Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.03.1938, Qupperneq 10

Læknablaðið - 01.03.1938, Qupperneq 10
24 LÆ KNABLAÐIÐ colon því látin eiga sig. Nú er bundiö fyrir nýrnastilkinn og hann skorinn sundur og eins ure- ter, sem virðist eðlilegur. Þegar tumotl er skorinn að endi- löngu, þá keniur í ljós, að nýrað er að mestu eðlilegt, nema i neðri þólnum. Þaðan gengur tumor, sem er á stærð við hænuegg og virðist eins og liggja inni i hinni hörðu og þykku capsula adiposa. Engin struktur er sjáanleg i tumornum, sem mest líkist gamalli, uppþorn- aðri blóðlifur, en í henni er tölu- vert af i—2 cm. löngum beinflis- um, sem surgar í þegar sundur er skorið. Eftir að tumor er tekinn, er peritoneum lokað og síðan vöðva- sárinu með catgut, en silki í húð. Méche lögð inn' að stilknum. Sjúklingnum hefir farnast vel eftir aðgerðina og það hafa ekki komið fram neinar komplicationir og eru nú 13 dagar liðnir síðan hann var skorinn upp. Histol. rannsókn: Makroskop- iskt sést i nýranu hnöttóttur tu- mor, 4 cm. i diameter. Skurðflöt- urinn er ýmist ljósgulleitur eða rauðbrúnleitur; sumstaðar finnast i honum smágulleitar, harðar flis- ar. Þótt tumorinn marki sig greini- lega frá nýrnavefnum í kring, er það fyrst og fremst vegna litar- ins, en það virðist ekki hægt að flisja hann út 0g engin capsula í kring. Stykki er skorið úr nýranu á mörkunum milli tumors og heil- brigðs nýrnavefs. Mikroskopiskt sést nýrnavefur- inn í kringum tumorinn að mestu eyddur. Jiannig að mjög mikill bandvefsvöxtur sést utan um glomeruli, en fyrir tubuli vottar ekkert. Sjálfur æxlisvefurinn er sæmi- lega skarpt aðskilinn frá nýrna- vefnum, en þó sjást á stöku stað smá-eyjar af tumorvefnum teygja sig inn i aöliggjandi vef. Sjálfur tumorvefurinn sést í óreglulegum flyksum um alt, en ber þó mest á þeim útÚ undir heillirigða vefn- um. Hér um bil allar frumurnar eru orðnar kjarnalausar (necrotiskar), en þó sést á stöku stað leyfar af samfeldum vef, samsettum af mjög mismunandi stórum frumum með engum nucleolus, og líkist þetta mest óþroskuðum epithelvef. Ekki sést nein sérstök struktur i þessu, sem likst gæti kirtlum eða því um líku, en alstaðar eru þessar frum- ur þó í smærri og stærri hópum, án þess nokkursstaðar sjáist þó nokkuð, sem greinilega líkist glomeruli. Lausgerður liandvefur sést viða inni á milli. en tiltölulega lítið af æðum í honum. Hér er greinilega um æxli að ræða og vex það infiltrativt. ■—- Vegna þess, hve lítið sést at' lif- andi frumum (röntgenáhrif), er erfitt að úrskurða histologiska diagnosis. Af.því litla, sem sést, virðist þó mega draga þá ályktun, að æxlið sé af epithelial uppruna, sennilega gengið út frá frum-nýra leifum. Prognosu fyrir þennan sjúkling okkar þori eg ekki að stilla, en þó virðist mér hún frekar duliia. Eg vil nú samt vona. að okkur hafi tekist að komast fyrir mein- semdina og að sjúklingurinn fái varanlegan liata. Til frekara ör- yggis gæti komið til mála, að hann fengi röntgen-meðferð, en engar ákvarðanir hafa enn verið tekn- ar því viðvíkjandi.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.