Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.1926, Qupperneq 28

Læknablaðið - 01.04.1926, Qupperneq 28
5'8 LÆKNABLAÐIÐ tíranulationir. Umbúöir skulu ætíö vera þurrar, en ekki l^akstrar, vegna hörundsins. — Höf. fer nokkrum orSum um notkun gibs-umbúða viö börn. L u n g n a s j ú k d ó m a r e f t i r s k u r ð i. Bronlchitis ungbarna er ætið alvarlegur sjúkdómur, ekki síst eftir skuröi. Þá vofir yfir hætta á pneumonia lobularis. Höf. varar við að láta ungbörn liggja lengi í sömu stellingum. Spritt-þvotta, senneps-bakstra og terpentinu-böð notar höf., og mælir með því (2—3 matsk. af terpentínu i laugina). Sárinu lokað með collodium. Við svæsna lungnabólgu má taka ungbörnum btóð (arteriotomia), 100—150 ccm. Ungbörn meö lungnabólgu geta oft ekki sogið brjóst eða pela, og þarf þá að vökva þau með skeið. 2. Sérstakir sjúkdómar. — L a b i u m leporin u m. Ráölagt að operera pelabörn þegar þau eru orðin alt að því missirisgömul. nema þau geti ekki nærst, vegna vansköpunar. Börn á brjósti skal ekki skera fyr en búið er aö venja þau af. Á undan skurði er líkaminn vafinn baðmull og bindurn, upp að hálsi, aðstoðarmaður heldur höfði sjúkl. Staðdeyfing með novocain-suprarenin alla leið upp í fossa canina; jafnframc nokkrir dropar af chloroformi, ef þess þarf. Vaselin, en engar umbúðir á sárið; skorpa má ekki myndast, vegna infectionar frá munninum. Tróði er þja])i)að i nösina yfir sárinu, til þess að varna hor að renna á sárið. Pappahólka um olnbogaliði, til þess að börnin komi ekki fingrunum að vörinni. Höf. gefur barninu gr. 0.5 hedonal í clysma, til þess að lina sárs- auka, og sem svefnlyf. Saumur tekinn út á 5. eða 6. degi; „Entspannungs- naht“ á 7. degi. Börnin fá mjólk þegar á 1. degi eftir skurð, annaöhvort með skeið eða um lina tottu, með víðu gati, og þykir heppiiegt að gefa þeim vatn eða te i lok máltíðar, til að hreinsa munninn. Nánara er lýst saumi og gibsumbúnaöi um höfuð barnsins. P a 1 a t u m f i s s u m. Höf. vill ekki operera íyr en börnin hafa náð 2 ára aldri. Nánari lýsing á „teknik“. Höf. varar við tann-caries og bólgu i miðeyra; geta valdið infection í gómsárinu. T r a c h e o t o m i a. Þessi aðgerð er nú siður gerð við croup, en áður fyr. en oft notuð intubation. Þótt skurðurinn takist, deyja börnin oft vegna hjartabilunar. Höf. notar súrefnis- og gufuinnöndun, og serum. Áhersla lögð á hæfilega lengd og vídd canylunnar. Rök grisja sé höfö á canylu- opinu, og gufa i sjúkraherberginu. Innri pípuna þarf iöulega að tttka út, til hreinsunar, og jafnvel færa fjöðurstaf gegnum innri pípuna, til þess að losa skófir, er þar kunna að festast. Ef canvlan skyldi sleppa út úr barkasárinu, er tilgangslaust að ætla sér að ýta henni inn, nema barka- sárinu sé haldið sundur með hökum. Oft má losa sjúkl. við canyluna á 4.—5. degi. Ef píparl þarf að liggja lengur, veröur aö skifta um 2. hvern dag, og nota mislangar canylur, til þess að forðast de.cubitus i barkan- um. Best er að taka ])ípuna fyrir fult og alt að morgninum til, en eiga það síður á hættu undir nóttina. Struma — M b. B a s e d o w i. Parenchymatös struma er venjulega miklu blóöríkari hjá börnum en fullorðnum, og má þvi l)ú- ast við miklum blóðmissi, ef til skurðar kemur. Struma skal ekki skera, nema vegna mjög þvingandi compressions-einkenna. Mjög oft hverfa ])ubertets-struma af sjálfu sér, líka reynast vel joðmeðul innvortis. Öðru máli gegnir um s t r u m a c y s t i c a, sem þarf að skera burtu fremur fyr en síðar, enda er blóðmissir miklu minni heldur en þegar

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.