Grænlandsvinurinn - 01.01.1955, Side 13

Grænlandsvinurinn - 01.01.1955, Side 13
Janúar—marz 1955 GRÆNLANDSVTNURINN 33 siglingaleiðirnar til Grænlands, og þekking ráðandi manna á þeim, aldrei; en af öflugum upplýsingum má ráða það að konungana hefur oft og einatt skort hæfa menn, bæði skipstjórnara og skipsmenn, til þess að fara slíkar úthafsferðir eftir að trónninn fluttist til Danmerkur og Hanskakaupmönnum hafði tekizt að hefta siglingaframtak Björgvinarmanna. Viðleitni konunganna að koma upp dönsku sjó- veldi eftir að þeir settust að í Danmörku, bar fyrst í stað lítinn árangur, því Danir voru fyrst og fremst friðsamir búandmenn á þessum tíma og þeirra „Ros og Magt“ var bundin við garða og engi danskrar móðurmoldar en ekki „sortladet Hav“. Það er því ekki f jærri lagi að benda á það að mögu- leikar konungs á að halda uppi sighngum að gagni til Grænlands voru litlir í þá daga með dönskum sjó- mönnum. Hann varð að leita til þýðverzkra manna um hinar meiri úthafssiglingar, og, er leið fram á sextándu öldina til brezkra sæfara og hollenzkra. Þetta var þó erfiðleikum bundið, því á ýmsu valt með friðsemdina við þessar þjóðir, og hagnaðarvonin af fyrirtækinu oft véfengjanleg. Má á það minna að seinustu biskuparnir sem páfinn útnefndi til Græn- lands, og þangað komu aldrei, voru settir á meðgjöf með embættinu, ef verða mætti að þeir gætu þá held- ur haldið hróðri drottins fram við heiðingjana. Ný hagnaffarvon ýtir við konungnnum Um langa hríð höfðu menn Biskajaflóa stundað hvalveiðar í höfumun við Grænland, segir Gad. En svo komu Hollendingar til Svalbarða og kölluðu það „spitzbergen" (þ. e. „Oddfjöllm“) 1596. (Isl- annálar segja það fundið. 1194, sennilega af Islendingum í könnunarferðum þeirra). 1614, stofnuðu þeir svo „Noordsche Compagni“, verndað af hollenzku ríkis- stjórninni um allt Norðuríshaf og nágrenni og sýndi það hagnað. Kristján IV. reyndi að ná veiðinni undir danskar hendur, /því honum fannst, sem vonlegt var, þetta rekið á yfirráðasvæði sínu. Hann gjörði kröfu um að Svalbarði heyrði undir Grænland. Ráðagerð hans var að: „fyrst og fremst að rannsaka þetta Vort vald- svæðis ástand, á hvaða hátt í framtíðinni væri hægt að sýna því umhyggju sem og trúarbrögðunum, stjórnarfarinu og réttarfarinu." 1619 var Det grönlandske Kompagni stofnað til að keppa við HoUendinga um Svalbarða. En það lifði stutt og enn styttra það sem stofnað var 1636. ra. Friðgjafans vemd í verki Upplýsingar John Davis 1585 og ásókn Hollendinga með hvalveiðarnar og verzlun við landsfólkið, hertu nú skriðinn undir danska konungsvaldinu að halda sínu og þar kom að, að valdi þess rétta vemdara skyldi beitt á grænlenzkri jörð. Kristján IV., sem sjálfur var duglegur sjómaður, fékk nú til tvo brezka sjóræningja, þá Cunningham og James Hall, að sigla til Grænlands- Þriðji foringinn í þessum leiðangri var danskur, Godske Lindenow að nafni. Þeir f engu sitt skipið hver til umráða og var Cunn- ingham formaður fararinnar. Hetjudáð aðmíráls G. Lindenow Skipin fylgdust nú að unz þau komu til Grænlands, þá rauf Lindenow félagsskapinn og lagði skipi sinu, sem hét „Rauða ljónið“, að landi við Eyjafjörð* syðst í Vestri byggð, en hinir héldu lengra norður með landinu. Lindenow reyndist trúr hlutverki sínu að efla sigurorð konungs síns með för þessari og lét sig ekki muna um að sýna umkomulausum íbúum þessa lands konungsins vemdarvilja hans í verki, og rændi tveimur mönnum grænlenzkum. — Sagnaskáld kon- ungsins, Lyskander, kvað kvæði um atburðinn. Grænlendingarnir, sem rænt var, „bitu og börðu sem óðir hundar eða hestar,“ segir Lyskander, „og annar þeirra þreif um sveðju eins hermannsins og skarst illa í hendina svo menn Lindenows tóku þá og bundu eins og svín“. Grænlendingarnir sáu nú að hér var þeim ofurefli búið og stilltu viðnám sitt, og létu ribbaldana sjá fyrir ráði sínu; og er til Kaupmannahafnar kom vom þeir látnir sýna kóngi listir sínar á einæringi. — Um það segir Lyskander: „Þar gat maður sér hversu fá- tækur maður hjálpaði sér sjálfum á eigin spítur, þó lélegt væri allt sem hann átti.“------„Síðan fór kóngurinn aftur í land en Grænlendingunum var skip- að að vera þar og bíða nánari fyrirmæla.“ Um veru þeirra í Danmörku er vitað, að annar þeirra var fjórtán dögum seinna sendur konungleg- um lénsmanni á Dragshólmi við Kalundborg, hinum * Fiskenæsfjord.

x

Grænlandsvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Grænlandsvinurinn
https://timarit.is/publication/956

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.