Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.1939, Síða 4

Læknablaðið - 01.09.1939, Síða 4
98 LÆKNABLAÐIÐ fyrir þessu aukna starfi og lífi í félaginu tel eg fyrst og fremst vera hin nýju lög félagsins, því að alt virðist benda til þess nú þegar, að þau ætli aö verka ágætlega til samvinnu og sam- heldni milli félagsmanna, styrkja félagsböndin og verða einstökum félagsmönnum til liagsbóta. Hefir stjórnin um langan aldur ekki staðið í eins nánu sambandi við svo marga íélagsmenn, meö bréfum, símtölum og viðtölum, eins og þetta ár. Þó er þess að gæta, að þetta er aðeins fyrsta árið, sem félagið starfar undir hinum nýju félagslögum og ef framhaldið verður líkt og upphaf- ið, er leyfilegt að vonast eftir hin- um besta árangri í framtiðinni. Það sem eiginlega væri nauðsyn- legt, ekki síst þar sem fjöldi fé- lagsmanna utan Reykjavíkur á svo örðugt með að sækja fundi, og koma því sjaldan eða aldrei. væri að formaður eða einhver úr stjórn- inni gæti sem oftast, og helst ár- lega, ferðast milli félaganna og kynst skoðunum þeirra, högum og áhugamálum, persónulega. En til þess er sjaldnast tírni og því síður fé. — Mun eg þá reyna að nefna flest af því, sem fyrir hefir konrið eða til meöferðar verið tekiö af stjórn- inni þetta ár. i. Vegna þess hve mörg og fróð- leg erindi voru flutt á síðasta að- alfundi þá datt stjórninni það i liug að gefa út sérstök „þingtíð- indi“ fyrir þann fund, en eftir nánari athugun kom það í ljós, að kostnaður myndi verða svo mikill, að stjórnin taldi sig ekki hafa heimild til þess að leggja út í slikt, og varö því að viðhafa sama fyr- irkomulag eins og að undanförnu, að láta það birtast smámsman í Læknablaðinu. Eitt af aðalstörfum stjórnarinn- ar á þessu liðna ári hefir verið að aðstoða lækna við samninga við sjúkrasamlög, samkvæmt 9. gr. fé- lagslaganna, þó enn sé lítil reynsla komin á þetta fyrirkomulag, þá virðist þó alt benda til þess, að það geti orðið til mikilla bagsbóta fyrir ýmsa félagsmenn, þar sem þeir standa miklu betur að vígi, er þeir hafa alt Læknafélagið að baki sér. Verður og þetta til þess, smám saman, að samræma betur kjör lækna hjá sjúkrasamlögun- um víðsvegar um landið. Það er skylt að geta þess, að Trygging- arstofnun ríkisins hefir mjög vin- samlega tekið Læknafélagi íslands sem samningsaðila á þessu sviði, og virðist hafa fullan skilning á því, að rétt sé, að það verði aðal- samningsaðilinn i þessmn efnum í framtíðinni. Hefir komið til tals að Tryggingarstofnun ríkisins og Læknafélags íslands veldu menn til þess að búa til gnmdvallar- form fyrir slíkum samningum yf- irleitt. — Stjórnin hefir á þessu ári haft nokkra hönd í bagga með samningum Hafnar- fjarðarlækna, Vestmannaeyja- lækna, Akraneslækna, Seyðisfjarð- arlæknis og fleiri, og nú sem stend- ur standa yfir samningar viðvíkj- andi flutningi fólks milli sjúkra- samlaga. Af þeSsum samningum voru samningar Vestmannaeyja- læknanna staðfestir aðeins til bráðabirgða, þar sem stjórninni þótti mjög hallað á þá, í saman- burði við hliðstæða samninga. Fara því fram nýjar samningaum- leitanir á komanda hausti. Lækn- arnir á Akranesi sömdu nú í fyrsta sinn og eru þeirra samningar að því leyti fyrirmynd, að öll greiðsla fer fram fyrir unnin verk eins og fyrir venjulega læknishjálp ntan samlaga, aðeins gefinn afsláttur

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.