Grænlandsvinurinn - 01.01.1955, Side 3

Grænlandsvinurinn - 01.01.1955, Side 3
Janúar—marz 1955 GRÆNLANDSVINURINN 23 landi. En hinar nýju, vísindalegu aðferðir létta mjög málmleit á Grænlandi. Hugmyndir hafa verið uppi um það, að láta Græn- land sjá danska iðnaðinum fyrir efnivörum. Munu Danir nú telja það sitt einkamál, hvort námumar verði starfræktar með þrælavinnu eða ekki, og þá ekki síður, hvað af ágóðanum verður. m. Til skamms tíma voru híbýli Grænlendinga íslenzk- ar veiðibúðir, og lágu menn á setunum í húðfötum (svefnpokum úr skinni) að fomum íslenzkum sið. Er þök og veggir þessara torfhúsa höfðu frosið, vom þau trekklaus og hlý. Og þar sem gólfflötur búða þessara var, eins og íslenzku baðstofanna, hærri en Svona eru húsin sem mikill hluti Grænlendinga býr í nú á tímum. gangsins og útidyranna, seig hið óhreina og þunga loft út. Nú hafa Danir talið Grænlendinga á að gera sér timburhús. Em þau samannegld úr ófelldum eða illa felldum f jölum og á stærð við væna bílskúra. Eru að meðaltali sex manneskjur í hverjum skúr, og að meðaltali koma átta kúbikmetrar loftrúms á hvern mann, og má þá gizka á, að lítið sé loftrúmið þar sem þrengst er! Gegnum þessa tréskúra er sífelld- ur næðingur og leka þeir einnig. Þar er kalt og rakt. Fólkið, sem áður hafði gnægð af skinnum er nú bæði klæðlaust sjálft og í stað húðfata áður eru nú ekki önnur rúmföt en lausir skinnbleðlar eða tuskur, alls ónóg til þess, að fólkið geti haldið á sér hita að nóttunni. Kúrir allt heimilisfólkið sig því hvað upp að öðru á setinu að nóttunni, til að halda á sér hita undir þessum alls ónógu lörfum. Er þarna háska- leg gróðrarstía fyrir berkla, húðsjúkdóma og alla smitandi sjúkdóma. Dragsúgurinn og kuldinn í þess- um vistarverum býður kvefpestum og margskonar sjúkdómum og armæðu heim. Minnst 15% af íbúum landsins hafa sýnileg ytri einkenni berkla, og berklar eru í öðru hvoru húsi. En Danir hafa annars flutt inn í landið nærfellt alla þá sjúkdóma sem fáanlegir eru í Norðurálfu. Dánar- talan á Grænlandi er milli 26 til 27 af þúsundi. Á árunum 1924—1933 er íbúatalan var 15—17 þúsund, dóu 443 manns árlega úr berklum, 448 úr öðrum smit- andi sjúkdómum, en 313 af slysförum- Á árunum 1924—1933 var annaðhvort dauðsfall meðal karla á aldrinum 15—30 ára af slysförum og á ári hverju ferst 3,7% af íbúunum á sjó. Stafar það aðallega af því að trébátar þeir sem Grænlendingar af vanefnum og vankunnáttu klambra saman enx ekki sjófærir. Hið óhentuga og ófullnægjandi fæði, svo og klæð- leysið, sem Islendingar þeir, er komizt hafa í snert- ingu við Grænlendinga geta vitnað um, hefur dregið svo dáð og kjark úr fólkinu, að það megnar hvergi nærri að afkasta fullu verki- Allt of oft er um að ræða fullkomið hungur. Þetta neyðarástand er ekki aðeins undirbúnings- ástand fyrir sjúkdóma; það er einnig svo stórkost-' legt að það lamar alveg dug og framleiðslugetu landsmanna eins og hér á landi á 18. öld. En þó er líklega hin daglega neyð og allsleysi meira á Græn- landi nú en hér var á 18. öld. IV. En svona var þetta ekki fyrir komu Dana til Græn- lands. Er Hans Egede kom til Grænlands ' skorti Grænlendinga ekki klæðnað eða mat. Landið var fullt af hreindýrum í milljónatali og fleiri veiðidýr- um. Sjórinn var fullur af selum og hvölum og fugli, en árnar fullar af laxi og silungi, og sjórinn fullur af fiski líkt og nú. — Grænlendingar þurftu þá svo lítið fyrir lífinu að hafa, að mestum tíma sínum gátu þeir varið til dansa, söngva og leikja. En þá tóku Danir að skipta sér af högum þeirra. Þeir seldu þeim byssur og sögðu þeim að drepa hrein- dýrin svo að verzlunin gæti fengið skinnin. — Hrein- dýrin voru drepin svo tugum og hundruðum þúsunda skipti árlega. Oftast hirtu Grænlendingar ekki annað en skinnið og tunguna, en stundum var ekkert af dýr- inu hirt. Er hreindýrunum hafði verið þannig útrýmt, heimtaði verzlunin, að Grænlendingar veiddu selinn, svo að verzlunin gæti fengið spik og skinn. Fisk-

x

Grænlandsvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Grænlandsvinurinn
https://timarit.is/publication/956

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.