Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1922, Blaðsíða 14

Læknablaðið - 01.08.1922, Blaðsíða 14
124 LÆKNABLAÐIÐ betur en ella. Höfginn sýnist heldur ekki hafa áhrif á uterus eftir fæíi- ingu barnsins, svo aö hann trufli losnun fylgjunnar eöa valdi atoni. Þaö sem mestum ágreiningi hefir valdið um scopolamin-höfgann, er áhrif hans á börnin. Surnir læknar, sem mikla reynslu hafa um þetta, telja höfgann hættulausan eöa hættulítinn börnunum, og þykjast jafnvel sjá færri andvanafæðingar með höfganum en deyfingarlaust. Aftur á móti eru aðrir mjög hræddir við þessa deyfingaraðferð vegna barnanna, segja lif barnanna í mikilli hættu og það jafnvel áður en vatnið er runnið. Áhrifin á börnin eru ótviræð og mest virðast þau vera á andardráttar- centrið og meiri ef morfín er notað en ef narcophin eða pantopon er setr í stað þess. Börnin fæðast mörg nokkuð asphyktisk, en rétta vanalega fljótt við aftur, er lífgunartilraunir eru gerðar.. Yfirleitt má segja, að við scopolamin-höfgann þurfi sérstaka árvekni læknis og ljósmóður, og þess verður að krefjast, að læknir sé viðstaddur alla fæðinguna, frá því að deyfingin byrjar, til ])ess að geta hjálpað, ef á þarf að halda. Reglurnar um injectionirnar má að eins skoða sem undirstöðu, sem víkja verður til, eftir því hvernig konan og barnið þola deyíinguna. Til þess að vel verði, þarf sjálsagt mikla nákvæmni og æf- ingu, og einmitt þess vegna munu skoðanir lækna á þessari deyfingu vera svona skiftar. Ný reglugjörð. Reglugerð um sölu áfengis til lækninga er komin út enn á ný, með nokkrum breytingum, og verður ekki annað sagt, en að þær séu til bóta. Skamtur sá, er ávísa má, er nú 210 gr. af Spir. conc., eða y2 fl. aí Sp. vin gall eða sem því svarar af öðrum vínum og má ávísa sama manni slíkan skamt 3. hvern dag ef þörf gerist, meira má þó ávísa sjúk- ling, sem býr langt frá lækni eða handa skipum o. s. frv. er þetta að vísu breyting til batnaðar, en auðsætt er að y2 peli af Sp. vin. gall. er alveg ónógur 24. tima skamtur handa drykkjumanni, ef hann á annað borð þarf á áfengi að halda (6. gr.). Ávisanir á áfengi skulu læknar rita á sérstök eyðublöð, sem landlæknir lætur afhenda í heftum með 50 tvöföldum (áður 25) tölusettum eyðublöð- um og lætur svo úti ný fvrir þau, sem útrituð eru (5. gr.), og er þá eftir- litið með receptgjöfinni aftur komið til landlæknis frá lögreglustjóra, eins og vera ber. Héraðslæknum, sem lyfsölu hafa, var áður gert að skvldi; að nota þessi eyðublaðahefti við afhending áfengis, og var það þýðingar laust og gagnslaust, enda er þvi nú breytt þannig, að þeim ber að eins að færa eyðslubók likt og lyfjabúðir, og virðist svo sem lyfsölustjóri eigi að hafa eftirlit með þeirri bókfærslu, þótt eigi sé það skýrt tekið fram (5- gr- c). Eins og við er að l)úast í Ijannlandi, vill stjórnin ekki leyfa lyfjabúðum eða lyfsölum takmarkalausa áfengissölu, og er þvi svo mælt fyrir í 7. gr., að lyfjabúðir og manna- og dýralæknar skuli senda stjórnarráðinu skýrslu um hve mikinri áfengisskamt hver um sig þurfi á ári, og á svo heilbrigðisstjórnin með tilliti til þessara skýrslna, að ákveða, hve mikið

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.