eru margar tegundir gimsteina. Þegar ég fylgdist nokkuð með þessum málum var Grænland þriðja landi í heimi, þar sem flestir málm- ar og steinefni (mineralier) höfðu fundizt, og hafði þá enn engin vísindaleg málmleit verið gerð á Græn-

x

Grænlandsvinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Grænlandsvinurinn
https://timarit.is/publication/956

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.