Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.08.1922, Qupperneq 13

Læknablaðið - 01.08.1922, Qupperneq 13
LÆKNABLAÐIÐ 123 fín eftir því sem með þarf, en þaS er þá ákveSiS meS því aS prófa skynj- un og sjerstaklega minni konunnar. Menn uröu fljótt varir viö ýms óþægileg áhrif af þessari deyfingu, og kendu það morfíninu aS miklu leyti, þó aS scopolaminiö eigi sennilega eins mikinn þátt í þeim. En það var hægt aS fá eins góðar deyfingar meS öSrum efnum i sambandi viS scopolamin, og því var sjálfsagt aS nota þau ef þau reyndust minna eitruS en morfínið. MeS því að nota narcophin eSa pantopon reyndist hættan töluvert minni, og þess vegna auSveldara aS gefa vissar reglur um injectíónirnar og meS því hægt aS sleppa viS minnis og skynjunarprófiö, sem mikla æfingu þarf til að gera ábyggilega. 1914 gaf Siegel (í D. med. Wochenschr.) þessa r reglur Byrja meö .... 0.00045 g■ scop. -þ 0.03 g. na rcophin % klst. seinna 0.00045 g- — ekkert — iýú — — 0.00015 g. — + 0.015 g. — 3 — — 0.00015 g. — ekkert — 4>4 — — 0.00015 g- — ekkert — 6 — — 0.00015 g. — + 0.015 g. — 7V* - - 0.00015 g. — ekkert — 9 — — 0.00015 g. — ekkert — wy2 _ — 0.00015 g. — + 0.015 g. — og því næst 0.00015 g. scop. á 1 y2 klst. fresti. Ef memi vilja nota pantopon í staSinn fyrir narcophin, þá má fyrst gefa 0.01 g. og seinna 0.005 g. Þessar reglur Siegels hafa þótt fremur góöar sem undirstaSa, en auS- vitaS er þaS mjög misjafnt hvaS konur þurfa til þess aS verða verkja- lausar, eins og líka verkirnir eru misjafnir og sársaukatilfinningin. Oft er svo gefiS lítiS eitt af chloroformi eða chloraethyl rétt meöan á kollhríö- inni stendur. Eins og áSur er um getið, hefir scopolaminhöfginn þau áhrif á konuna aS verkirnir dofna eSa hverfa, en þó er þaö ekki altaf svo, en þá bætir þaS úr. aS konan man ekkert eftir þjáningunum. Ýms óþægindi fylgja þessum höfga, sem gera þaö aö verkum, aö erfitt er eöa illhægt aS nota hann í heimahúsum. Konan verSur cyanotisk, rauöblá í andliti, og oft fylgir mikill þurkur í hálsi og nær óslökkvandi þorsti. Sumar fá ógleði og uppköst, sem þó má oft stöSva meS því aS gefa meira narcophin eSa pantopon. Þetta eru þó smámunir móts viö þá æsingu, sem kemur yfir sumar konurnar, sérstaklega þegar fer aS líSa á fæSinguna og kollhriöin aS nálgast. Þær missa alla stjórn á sjálfum sér, æpa og veina, kasta sér til og frá um rúmiS og berjast um svo mannsöfnuö þarf til þess aö halda þeim. Þó aS þetta komi ekki ýkja oft fyrir, þá má þó altaf viS ]íví búast, og er ilt ef slikt verður í heimahúsum, því aS svo lítur þá út, sem konan sé mjög þjáS. Lika verður mjög erfitt aö gæta þess, aö ruptura perinei komi ekki, þegar konan er mjög óróleg. Sjaldnast eru nokkur óþægileg eftirköst eftir scopolamin-höfgann, en þó einstöku sinnum höfuöþyngsli. Þó kemur þaö oft fyrir, aö konur, sem fætt hafa þjáningarlaust í höfga, vilja þó ekki nota hann aftur. Áhrif höfgans á hríöirnar eru aö jafnaöi lítil. Stundum dregur nokkuS úr hríöunum en þaS jafnast oftastnær upp meö þvi, aS konurnar rembast

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.