Aðventfréttir - 01.01.2007, Síða 4

Aðventfréttir - 01.01.2007, Síða 4
Nýtt verkefni að hefjast: í október fór hópur einstaklinga frá Kirkjunni til Englands til að kynna sér verkefni sem unnið hefur verið í ýmsum kirkjum aðventista í Bandaríkjunum, sem hefur það markmið að gera börnin okkar að lærisveinum og sameina Ijöl- skyldur í tilbeiðslu til Guðs. Tildrög þess að hópurinn: Gavin Ant- hony, Heba Magnúsdóttir, Helga Þor- bjarnardóttir, Helgi Jónsson, Steinunn Theodórsdóttir og Þóra Lilja Sigurðardóttir fór til Englands, var að upp voru komnar hugmyndir i Stjórn Kirkjunnar að því að gefa lærisveinaþjónustu að stærra hlutverk í safnaðarstarfmu hérlendis. S.s. að gera söfnuð okkar að fólki sem trúir og fylgir Jesús. Hugmyndin var á byrjunarstigi þegar að við fréttum af þessu nám- skeiði í Englandi. Upprunalega hugmyndin var að kynna lærisveinaþjónustu inn í safnaðarstarfið óháð aldri, en einhvers staðar verður að byrja og var því ákveðið að fara og skoða nánar K.I.D.S verkefnið eða Kids in Discipleship og læra af þeirri reynslu sem hópurinn sem stendur að þessu verkefni hefur. Verkefnið er þróað af föður, ungum bandarískum presti, sem í amstri hvers- dagsleikans vaknaði upp við að honum fannst hann vera að missa af elsta syni sínum. Hann þráði að finna leið til að ná sambandi við son sinn en mest af öllu til að leiða son sinn til hins himneska föður. Úr varð verkefnið Kids eða það sem við köllum á íslensku „Krakkar eins og Jesús". Okkur leyst strax rosalega vel á verkefnið. samsetningu þess og mark- mið og vorum sammála um að þetta væri eitthvað sem við vildum kynna fyrir Kirkjunni heima á íslandi. Eftirfarandi er svona „útdráttur" af því sem við fengum að heyra á þessu námskeiði: Guð á sér draum Guð elskar okkur mennina svo óendan- lega. Hann elskar alla og gerir engan greinamun. Hann vill að allir kjósi að búa hjá sér á himnum. Það er pláss fyrir alla á himnum og meðan við bíðum komu hans er verk fyrir alla á jörðinni. Sérhver einstaklingur skiptir sköpum. í Jóel 2.28 segir Drottinn: Jóel 2:28 (3:1) En síðar meir mun ég úthella anda mínum yfir allt hold. Synir yðar og dætur yðar munu spá, gamalmenni yðar mun drauma dreyma, ungmenni yðar munu sjá sjónir. Guð hefur stóra drauma fyrir unga fólkið okkar. Hann veit betur en við hvers megnug þau eru. Hann þráir að eiga daglega samleið með þeim og hann vill leiða þau til nánari sambands við flöl- skyldur sínar. Hann vill sjá hamingju- samar og sterkar fjölskyldur. Mal 4:5-6 Sjá, ég sendi yður Elía spámann, áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur. Hann mun sætta feður við sonu og sonu við feður... Við stöndum andspænis miklum vanda Rannsókn Roger L. Dudley prófessors við Andrews háskólann í Banda- ríkjunum sýndi að um 40-50% af ungum aðventistum yfirgefa kirkjuna þegar þeir erum á þrítugs aldri. (Úr bók Dr. Dudley, Why Our Teenagers Leave the Church) Sama rannsókn leiddi í Ijós að 60% þeirra sem tóku þátt voru hræddir um að vera ekki tilbúnir þegar að Jesús kemur aftur. Guð hefur líkan Guð hefurgefið okkur dásamlega hand- bók fyrir lífið. í 5. Mósebók 6. kafla, vers 4-9 er að finna eftirfarandi líkan fyrir okkur: 5.M 6:4-9 Heyr ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinnl Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þinu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau, þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú fer á fætur. Þú skalt binda þau til merkis á hönd þér og hafa þau sem minningarbönd á milli augna þinna og þú skalt skrifa þau á dyrastafi húss þíns og á borgarhlið þín. Guð hefur ætlað fjölskyldum gríðarlega þýðingarmikið og vandasamt hlutverk, það hlutverk að gera börnin sín að lærisveinum Hans. Hægt er að segja að fjölskyldan sé grunneining kirkjunnar. Til þess að kirkjan vaxi og dafni þarf því trúarlega sterkar fjölskyldur. Kirkjan þarf að standa þétt að baki foreldrum og leiðbeinendum til að gera þau betur í stakk búin til að takast á við verkefni sitt. Um leið þurfum við að gera okkur grein fyrir að Kirkjan okkar er að mörgu leyti samansafn margra mismunandi Ijöl- skyldna. Litlar, stórar, hefðbundnar, óhefðbundnar, alls konar flölskyldur mynda saman það sem við köllum söfnuð eða trúsystkini. Saman erum við ein stór flölskylda í Kristi. Við sem kirkjufjölskylda eigum að styðja við minni fjölskyldueiningarnar og sér- staklega þá sem hafa ekki stuðning foreldra. Trúarlegir leiðbeinendur þeirra geta verið amma, afi, og áhugasamir safnaðarmeðlimir. Biblían gefur okkur dæmi um þetta eins og t.d. Mordekai frænda Esterar. Samkvæmt bandarískum rannsóknum (6. maí 2003, Rannsóknarhópur Barna. www.barna.org) þá bendir ýmislegt til þess að foreldrar skorti skýr markmið með trúarlegum vexti barna sinna. Gæti kirkjan ekki komið þarna inn til að undir- búa og styðja foreldra í þessu mikil- væga hlutverki? Leiðirnar eru ef til vill margar en koma þarf til samstillt átak allrar safnaðar- meðlima. Unga fólkið er framtíðin okkar og við þurfum að taka til starfa strax. Hópurinn sem fór utan til Englands hefur hug á í samstarfi við stjórn Kirkjunnar að setja af stað verkefnið hér á landi í mars. Við höfum fengið til liðs við okkur safnaðarstjórnimar í Reykja- vík og Hafnarfirði. Hvernig er verkefnið byggt upp Hér er ekki um neinn nýjan sannleik að ræða, enda hefur kennslubókin okkar verið sú sama í mörg þúsund ár. En hér er leið, ákveðið tæki til að fjölskyldur geti kastað akkeri í straumþunga hverdagslífsins og þannig fengið tíma til að endurbyggja tilbeiðslu (jölskyldunnar og styrkja fjölskylduböndin. Allir I AÐVENTFRÉTTIR • Janúar 2007

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.