Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.1939, Síða 6

Læknablaðið - 01.09.1939, Síða 6
IOO LÆKNABLAÐIÐ þessu, og var formönnum L. R. og L. í. faliS aS semja þaö. Bréf þetta var sent 5. okt. og er svo- hljóöandi: „Stjórn Læknafélags íslands leyfir sér hér með aö leita nokkurra upplýsinga hjá hæst- virtum heilbrigöismálaráöherra, út af lausn prófessors Siguröar Magnússonar frá yfirlæknisstööu við heilsuhæliö á Vífilsstöðum. Upplýsingar þær, sem um er aö ræöa, eru einkum þessar: 1. Hvert var tilefni þess, aö pró- fessorinn var leystur frá störf- um áöur en hann varð fullra 70 ára? 2. Vér höfum séð það í dagblöð- um bæjarins, aö umsögn land- læknis um þetta mál muni liggja fyrir hjá ráöuneytinu. Vildum vér leyfa oss aö mælast til þess, aö ráðherrann góðfús- lega vildi láta oss í té álit hans. Til skýringar fyrir hæstvirtan ráöherra á þessari afskiftasemi vorri, viljum vér geta þess, aö í lögum Læknafélags íslands er stjórn félagsins faliö aö gæta hagsmuna félagsmanna í hvívetna og fylgjast meö í öllu, er snert getur þá. Væntum vér heiöraös svars ráö- herrans viö fyrstu þóknanlega hentugleika, og jafnframt viljum vér geta þess, aö oss væri mjög kærkomið aö mega síðar eiga von á samræðum viö heilbrigöisstjórn- ina um málið. Virðingarfyllst." Jafnframt var landlækni sent af- rit af bréfi þessu. Svar viö þessu bréfi dags. 8. sama mánaðar barst stjórn L. í. þann 10. og var þaö þannig: „Eft- ir móttöku bréfs félagsstjórnar- innar dags. 5. þ. m., þar sem ósk- að er upplýsinga í tilefni af því, að yfirlæknir próf. Siguröur Magnússon hefir verið leystur frá stöfum viö heilsuhæliö á Vífils- stöðum frá næstu áramótum, vill ráðuneytið taka fram: 1. í lögum nr. 27, 9. jan. 1935, er ákveðið, að opinberir embættis- og starfsmenn skuli leystir frá störfum þegar þeir eru orðnir 65 ára að aldri. Þó er heimilt aö láta þá halda störfum þar til þeir eru 70 ára. í þessu til- felli taldi ráðherrann ekki ástæðu til aö nota heirnildina frekar en þegar hefir verið gert. 2. Ráðuneytiö telur rétt, aö fé- lagsstjórnin snúi sér beint til land- læknis, ef hún óskar að vita skoö- un hans á þessu máli. Skúli Guö- mundsson." Með öðrum oröum alls ekkert svar, eöa neinar upplýsingar í þá átt, sem viö höföum óskaö eftir. Út af síðara atriöinu skrifuðum við landlækni samstundis og báð- um hann um að láta okkur í té upplýsingar þær, sem ráðherrann hefði bent á, aö snúa okkur til hans um. Svaraði landlæknirinn því samdægurs meö svohljóðandi bréfi: „Til svars bréfi Læknafé- lags íslands, dagsettu í dag, þar sem óskað er eftir, aö eg skýri frá afstöðu minni til þeirrar ráðstöf- unar heilbrigðisstjórnarinnar, að leysa prófessor Sigurö Magnússon frá yfirlæknisstörfum við Vífils- staöaheilsuhæliö, vil eg taka þaö fram, að eg hefi persónulega ekk- ert á móti þvi að umsögn mín sé birt fyrir Læknafélaginu eða hverjum sem væri, enda tel eg mig ekki hafa neinn rétt til aö hindra birtingu hennar gegn vilja ráðu- neytisins. Hinsvegar tel eg eftir atvikum óviðeigandi, að eg, upp á mitt eindæmi, láti þessa umsögn mína af hendi, og mun ekki gera það nema eftir beinum fyrirmæl- um ráðuneytisins. VilmundurJóns- son.“ Við vorum því enn jafnnær um tillögur landlæknis. Þó við hins-

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.