Verktækni - 15.01.1999, Síða 1

Verktækni - 15.01.1999, Síða 1
AÐALFUNDUR KTFÍ Aðalfundur Kjarafélags Tænifræðingafélags íslands verður haldinn að Engjateig 9 fimmtudaginn 25. febrúar 1999 og hefst kl. 17:30. Dagskrá verður samkvæmt 11. gr. félagslaga: 1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári. 2. Reikningar félagsins fyrir liðið starfsár. 3. Skýrslur og tillögur nefn- da, ef kjörnar hafa verið. 4. ’l'illögur félagsstjórnar. 5. Lagabreytingar. 6. Kjör félagsstjórnar. 7. Kjör endurskoðenda. 8. Önnur mál. Fyrir fundinum liggur tillaga frá stjórn um lagabreytingu á eftirfarandi málsgrein í 13. grein laganna: 13. grein Félgsstjórn kýs einn úr sínum hópi og annan til vara til setu í aðalstjórn TFÍ til tveggja ára í senn. Stjórn.KTFÍ AÐALFUNDUR VFÍ Aðalfundur Verkfræðingafé- lags Islands fyrir starfsárið 1998-99 verður haldinn mið- vikudaginn 10. mars 1999 í Verkfræðihúsi, Engjateigi 9, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 17:00. Dagskrá verður samkvæmt lögum félagsins og verður hún kynnt í fundarboði sem sent verður félagsmönnum í febrúarlok. Formenn nefnda og deilda eru minntir á að skila inn árs- skýrslum á tölvutæku formi fyrir 21. febrúar n.k. . Senda má skýrslur með tölvupósti. Tölvupóstfang VFÍ er vfi @ vfi.is. AÐALFUNDUR TFÍ Aðalfundur Tæknifræðinga- félag Islands fyrir starfsárið 1998-99 verður haldinn fimmtudaginn 25. mars 1999 í Verkfræðihúsi, Engjateigi 9, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 17:00. Dagskrá verður sam- kvæmt lögum félagsins og verður hún kynnt í fundar- boði sem sent verður félags- mönnum í marsbyrjun. Formenn nefnda eru minntir á að skila inn árs- skýrslum á tölvutæku formi (Word fyrir Windows) fyrir I. mars n.k. Senda má skýrsl- urnar með tölvupósti. Tölvu- póstfang TFÍ er tfi@tfi.is. ASCE: Meistarapróf er lágmarkskrafa Stjórn bandaríska verkfræð- ingafélagsins ASCE (American Society of Civil Engineers) sam- þykkti nýja stefnuyfirlýsingu í október s.l. Þar segir að stefnt skuli að því að meistaragráða verði framvegis lágmarkskrafa til þess að fá starfsréttindi sem verk- fræðingur. Jafnframt kemur fram í greinargerð stjórnarinnar að þetta sé umdeild ákvörðun og líta beri á þetta sem langtímamarkmið sem taki einhver ár eða jafnvel áratugi að koma í framkvæmd. Þessi stefna ASCE er áhugaverð fyrir ís- lenska verkfræðinga í Ijósi tillögu Menntamálanefndar VFÍ um að meistarapróf verði forsenda þess að fá leyt'i til að nota starfsheitið verkfræðingur. 1 fréttabréfi ASCE eru raktar helstu ástæður fyrir þessari breyt- ingu varðandi starfsréttindi verk- fræðinga. Þar segir m.a. að verk- fræðingastéttin upplifi nú hraðar og byltingarkenndar breytingar sem krefjist mun meiri þekkingar og reynslu en eldri kynslóðir verk- fræðinga hafi þurft að búa yfir. Þeir sem útskrifast með fjögurra ára fyrrihlutapróf (undergraduate nám) í verkfræði séu ekki nægi- lega vel undir það búnir að starfa sem verkfræðingar og því sé á- stæða til að herða kröfurnar. 1 dag verða verkfræðingar að hafa hæl'ni á sviði tölvutækni, upplýsingatækni, stjórnunar og tungumálakunnáttu, að auki við hefðbundna verkfræðilega hæfni. Þeir verða einnig að skilja stjórn- málalegar, efnahagslegar og fé- lagslegar afleiðingar fram- kvæmda. Að auki við svo breiðan þekkingargrunn verða verkfræð- ingar í meira mæli en áður að hafa skilning á sérhæfðum sviðum og verða að fylgjast vel með tækni- legum nýjungum. Slíkur þekking- argrunnur fæst ekki með fjögurra ára grunnnámi. Þess má geta að aðrar stéttir í Bandaríkjunum eins og tannlæknar, lyfjafræðingar. lögfræðingar, guðfræðíngar og arkitektar hafa á undanförnum árum staðið frammi fyrir sama vandamáli og verkfræðingarnir, þ.e. að ekki verði hjá því komist að herða kröfurnar. Hingað til hefur sá háttur verið hafður á í Bandaríkjunum að eftir fjögurra ára BS-próf hefur tekið við fjögurra ára starfsnám og menn síðan gengist undir próf til að öðlast starfsréttindi sem verk- fræðingur. Sjónarmið ASCE er hins vegar það að fjögurra ára starfsnám sé alls ekki sambærilegt við formlegt háskólanám til meistaragráðu. Óbreytt ástand sé ekki besta leiðin til að gæta hags- muna ungra verkfræðinga eða þjóðfélagsins sem mun treysta á þá við uppbyggingu „infrastrúkt- úrsins“. Að mati formanns ASCE munu auknar námskröfur einnig bæta faglega stöðu verkfræðinga- stéttarinnar, m.a. greina þá betur frá þeim sem á ensku kallast „engineering technologists". Þrír sæmdir heiðursmerki VFÍ Arshátíð VFI var haldin laugar- Bjömsson, Guðmundur G. Þórar- þótti takast rnjög vel, nánari um- daginn 6. febrúar s.l. á Hótel Sögu. insson og Finnbogi Jónsson sæmdir fjöllun er á bls. 4. A árshátíðinni voru þeir Jakob heiðursmerki félagsins. Árshátíðin F.v. Guðmundur G. Þórarínsson og Jakob Björns- Logi Kristjánsson nœlir heiðursmerkinu í barm Jakobs son. Finnbogi Jónsson gat af óviðráðanlegum or- Björnssonar. Pétur Stefánsson formaður VFÍJylgist með. sökum ekki verið viðstaddur afhendinguna. Pottþétt plott Skönnun Geymsla Öryggi gengi Internet Prentun Authoiized Rasterex Dealer Authorized VIDAR Dealer Authorized AutoCAD Dealer £opyS ystem Hliðasmári 14 200 Kópavogur s: 554 0570 - f: 554 0571 www.snertill.is Authorized T

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.