Dagfari - 01.02.1976, Blaðsíða 4

Dagfari - 01.02.1976, Blaðsíða 4
4 D AGFABI UM STARF HERSTÖÐVA- ANDSTÆÐINGA „Að hugsa fyrír fólkið" i ll.og 12. október 1975 var haldin í Stapa ráðstefna um „Herinn og sjálfstæði Islands". A þeirri ráðstefnu var lagður grundvöllur að starfi og skipu- lagi herstöðvaandstæðinga á þessu ári. Þar var kosin 12 manna miðnefnd og verkefni hennar skilgreind. II. Hlutverk miðnefndar: í samþykktum Stapa-ráð- stefnunnar er skýrt kveðið á um hlutverk og starf Miðnefndar. Segir þar m.a.: „Miðnefnd hafi yfirsýn yfir starfsemi herstöðvaandstæðinga, annist útgáfustarfsemi á vegum þeirra, geri starfsáætlanir yfir næsta ár, stuðli að myndun sjálfstæðra starfshópa og afli fjár til nauðsynlegra útgjalda. Miðnefnd verði ekki ætlað að senda frá sér áætlanir í nafni herstöðvaandstæðinga um af- stöðu þeirra í tilteknum málum, heldur verði hlutverk hennar fyrst og fremst, að vera tengi- liður milli starfshópa innbyrð- is, milli þeirra og annarra her- stöðvaandstæðinga og milli þeirra og fjölmiðla og getur hún gert samþykktir er að þessu lúta. Miðnefnd haldi eigi sjaldnar en 1 sinni í mánuði fundi með fulltrúum starfshóp- anna. Hún standi fyrir fjöldaað- gerðum gegn hersetunni og get- ur boðað til funda þar sem sam- þykktir eru gerðar, enda séu þeir opnir öllum andstæðingum hersetunnar. I síðasta lagi að ári liðnu boði Miðnefnd í sam- ráði við fulltrúa starfshópanna til nýrrar ráðstefnu herstöðva- andstæðinga til að skipuleggja starfsemina og taka ákvörðun um stofnun samtaka herstöðva- andstæðinga og skili þar af sér störfum." III. Starfið í vetur: Frá því að Miðnefnd var kos- in hefur hún haldið um 10 fundi, gefið út fréttabréf í des- ember s.l., sent yfirlýsingu til allra fjölmiðla vegna landhelg- ismálsins og tengsla þess við NATO, afhent Joseph Luns við komu hans vegna landhelgis- málsins sömu yfirlýsingu ásamt bréfi og síðast en ekki síst stuðl- að að myndun starfshópa. Einn starfshópur hefur verið starf- andi allt frá Stapa-ráðstefnunni og fjallar sá um alþjóðamál, og er Dagur Þorleifsson tengill þess hóps. Þá hefur Margrét Guðnadóttir prófessor tekið að sér starfshóp um „Herinn og heilbrigðismál" og Sigmar Inga- son Ytri Njarðvík um „Áhrif hersins á atvinnu- og efnahags- líf Suðurnesja". Staðið hefur til í allan vetur að koma upp starfshópum um eftirfarandi efni: a) Áhrif hersins á íslenskt at- vinnulif, í tengslum við erindi Olafs Ragnars Grímssonar um sama efni á Stapa-ráðstefnunni. b) Tengsl hersins við Al- mannavarnir, landhelgisgæslu, lögreglu og flugöryggisþjón- ustu. c) Áróðurshópa ýmis konar, sem gætu undirbúið aðgerðir og fjöldafundi. d) Vinnuhópa í framhalds- skólum. Þá hefur starfið úti á landi verið talsvert til umræðu, en ekkert verið ákveðið enn um það, annað en að hvetja fólk til að mynda starfshópa, sérstak- lega það fólk, sem starfaði áður með gömlu Samtökum her- stöðvaandstæðinga og endur- vekja þannig baráttuna gegn hernum. Miðnefnd hefur skrifstofu og fundarherbergi að Skólavörðu- stíg 45 og hefur verið ráðinn starfsmaður, sem mun verða við 3svar í viku. Starfsmaðurinn er Soffía Sigurðardóttir. Símanúm- er og opnunartími skrifstofunn- ar verður auglýst nánar síðar. IV. Ekki hefur starfið í starfs- hópunum gengið vel og allt of fáir herstöðvaandstæðingar hafa hellt sér út í starf. Því miður hefur Miðnefnd ekki tekist að efla það til muna. Segja má að samband Miðnefndar við her- stöðvaandstæðinga almennt sé frekar lítið og hefur hún orðið fyrir harðri gagnrýni frá ýmsum aðilum vegna aðgerðarleysis og máttleysis í sambandi við undanfarna atburði í landhelg- ismálinu, sem svo mjög hafa tengst spurningunni um tilgang hersins og NATO fyrir Islend- inga. Eina ráðið gegn þessum meinsemdum er auðvitað að drífa sig í starf, hafa samband við miðnefndarmenn og stofna starfshópa á meðan ekki eru til formleg skipulögð sam- tök herstöðvaandstæðinga. Að undanförnu hafa gefist næg tækifæri og tilefni fyrir her- stöðvaandstæðinga og aðra and- heimsvaldasinna til aðgerða, en ekkert hefur gerst. Þetta blað er viðleitni okkar til að bæta úr kraftlitlu starfi og minna allt baráttufólk á, að ekkert gerist án þátttöku þess. Á þessu ári eru liðin 25 ár frá því að varn- arsamningurinn við Bandaríkin var gerður 1951. Af því tilefni mun stefnt að einhverskonar aðgerð af okkar hálfu. Öll gagnrýni er auðvitað sjálfsögð jafnframt öllum hugmyndum um starfið og virkri þátttöku herstöðvaandstæðinga í starfs- hópum. Hlín Agnarsdóttir. Morgunblaðið hefur sett sér það mark að „hugsa um póli- tík" fyrir íslensku þjóðina. Kemur það glögglega fram í umræðum síðustu vikna um Nató og landhelgismálið. Fyrir- myndin er sótt til ríkis Francos sáluga. Skömmu áður en karl- inn hrökk upp af, nánar til tek- ið 7. október sl., birti Morgun- blaðið einkar hugljúft viðtal við ræðismann Islands í Malaga á Spáni, konu af íslenskum ætt- um, og mann hennar, „sem er danskur greifi af franskri að- alsætt" að sögn blaðsins. I við- talinu segir: „Annars er allt rólegt í Andalúsíu, sögðu þau. Við verðum aldrei vör við þetta lög- Frá Miðnefnd Nýlega barst Miðnefnd 30.000 kr. gjöf frá herstöðva- andstæðingi, sem ekki vildi láta nafn síns getið. Miðnefnd þakk- ar þessa höfðinglegu gjöf. Öll útgáfustarfsemi og aðrar framkvæmdir, sem eru á döf- inni hjá Miðnefnd kosta að sjálfsögðu nokkurt fé. Sú starf- semi byggist fyrst og fremst á fjárframlögum þeirra, sem mál- staðinn vilja styðja. Gírónúmer Miðnefndar er 30309. D A G F A R I Febrúar 1976. Útgefandi: Miðnefnd herstöðva- andstæðinga. Ritnefnd: Einar Ölafsson (ábm.), Hlín Agnarsdóttir, Gils Guð- mundsson, Soffía Sigurðardóttir. Prentsmiðja Þjóðviljans. regluveldi sem Franco er sagðar styðjast við. Við fáum satt að segja ekki betur séð en Spán- verjar séu ánægðir með það stjórnarfar sem þeir búa við. Fólkið virðist raunar ekki hafa mikinn áhuga á pólitík. Það þýðir lítið að fá hinn venjulega Spánverja til að tala um pólitík. Hann vill miklu heldur tala um fótbolta. Hitt er svo annað mál að þetta kann að stafa af því að fólkið er ekki vant því að hugsa um pólitík, hefur ekki þurft að gera það. Það hefur verið hugsað um þetta allt fyrir það." Baráttan Framhald af bls. 1. mengun sem nú ógnar lífi mannkynsins. Hvað sem líður fögrum orðum munu gróða- öflin áfram hugsa um sinn stundarhag fyrst og fremst. 1 gróðafíkn sinni spúa þau eitri og eyða auðlindum. Til vcrndar ítökum sínum og gróðahagsmunum skirrast þess öfl jafnvel ekki við að strádrepa milljónir manna og breyta frjósömu landi í eyði- mörk, eins og forysturíki NATO, Bandaríkin, hefur gert í Víetnam, svo aðeins sé tekið stærsta dæmið af mýmörgum. Mikilvægasta skrefið gegn rányrkju og fyrir bærilegu lífi hundruð milljóna manna er útrýming þessara gróðaafla sem við köllum einu nafni auðvald. Gegn þessu valdi verður íslensk alþýða og al- þýða alls heimsÍBS að sam- einast. Samcinumst til baráttu gegn rányrkju, gegn herstöðvununi, gegn NATO. Einar Öhfsson. Grein Gils Framhald af bls. 2. skipt um skoðun. Umræða sú um bandaríska herinn á Kefla- víkurflugvelli og aðild íslands að Nató, sem ofbeldi Breta í ís- Ienskri landhelgi hefur komið af stað, kann að verða gagnleg. Hún vekur til umhugsunar og opnar vonandi hugi margra fyr- ir þeirri staðreynd, að hlutverk Natós á Islandi með tilstyrk Bandaríkjahers er hið sama og í öðrum löndum Vestur- Evrópu: Að vernda innlent og erlent afturhald og auðstétt og halda í skefjum, eftir því sem þurfa þykir, hverri Jxárri hreyf- ingu og pólitískri framkvæmd, sem talin er alvarleg ógnun við forræði ráðandi stéttar og að- stöðu til auðsöfnunar og yfir- drottnunar. Verum minnugir Jsess, herstöðvaandstæðingar, að forusturíkið í Nató er hið sama og hér hefur setið með her sinn nær óslitið allt frá stríðslokum. Vinnum að því ótrauðir, að opna augu sem flestra samlanda okkar fyrir réttmæti og sjálf- sagðri framkvæmd þeirrar stefnu að Island fari úr Nató og vísi hernum burt. Almennur fundur herstöðvaa ndstæðinga Miðnefnd herstöðvaandstæðinga boðar stuðningsmenn baráttunnar gegn erlendum herstöðvum hér á Islandi til almenns fundar á HÓTEL BORG, sunnudaginn 8. febrúar kl. 15,30 — hálf fjögur. DAGSKRÁ: 1. Vésteinn Ólason: ísland og Atlantshafs- bandalagið. 2. Dagur Þorleifsson: Eru kjarnorkuvopn á Islandi? 3. Baráttusöngvar. 4. Skýrsla um starf miðnefndar. 5. Almennar umræður og fyrirspurnir. Fjölmennið og mætið stundvíslega MIÐNEFND. J

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.