Læknablaðið - 01.05.1936, Síða 11
LÆKNAB LAÐIÐ
anna, og nýr sjúklingahópur tekur
viÖ, strax og hinir eru búnir aÖ
klæða sig. Það fer betur með brenn-
arann, að lofa að loga á honum,
heldur en að slökkva á milli.
I daglegum rekstri er að eins
jjurkað af brennaranum nteð
þvottaskinni eða voðfeldri Jjurku,
en varast að koma við hann með
f ingurgómunum.
Við og við er athugað, að uppi-
höld brennarans séu í fullkomnu
lagi.
Ský á brennaranum. — Endur-
nýjun. Ljósið í kvartsbrennaran-
um kemur til af glóandi kvikasilf-
urgufu inni fyrir. En kvikasilfrið
gerir meira en að lýsa. Það hefir
tilhneiging til að setjast í bletti, eða
sem gulleitt ský, innan á kvartsið,
og æ meir eftir því, sem lengur
logar á lampanum. Þetta ský á
kvartshólknum dregur smám sam-
an úr birtunni frá lampanum, og
vitanlega mest, þegar brennarinn
er orðinn svo gamall, að regluleg-
ur sorti er kominn á kvartsið. Þá
geta Ijósböðin orðið „illusorisk“.
Verksmiðjurnar ráðleggja að at-
huga brennarann eftir 8—900 log-
tíma, og setja inn nýjan, ef veru-
legt ský er komið á kvartsið. E11
dagleg reynsla sýnir, að brennar-
arnir eru misjafnir, að þessu leyti.
Sumir dökkna einkennilega fljótt,
en aðrir haldast glærir furðanlega
lengi. Eg vil ráðleggja öllum lækn-
um. sem nota Jjessi ljóstæki, að
lialda bók um logtúna livcrs brenn-
ara, frá því hann er settur inn, og
farið er að nota hann. Á hverjum
degi, sem ljósböð eru í gangi, séu
logtímarnir skráðir. Með öðru ntóti
er engin leið að vita um æfi brenn-
arans. Ef læknirinn gætir ekki ljós-
anna sjálfur, felur hann skrásetn-
inguna Jjeirri dörnu, sem sér um
ljósböðin. Logtimarnir eru gerðir
upp á mánaðamótum.
25
Fyrstu 5—600 logtímana í rekstri
brennarans má taka rólega, en úr
Jjví Jjarf að gefa honum gætur. Það
kann að vera, að hann sé svo skýj-
aður eftir 700 klst., að rétt sé að
senda hann aftur til verksmiðjunn-
ar, til endurnýjunar. En aðrir
brennarar komast talsvert yfir 1000
logtíma, sæmilega glærir og gagn-
sæir.
Brennara má senda verksmiðj-
unni til endurnýjunar. Þeir eru Jjá
bræddir upp, kvartsið hreinsað, not-
að á ný, og blásinn út nýr brenn-
ari. Með þessu móti sparast hér-
umbil hálft brennaraverð.
Annars má ekki einblína á log-
timana, en gefa gætur bíológiskum
áhrifum lampans á sjúklinginn. Vit-
anlega er ástæðulaust að hætta við
brennara, — Jjó lengi hafi logað á
honunt —, ef hann veldur kröftug-
um húðroða á stuttum tíma.
Samtalningin og bókfærslan á
logtímunum er ómissandi. Ef brenn-
arinn endist eitthvað óvenjulega illa,
er gott að geta gefið verksmiðjunni
nákvæma skrá um logtimana. En
gagnvart sjúklingunum er Jjað mór-
ölsk varúðarráðstöfun, að fvlgjast
vel með aldri og ástandi brennar-
anna, og láta ekki endurnýjun
þeirra lenda í undandrætti. Mér er
til efs, að þvi sé nægileg atbygli
veitt, á hinum mörgu ljóslækninga-
stofum landsins, að vinna með
nægilega glærum kvartsbrennurum,
og meðfram Jjess vegna hefi eg
tekið saman Jjessar bendingar.
Straum-tcnninologi:
Riðstraumur = breytistraumur =
vixlstraumur.
Rakstraumur = jafnstraumur.
Fyrstu nöfnin munu vera lög-
leidd, en rafvirkjar nota venjulega
orðin breytistr. og jafnstr., í dag-
legu tali.