Aðventfréttir - 01.01.2007, Blaðsíða 2

Aðventfréttir - 01.01.2007, Blaðsíða 2
Ritstjórapistill: “Eins og hindin, sem þráir vatnslindir, þráir sál mín þig, ó Guð. Sál mína þyrstir eftir Guði, hinum lifanda Guði. Hvenær mun ég fá að koma og birtast fyrir augliti Guðs? Tár mín urðu fæða mín dag og nótt, af því menn segja við mig allan daginn: Hvar er Guð þinn? Um það vil ég hugsa og úthella sál minni, sem í mér er, hversu ég gekk fram í mannþrönginni, leiddi þá til Guðs húss með fagnaðarópi og lofsöng, með hátíðaglaumi. Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn. Guð minn, sál mín er beygð í mér, fyrir því vil ég minnast þín frá Jórdan- og Hermonlandi, frá litla fjallinu. Eitt flóðið kallar á annað, þegar fossar þínir duna, allir boðar þínir og bylgjur ganga yfir mig. Um daga býður Drottinn út náð sinni, og um nætur syng ég honum Ijóð, bæn til Guðs lífs míns. Ég mæli til Guðs: Þú bjarg mitt, hví hefir þú gleymt mér? hví verð ég að ganga harmandi, kúgaður af óvinum? Háð fjandmanna minna er sem rotnun í beinum mínum, er þeir segja við mig allan daginn: Hvar er Guð þinn? Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar I mér? Vona á Guð, þvi að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minnJ’SI 42.2-12. Það er nauðsynlegt mannlegri heilsu að vonast eftir einhverju. Það eru ekki bara börnin sem þurfa að hlakka til afmælis, jólanna, að skólinn byrji (eða að skólinn sé búinnl), heldur þurfa einnig fullorðnir að eiga vonina hið innra með sér þó hún sé ef til vill hulin og djúpstæðari en í reynslu barnanna. Vonin er okkur nauðsynleg eins og matur og drykkur og loftið sem við öndum að okkur. Þrátt fyrir fyrirheit stjórnvalda þjást milljónir i heiminum I dag í dýpstu fátækt sem hylur þetta fólk svartnætti von- leysisins því það hættir að vona og óttinn hreiðrar um sig í staðinn. Milljónir í dag lifa ekki við sómasamleg lífsskilyrði og án tækifæra til að njóta góðrar heilsu eða kljást við afleiðingar langvarandi næringarskorts. Þetta er ekki virkt fólk sem á sér vonir og framtíðardrauma heldur sárþjakað þar til að vonin deyr. En jafnvel í hinum svokölluðu þróuðu löndum er einnig hungur að finna. Andlegt hungur. Margt fólk innan okkar samfélags á sér engan draum eða sér nokkurn tilgang með lífinu því það grunar að menning okkar sé á villigötum og efast um framtíðarmöguleika barna sinna. Einstaklingar sem eru þannig þenkjandi lifa ekki lífinu til fulls og eru gæddir lífsþrótti því þeir sem lifa ekki lífi sem byggist á von og framtíðardraumum standa andspænis andlegrar stöðnun þó að þeir eigi sér undankomuleið sem hinir efnislega fátæku hafi ekki aðgang að. Við heljum nú nýtt ár og höfum nýverið haldið upp á jólin og aðventuna, undir- búningstímann fyrir minningarhátíð fyrstu komu Krists. Þetta er spennandi tími ársins, tími eftirvæntinga og gleði. Að vissu leiti endurlifum við væntingar og þrár þeirra sem biðu fyrstu komu Jesú, spámanna Gamla testamentisins, sálma- skáldanna, hinna mörgu nafnlausu meðal fólks Guðs sem þráðu komu Messíasar gegnum aldirnar, komu lausnarans. En hann kom! Það er um garð gengið! Er þá aðventan einungis söguleg upp- riflun, leikrit sem við tökum þátt í árlega á grundvelli hefðarinnar? Eða enn fá- tækara: Fyllumst við eftirvæntingar án þess að hin andlega vídd hafi þar hlut- verki að gegna? Glaumur og gleði og allsnægtir, fjölskylduhátíð sem getur staðið fyrir sinu og orðið “vel heppnuð” án þess að hinum andlegu gildum og upprunalegu táknum sé nokkur gaumur gefin? Þannig félagsleg hátíð hefur eitt- hvert gildi - óneitanlega. En það er nú samt afar fátæk aðventa og jól ef þau eru rúin sínu andlega, táknræna gildi. Þvi koma frelsarans er svo sannarlega ekki bara söguleg upprifjun heldur endur- tekur koma hans sig stööuglega. Koma hans í Kristi á sér ávallt stað og mun að fullu eiga sér stað á þann hátt sem mun fara fram úr björtustu vonum sérhvers manns. Við erum aðvent fólk og minningarhátíðin um komu frelsarans höfðar því til okkar sérstaklega því við vitum að sá sem kom í veikleika á sínum tíma mun koma að nýju. Um þetta snýst vonin, hin kristna von sem gefur Iffinu gildi, þessi djúpstæða þrá eftir Guði og löngun eftir samfélagi við hann. Þetta kemur svo fagurlega fram í sálminum sem birtist hér í upphafi: “Eins og hindin, sem þráir vatnslindir, þráir sál mín þig, ó Guð. Sál mína þyrstir eftir Guði, hinum lifanda Guði. Hvenær mun ég fá að koma og birtast fyrir augliti Guðs?” Sl 42.2,3. En það er lík önnur hlið á reynslu sálma- skáldsins sem er að finna í versunum 4, 10, 11: “Tár min urðu fæða mín dag og nótt, af því menn segja við mig allan daginn: Hvar er Guð þinn? . . . Ég mæli til Guðs: Þú bjarg mitt, hví hefir þú gleymt mér? hví verð ég að ganga har- mandi, kúgaður af óvinum? Háð Ijand- manna minna er sem rotnun i beinum mínum, er þeir segja við mig allan daginn: Hvar er Guð þinn?" Hvor þessara versa lýsa raunveruleika- naum? Fyrri versin lýsa löngun en þau síðari þeirri staðreynd að vantrúaðir ein- staklingar hafa gilda ástæðu til þess að efast: Hvar er hann þessi Guð? Það er sorg, harmur og kúgun í heiminum. Á hverju hvilir þá þessi von? Tillaga mín er Aðventfrettir 70. ÁRG. - 1. TBL. 2007 ÚTGEFANDI KlRKJA SJOUNDA DAGS AÐVENTISTA A ÍSLANDI S u ð u r h I i ð 3 6 10 5 R e y k j a v i k S ími: 58 8-7 800 F a x : 588-7808 sda@aðventistar.is Ritstjóri & Ábyrgdarmaður: E ri c Guðmundsson Forsiðumynd: Jón Erling E ri c sso n AÐVENTFRÉTTIR • Janúar 2007

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.