Aðventfréttir - 01.01.2007, Síða 5

Aðventfréttir - 01.01.2007, Síða 5
foreldrar vilja standa sig vel í sínu ábyrgðarmikla hlutverki. Við vitum bara ekki alltaf hvernig á að byrja. Til að geta kennt öðrum að vera lærisveinn þarf maður að vera það sjálfur. Fyrst er foreldrum og öðrum leiðbeinendum boðið upp á undir- búningsefni sem kallast Fótspor fyrir foreldra og leiðbeinendur. Fótspor fyrir foreldra og leiðbeinendur mun hefjast í mars 2007. Svo mun efni sem kallast Fótspor fyrir krakka og unglinga heljast seinnipartinn í ágúst 2007. Þar koma fjölskyldur saman og vinna að því að læra meira úr orði Guðs. Farið verður í gegnum ákveðið efni, þar sem fyrst er tekið á því að gera Jesús að persónulegum frelsara. Þá eru grund- vallaratriði trúarinnar tekin fyrir og börnunum/unglingunum/fjölskyldunum kennt að deila Jesús með öðrum, leiða eins og Jesús og vera vinur eins og Jesús. Efnið er skemmtilega upp byggt og óhætt að lofa að börnin, unglingarnir og ekki síður foreldrar og leiðbeinendur munu hafa gaman af. Framtíð verkefnisins Unglingar/krakkar eins og Jesús er verkefni sem við trúum að eigi aðeins eftir að stækka. Markmiðið er að sér- hver einstaklingur verði lærisveinn Guðs. Við þurfum fólk eins og Jesús. En við eigum ekki að stoppa við kirkju- dyrnar. Þjóðin er safn fjölskyldna sem margar hverjar eru að flosna upp og fullt af áhyggjufullum foreldrum sem eru að leita að einhverju betra fyrir börnin sín. Með því að sinna þörfum barna opnast margar dyr. Hér eru ómældir akrar til boðunar. Verkefnið verður nánar kynnt á samkomum í kirkjunum i Reykjavík og Hafnarfirði í janúar og febrúar 2007. Hlökkum til að sjá ykkur þar! Fyrir hönd hópsins, Þóra Lilja Sigurðardóttir The Conflict of the Ages Series -Bókaröðin; Baráttan milli góðs og ills Settið inniheldur bækurnar; Þrá aldanna Deilan mikla Postulasagan Ættfeður og spámenn Spámenn og konungar Þetta er ódýr útgáfa á ensku og settið er á kr. 1995,- Education (á ensku) eftir Ellen G. White Hvaða leiðbeiningar gaf Guð spámanni sínum varðandi menntun? Er skilningur okkar á menntun réttur? Hér dregur Ellen G. White upp mynd af hinni sönnu menntun - menntun sem veitir einstakling þá gleði að þjóna í þessum heimi og undirbúa sig fyrir æðri þjónustu á komandi jörðu. Bókin er þannig tileinkuð foreldrum, kennurum og nemendum í undirbúningnámi hér á jörðunni og ætluð til að hjálpa þeim að öðlast blessun. þroska og gleði i þjónustu sinni og þannig gera þau hæf til æðri þjónustu, í framhaldsnámi, í skóla eilífðarinnar. Verð kr. 790 Bókin (einungis á ensku): It’s about people - Þetta snýst um fólk. Hvað gerir kristinn einstaklingur, sem hefur há biblíuleg og siðferðileg gildi, við fólk sem horfir á hlutina á allt annan hátt? í bók sinni segir Jim frá því þegar hann öðlaðist nýtt sjónar- horn á atburöinum sem gerðist á krossinum. „Það er meira í kristindómnum en það að finna galla og að hafa á réttu að standa" segir Jim, - „þetta snýst um fólkl" Frábær bók á góðu verði - kr. 1200. ath. bækurnar eru bundnar í pappírskilju og líta því öðruvisi út AÐVENTFRÉTTIR • Janúar 2007

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.