Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.08.1922, Qupperneq 16

Læknablaðið - 01.08.1922, Qupperneq 16
I2Ö LÆKNABLAÐIÐ 1. Þess skal fyrst og fremst gætt, aS þeim einum sé veitt embætti, sem telja má fyllilega færan og hæfan a‘ð gegna því. 2. Ef aö ööru leyti er likt á komiö um verðleika umsækjenda, ráöi em- bættisaldur. Það skal þó tekið fram, eins og tekið er fram í I. lið, að embættisaldur rnissir smámsaman gildi, þegar maður er kominn á áfturfararskeið, en þaö munu flestir telja úr því komið er um sextugs aldur, þó misjafnt sje þetta um menn. 3. Ef umsækjandi er ungur og lítt reyndur, skal ekki síst taka tillit til prófeinkunnar, en síðar meta meira hversu hann hefir leyst störf sin af hendi, en próf. 4. Framhaldsmentunar eftir próf skulu menn fremur njóta en gjalda og þess frekar, sem hún er meiri. Ber því t. d. að meta öllu meira kandidatsþjónustu á góðum spítala eftir próf en setningu í hjerað um jafnlangan tíma. 5. Ekki skal taka tillit til óska hjeraðsbúa við veitingu embætta, nema mjög lítill munur sje á umsækjendum. Teljum vér, að landlæknir viti allajafna miklu betur en hjeraðsbúar um verðleika umsækjenda. 6. Setning í embætti, eftir að prófi er lokið, sje talin með embættisaldri. 7. Vjer teljum nauðsvn, að til sje að minsta kosti einn tiltölulega vand- aður spítali i hverjum landsfjórðungi, þar sem samgöngur eru auð- veldastar. Hjeruð þessi ber að veita þeim einum, sem ætla má, að geti leyst flestar handlækningar af hendi, stýrt einföldum Röntgen- tækjum, gert algengar sýklarannsóknir og sje að öðru trúandi fyrir erfiðu starfi. Vjer teljum nauðsynlegt, að landlæknir geri læknum kunnugt, hverjar kröfur eru gerðar til lækna þessara, svo að þeir geti búið sig undir slíkt starf i tæka tíð, sem leikur hugur á því. Athygli viljum vér vekja á því, að varhugavert getur það verið, að gamlir læknar, sem ekki eru lengur allskostar starfhæfir, sitji mjög lengi í embættum gegn því að hafa aðstoðarlækni. Kann þetta meðal annars, að leiða til þess, að miður færir læknar gegni stórum héruðum til langframa. Þó gerum við enga tillögu í þessa átt, sökum þess, að vér teljum réttast, að málið kæmi fyrir læknafund. Líkt er að segja um það, ef læknir verður af öðrum ástæðum en elli, ófær eða lítt fær til þess að gegna starfi sinu. Oss virðist nauðsyn bera til, að landlæknir sjái um, að slíkir menn sitji ekki til langframa í em- bætti. Þó að aldrei verði hjá því komist, að landlæknir leggi sjálfstæðan dóm á ýmsa verðleika umsækjenda, þá teljum vér, að ofanritaðar reglur geti mjög oft verið til mikillar leiðbeiningar. Að svo stöddu teljum vér ekki fleiri, en myndum fúslega svara frekari fyrirspurnum, þótt helst kysum vér, að læknum bæði gæfist kostur á að ræða þetta mál i Lbl. og á aðal- fundi félagsins. Mætti þá vera, að ýmislegt kæmi í ljós, sem oss hefir ekki hugkvæmst. Virðingarfylst. Sign. G u ð m. H a n n e s s 0 n, p. t. formaður Lf. ísl. Þá hefir landlæknir sent stjórn Lf. Isl. svohljóðandi bréf:

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.