Læknablaðið - 01.10.1930, Síða 23
LÆKNABLAÐIÐ
165
Við þetta framtal er þaö at5 athuga, a'Ö það mun yfirleitt vera alt of lágt,
því a'ð mörgu er skotið undan og skýrslur of ónákvæmar. Einkum er trú-
legt, a'ð fjöldi dáinna af afleiðingum af abortus, sé ekki talinn fram ví'ða
i löndum. Víst er um það, að abortus er orðinn landplága víðast hvar, og
sívaxandi kvendauði af þeim völdum; og fullyrða má, a'ð jafnhliða því
að barnadauði hefir á síðustu þremur áratugum mjög minkaö, um allan
mentaðan heim, hefir mæðradauði vaxið, og væri æskilegt, að skýrslur
lækna þar um yrðu skýrari og nákvæmari, svo að nær verði komist, um
hve mikill mæðradauðinn sé í raun réttri.
Lengi hafa menn vitað, að ógiftum konum stendur lífshætta meiri af
barnsþykt og barnsförum en giftum. Ensk skýrsla um 34.654 fæðingar
sýnir t. d. helmingi hærri mæðradauða meðal ógiftra en giftra, og þrisvar
sinnum tíðari barnsfarasótt meðal hinna fyrrnefdu.
Fyrrum var mikið af abortus talið syfilis að kenna. Nú ber lítið á því
að syfilis eigi þar sök, heldur munu þar meira koma til greina a'ðgerðir
rnanna og ekki síst skottulækna. Fyrir sífelda aukning slikra aðgerða, og
mjög hættulega heilsu og lifi kvenna, var fyrst á Þýzkalandi og síðan á
Rússlandi, farið að veita konum ókeypis aðgang að sjúkrahúsum, til þess
þar að fá sérfróða hjálþ og góða aöhjúkrun. Síðan 1920 hefir rússnesk-
um konum verið, a. m. k. i stórbæjunum, heimilað með lögum, að leggjast
á sjúkrahús, til að leysast frá fóstri. Þessi heimild hefir verið svo óspart
notuð, að erfitt hefir verið að fullnægja eftirsókninni, en síðan á þessu
var byrjað, hafa fengist góðar og ábyggilegar ský’rslur um morbiditas og
mortalitas samfara aliortus, en nota bene aðeins þann, sem er lcge artis
provocatus. Niðurstaðan er, að því leyti glæsileg, aö dauði hlýst sjaldan
af, þegar rétt er farið að. T. d. sýnir skýrsla frá Moskwa, að 29.306 abortar
voru framleiddir þar á sjúkrahúsum, án þess nokkur kona dæi. Hins
vegar er orð á því haft af rússneskum læknum, að margar konur séu lengi
að ná sér, og langvinn taugaveiklun hljótist oft af aðgerðinni.
Aftur hafa þýzkir læknar lengi séð mikið heilsutjón og dauða hljótast
af abortus í laumi framinn, ýmist af konunum sjálfum, eða skottulæknum.
Þegar fyrir stríð var mikið um aborta í Þýskalandi. T. d. var taliö 1911,
að árlega kæmu fyrir um miljón aborta. En 1927 var talan komin yfir
1 miljón, en þar af, giskuðu þeir á, Bumm og aðrir kvennlæknar, að 90%
væru af ásettu ráði gerðir. Ennfremur halda þeir því fram, aö á seinni
árum deyi um 30 þúsund konur á Þýzkalandi af afleiðingum af fóstur-
láti, en sumir meina a'ð það sé of lágt reiknað. Alt í alt halda þýskir lækn-
ar, að árleg tala aborta sé orðin jafnhá og tala fæðinga. Svipað er hlut-
fallið oröið á Frakklandi. Á Englandi er ekki svo langt komið enn, en
stefnir í sömu átt.
Kvennalæknirinn Louise McCroy, sem mjög hefir rannsakað þessi kvenna-
mál á Englandi, segir, að mjög fari þar í vöxt að giftar konur láti losa
sig við fóstur, jafnvel meira en ógiftar.
Það er alment tali'ð, að erfiðar fjárhagsástæður og atvinnuleysi valdi
mestu um tiðkun aborta, einkum síðan það fór stöðugt í vöxt, að konur
vinni fyrir sér sjálfar (t. d. er á Frakklandi talið, að um 50% kvenna hafi
atvinnu fyrir sig, og í París þó meira).
í enskum læknaritum sést mikiö ritað um mæðradauðann þar í landi
og eiga í rauninni enskir læknar upptök að því, að byrjað er að gefa þessu