Grænlandsvinurinn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Grænlandsvinurinn - 01.01.1955, Qupperneq 10

Grænlandsvinurinn - 01.01.1955, Qupperneq 10
30 GRÆNLANDSVTNURINN Janúar—marz 1955 Ragnar V. Sturluson: Undir frioi kóngsins i. Frá Noregi til Grænlands skyldu sigla tvö skip ár hvert .... „Hier i mót skal kongur lata oss na fride og Jslendskum lögum“. .... „ath fra Norie til Grænlandzs skylldi sigla tvo skip hvortt ar hier fra Norie til Grænlandzs, og færa þangat alla goda nyttsamlega voru sem landinu og allmaga væri til besta . . . . “ .... „Og villivm vier bioda ydar vora kongliga vernd, nad, ast og kiærleicka sem einn goder og nad- vger herra og konge ber at veitta, med log, skill og riett sinvm vndergiefnum þeggnvm“. (Úr tilvitnunum 1 Gamla sáttmála). Ein afleiðing af vemdarsamningnum sem Islendingar gerðu við konung Noregs 1262, var heimild sú og skylda sem konungi var veitt til að sjá fyrir verzlunar- þörfum landsins. — Þetta ákvæði sáttmálans er þó bersýnilega fram komið vegna möguleika konungs á að hefta með öllu siglingar til íslenzkra landa ef honum bauð svo við að horfa; þótt Sturla Þórðarson geti ekki þessa í Hákonarsögu sinni eða öðrum rit- um, er það skiljanlegt að Magnús konungur hafi ekki kært sig um að láta halda á lofti svo óvinsælum brögð- um þeirra feðga. — En þetta ákvæði Gamla sáttmála varð nú samt til þess, að í skjóli þess gat konungur tekið undir sig alla milliríkjaverzlunina við Island og lendur þess, sem varð og reyndin á. Björgvinjareinokunin Um miðja f jórtándu öld er konungur búinn að ein- oka alla verzlun við skatt lönd sín og milli þeirra inn- byrðis undir kaupmenn Björgvinjar í Noregi. — En þar nokkru á eftir gerast þau umskipti á mörkuðum Evrópu að hinar verðmætu vörur Grænlands, svo sem svarðreipi, tannvara og allskyns loðskinn, hætta að verða eftirsótt vegna tilkomu hamps, fílabeins og loðvöru sunnan og austan úr löndum í miklu ríkari mæli en áður. Jafnvel hin einokaða verzlim konungs, getur ekki lengur haldið uppi samkeppni með græn- lenzku vörurnar, sem áður voru svo eftirsóttar og gáfu gull í kistu konungs. — Siglingarnar dragast saman á 14. öld Þessvegna gerist það á 14. öld, að siglingar af kon- ungshendi til Grænlands verða æ strjálli, þó áfram gildi hörð viðurlög um viðskipti þangað svo sem sann- ar sögnin um hrakning Bjöms Einarssonar og þeirra félaga þangað og málaferli þar um á árunum 1385— 1389. — Eftir þetta virðist að einokunarstofnun kon- ungs vanræki að mestu að uppfylla skylduna að halda uppi siglingum við Grænland í þrjár aldir nema sem fátkenndum tilraunum, fyrir utanaðkomandi áhrif, til að minna á drottinvald sitt jrfir þessu svæði hinn- ar íslenzku þjóðar. Konungssetrið flytzt til Danmerkur Um þetta leyti gerðust þau stórmerku tíðindi fyrir alla söguþróun á Norðurlöndum að krónur Noregs og Danmerkur urðu báðar settar á sama höfuð og eig- andi þess gerði Danmörku að aðseturstað sínum. Sú högun varð til þess að hið norska sjóveldi, sem stutt hafði staðið, varð að reikandi vofu á höfum konungs- ins, sem, er stundir liðu, varð að þola yfirgang og á- sælni hinna verðandi siglinga þjóða við Norðursjó, Hollendinga og Breta. — Þó gleymdu hinir æruverð- ugu jöfrar norðurvega því aldrei, að þeirra var rétt- urinn á þessum slóðum, þó dýrðin væri oft hálf döpur. Bannið við að ræna konung hugsanlegum tekjum af Grænlandi gleymist ekki Að slepptu því að minnast á hrakninga þeirra Þor- steins Ólafssonar 1409 til Grænlands og Björns Þor- leifssonar hirðstjóra og Ólafar konu hans þangað 1446—’47, sem urðu að skipta við Grænlendinga í ó- leyfi konungs, þá eru þó aðrar upplýsingar um vilja konungs til að viðhalda drottnun sinni þar. Finn Gad segir frá því í Grænlandssögu sinni, að konungur hafi sent tvo foringja sína, þá Pining og Pothorst til Grænlands árið 1473, sennilega til þess að bægja Eng- lendingum frá landinu, en þeir höfðu lofað að láta það í friði f jörutíu árum áður við Eirík af Pommem (1432). Hald manna er, að eftir þá Pining og Pot- horst sé lagður áttahringur sá, er enn sést móta fyrir á Búrfellinu fyrir ofan Garða í Einarsfirði. ■Jf Konungur gleymir ekki hagsmunum sinum á Grænlandi Gad segir ennfremur að í byrjun fimmtándu aldar hafi konungur fengið kortagerðarmann, Claudius Claus Swart, til að skrifa um Norðurlönd og þ. á. m. Grænland. Hinrik sæfari komst yfir þessi skrif og barðist fyrir því al sjóleiðin til Indlands yrði fundin

x

Grænlandsvinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Grænlandsvinurinn
https://timarit.is/publication/956

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.