Verktækni - 15.01.1999, Síða 4
I
•Árshátíð VFÍ*
Árshátíð VFÍ var haldin á Hótel
Sögu laugardaginn 6. febrúar s.l. Á
árshátíðinni voru þeir Jakob Björns-
son raforkuverkfræðingur og fyrrver-
andi orkumálastjóri, Guðmundur G.
Þórarinsson byggingarverkfræðingur
og stjórnarformaður Ríkisspítalanna
og Finnbogi Jónsson eðlisverkfræð-
ingur og forstjóri Islenskra sjávaraf-
urða sæmdir heiðursmerki félagsins.
Meðfylgjandi myndir eru frá árs-
hátíðinni. Meðal góðra gesta voru
heiðursfélagarnir Einar B. Pálsson,
Haraldur Ásgeirsson, Jóhannes Zoéga
Helgi Hjálmarsson verkfrœðingur og Guðrún ísberg.
Ragnheiður Inga Þárarinsdóttir og Ólafur Pétur Pálsson, sem báru hitann og
þungann af skipulagningu hátíðarinnar.
og Jóhannes Nordal. Jón Böðvarsson
íslenskufræðingur var heiðursgestur
hátíðarinnar ásamt konu sinni Guð-
rúnu E. Björgvinsdóttur. Jón flutti há-
tíðarræðu kvöldsins og fjallaði þar
m.a. um verkfræðilega þætti í forn-
sögunum. Veislustjóri var Gylfi Árna-
son aðst.framkvst. Opinna kerfa hf.
Heimatilbúin skemmtiatriði Árshátíð-
arnefndar þóttu á „heimsmælikvarða“
en vaskur flokkur karlkyns verkfræð-
inga sýndi dansatriði úr söngleiknum
Grease. (Því miður var filman búin
þegar það fór fram!)
Verkfrœðingar hjá Hönnun fjölmenntu á árshátíðina.
Veislugestir.
vacon
TIÐNS3REITAR
ti allra nota!
Frá 0,37 kW - 1000 kW
Smiðjuvegur 5 200 Kópavogur
Sími: 544 5400 Fax: 544 5401
Ný áhugaverð bók
Auður úr iðrum jarðar
Saga hitaveitna og jarðhitanýt-
ingar
Ef'tir Svein Þórðarson
Ur Safni til iðnsögu íslendinga
658 bls.
Utgefandi er Hið íslenska bók-
menntafélag
Skömmu fyrir síðustu jói kom
út fyrsta yfirlitsritið um sögu jarð-
hitanýtingar á Islandi. Fjallað er
um sambúð landsmanna og jarð-
hitans í tímans rás allt frá laugar-
ferðum fornmanna til beislunar
háhitasvæða.
Greint er frá rannsóknum,
jarðborunum og gerð hitaveitna
um land allt. Einnig er tjallað um
hagnýtingu jarðhita til þvotta,
sundiðkunar, ylræktar, iðnaðar og
raforkuframleiðslu. Bókin skýrir
á lifandi og greinargóðan hátt
mikilvægi jarðhitans fyrir íslend-
inga.
Mikill fjöldi mynda eykur og
skýrir efni bókarinnar, þær hafa
fæstar hafa komið fyrir á prenti
áður.
Island er eldfjallaeyja og oft
hafa jarðeldar valdið þjóðinni
búsiíjum. Eldvirkni á sér þó bjart-
ari hliðar. Lengi var jarðhiti þó lítt
nýttur og þótti fremur til skaða en
hlunnindi. Eitt merkasta nýmæli
nútímans er hagnýting jarðhita
sem orkugjafa. I bókinni ber hæst
sögu beislunar jarðhita til húsahit-
unar, en hún umbreytti lífsháttum
hjá stórum hluta þjóðar í elds-
neytisvana landi, en fæstir leiða
hugann að þessum sjálfsagða
hlut, að heita vatnið rennur hvort
eð er úr krananum. Hitaveitur og
framkvæmdir þeim tengdar munu
er fram líða stundir verða taldar
með merkari verklegum fram-
kvæmdum á Islandi á þessari öld.
Jarðhitinn hefur sannarlega reynst
„auður úr iðrum jarðar“.
Þetta er heit bók, sem á erindi
til allra sem starfa að nýtingu
jarðhitans með einum eða öðrum
hætti!
Tilboðsverð til félagsmanna í
VFÍ, TFÍ og SV er kr. 6.500,-
Sendingargjald er innifalið.
Upplýsinga- og pöntunarsími:
581-4088
Doktorsnám við
Chalmers há-
skóla
Auglýst er eftir tölvuverk-
fræðingum með mastersgráðu til
doktorsnáms við Chalmers
tækniháskólann í Gautaborg.
Nánari upplýsingar veitir Jón
Sigurður Karlsson, Evróráð-
gjali, EES-vinnumiðlun. Sími:
588 2587. Tölvupóstfang:
jon.s.karlsson@svm.is
Heimasíður
félaganna
Á heimasíðum félaganna er að
finna ýmsar gagnlegar upplýsin-
gar.
Verkfræðingafélag íslands:
www.vfi.is
Tæknifræðingafélag íslands:
www.tfi.is
Stéttarfélag verkfræðinga:
www.sv.is
VT-Rabb
Félagsmenn eru hvattir til að
skrá sig á VT-Rabb tölvupóstlis-
tann. Þar verða fjörlegar
umræður um ýmis mál er varða
hag tæknimanna. Einungis þarf
að senda óformlega umsókn til
Snæbjörns Jónssonar á
tölvupóstfangið: sj@rafteikn-
ing.is
Atvinna í
Danmörku
Bosch Telecom.dk AS auglýsir
lausar stöður fyrir verkfræðinga
og tæknifræðinga. Nánari
upplýsingar má finna á Netinu:
www.bosch-telecom.dk
STAR - stálbyggingar
þegar stórt er byggt
• Alsherjar lausn fyrir stórbyggingar.
• Hönnun hússins og framleiðsla á öllu byggingarefni.
• Einstaklega hagkvæm og ódýr byggingaraðferð
með stuttan byggingartíma.
• Sérhönnuð hús sniðm að þörfum viðskiptavina. buÍldings Pegar byggja skal úr málmum
ánSINDRI