Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1926, Side 22

Læknablaðið - 01.04.1926, Side 22
52 LÆKNABLAÐIÐ ist 3-strent troikart-opiÖ síöur sanian en parac. Ahaldiö kostar ca. 14 kr., og skal ég fúslega útvega þeim, er vilja. Strax eftir parac. á aö leggja inn steril gazeræmu, helst inn aö hljóðhimnu, en ekki fast, og a börnum skal rjóða vaselini kringum ytra op hlustar, Síðan kompressu utan á, og binda um. Skifta um grisjuna 2svar á dag, 2—3 daga, meðan hitinn er aö hverfa og útferð að verða purulent. Síðan láta sjúkl. hafa jjerhydrol 3%, eða sol. sup. hydrog. 3%, „au mains“, og láta hann hreinsa eyrað sjálfan eins oft og vattkúla yst í eyranu vöknar af greftri, þó það verði fyrst i stað á hverjum klukkutíma. Fyrst hreinsa gröftinn út úr eyranu, með bómull á eldspýtu-enda, síðan 4-5 dr. af perhydroli. Þurka út froðuna. Endurtakist 2—3 sinnum í hvert sinn. Skolanir hættulegri vegna otitis externa. Læknirinn hreinsar sjúkl. 2.—3. hvern dag, og séu öll akut einkenni horfin (hiti og verkir), þá er gott aö gera Politzer — þegar búið er að hreinsa eyrað. Pol. gerir þrent: 1) blæs út úr tuba og miðeyra; 2) held- ur við perforationinni; 3) réttir beinin úr þeirra inflammat. kontractur. — Að lokum er gott að blása inn oíurlitlu af ac. boric. pulv. Sé útferö ekki orðin alveg slímkend (spinnandi) og sama sem búin, og' sjúkl. ekki i „bedste Velgaaende“, eftir 3 vikur, er sjálísagt aö senda hann til sérfræðings, sé þess kostur. Fjórða vikan er sá örlagaþrungni tími fyrir sjúkl., og hvað þá getur borið út af, — og raunar lika þangað til — ef ekki gengur vel, væri nóg efni i nýjan kapitula. Gunnlaugur Einarsson. Sullasýking-. Háttvirt Læknablað! Eg sé að menn deila um hversu menn taki, sullaveiki, deila um ull, skó- garma og hundagrímur. Þá er deilt urn skegg keisarans. En hvað þýða þessar bollaleggingar og endurtekningar ? Það verður aldrei neitt sann- áð með endurtekningum. Þegar eg sá ullarteoríu Matthíasar, þótti mér hún svo merkileg, aö eg íór að rannsaka málið, fór að leita að echinokokeggjum i ull. Notaði eg íslenska, óþvegna vorull, af fé sem lifir við sömu skilyrði og kvíaær. „ís- lenskt tómlæti" getur því ekki átt við mig, enda mun ekki meint til mín. Eg hefi notað mína eigin aðferð við rannsóknirnar, og soðið hana að nokkru leyti saman úr bestu aðferðum, sem menn i heilsufræðum hafa, til að leita að þarmparasítaeggjum í vatni og saur. Set eg hér aðferð mína, til þess að menn, sem reka vilja af sér „íslenskt tómlæti" geti notað hana. Annars mun eg skrifa um þetta bráölega í erlent tímarit. Mun það koma sem „Meddelelse" frá heilsufræðisstofnuninni hér í Kaupmannahöfn, og má eg því lítið um það tala hér, að svo stöddu. Materíalið, sem maður vill leita i, hræri eg út í eter, og læt standa nokkra klukkutíma, og setjast til. Þá leysast upp lausar fitur. Botnfallið hræri eg síðan út í 52% uppl. af kaliumkarbonat. (K2 C03 vökvinn hefir við 150 C. eðlisþungann 1.57079). Síðan centrifúgera eg kröftuglega. Ofan

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.