Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1922, Blaðsíða 4

Læknablaðið - 01.08.1922, Blaðsíða 4
LÆKNABLAÐIÐ 114 Boganum frá hvirfildepli að sjóndeildarhring er skift í 90 grátSur; sólar- hæhin í Reykjavik veröur mest rúmar 490, en á Akureyri tæpar 48°. Eftir sólarhæöinni, þ. e. a. s. stefnu sólargeislanna, fer vegalengd sú, sem geisl- arnir þurfa aö fara um lofthvolfiö til þess að ná jöröu; loftið sjálft (atmossfæren), svo og vatnsgufa og mistur dregur úr sólskininu, og hefir mönnum talist svo til í Mið-Evrópu, að ekki komist nema 50% sólarljóss- ins niður að sjávarfleti. Engar rannsóknir hafa mér vitanlega verið gerð- ar í þessu efni á íslandi, en trúlegt þykir mér að sólskin hér á landi sé sérlega kraftmikiö. Mistur er jafnaðarlega lítiö og loftkuldinn velduv |)ví, aö lítil vatnsgufa mun vera í loftinu, svo framarlega sem ský ekki dregur fyrir sólina. Mjög væri æskilegt, að eðlisfræðilegar rannsóknir væru geröar hér á landi á þessum efnum. Sú kliniska reynsla, sem eg hefi, bendir á aö sólskinið á Islandi sé kraftmikið; í sömu átt benda athuganir hr. Sig. Magn., sem hann birti í Læknabl. 1916. Ennfremur vantar hér á landi ábyggilegar rannsóknir um margra ára bil á því, hve margar sólskinsstundir eru á ári að meðaltali i ýmsum landshlutum. Það mun koma i ljós viö slíkar athuganir með sólskinsmæli, að landið reynist sólrikara en flestir halda. Af skiljanlegum orsökum hættir okkur viö aö miða sólfarið við heyþurk og fiskþurk, en vel verður að gæta þess, að á óþurkasumri geta verið margar sólskinsstundir sem nota má handa sjúk- lingum, þótt ekki sé sólfariö svo ábyggilegt að menn þori aö hreyfa hev eöa fisk. Sjúklingur getur fengiö 2—3 glaðar sólskinsstundir síðari hluta dags, þótt regn sé fyrri partinn. Mér ]>ykir trúlegt að íslenskir læknar mundu leggja meiri rækt viö sólskinslækningar ef gerðar yrðu vísindaleg- ar rannsóknir á krafti sólarljóssins hér á landi og sólskinsstundatölunni. Sólskinsböð eru jafngömul sögu læknisfræöinnar, en á síðari tímum hafa aðallega skurðlæknar aukiö þekking læknanna á þeim. Má meðal hinna eldri minna á B o n n e t í Lvon, sem margir kannast viö. Á síð- ari árum eru frægastir sólskinslæknar B e r n h a r d og R o 11 i e r, sem báðir veita forstöðu sólskinsspitölum í Alpafjöllum. Erlendis hafa menn kostað kapps um að sóla sjúklinga með útvortid Irerkla á háfjöllum; er þaö beinlínis gert í því skyni að flytja sjúkling- ana nær sólunni, og færa sér í nyt sólskinið áöur en mistur og vatnsgufa lofthvolfsins ná aö draga úr krafti sólargeislanna. Menn hafa fram á síðari ár hugsað sér lækningakraft sólarljóssins bundinn við fjólu- og út- fjólubláu geislana í sólskininu, en þeirra gætir mest á fjöllum uppi; þeir komast síður um lofthvolfið en rauðu og gulu geislarnir í sólarljósinu. Þess vegna er rauðleitur blær á sólskininu um sólarupprás og sólarlag, því þá verður vegalengd geislanna mest um lofthvolfið og bláu geislarnir dragast aftur úr. Himinbláminn er og talinn að orsakast af afturkasti og endurskini bláu geislanna. B o g a 1 j ó s. Engin ljós, sem notuð eru til lækninga, munu vera líkari að samsetning sólarljósinu en bogaljósið; það myndast í bogalömpum þegar sterkum rafmagnsstraum meö lágri spennu er hleypt milli tveggja póla, sem ýmist eru úr koli eða málmi; venjulegast er notað kolbogaljós, sem eru mjög heit og að ])ví leyti þvingandi fyrir suma sjúklinga. Eru 1)0galjósböðin venjulega notuö annan hvern dag 2—3 klst. í senn. Boga- ljósin eru dýr. Til þeirra þarf mikiö húsnæöi, sterkan rafmagnsstraum og nákvæma gæslu; auk þessa þarf sérstakar breytivélar til þess að breyta

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.