Selfoss - 05.12.2013, Blaðsíða 4

Selfoss - 05.12.2013, Blaðsíða 4
4 5. desember 2013 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Þorlákur Helgi Helgason, netfang: torlakur@fotspor.is Myndir: ÞHH og ýmsir aðrir. Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 9.500 eintök. dreifing: Íslandspóstur Fríblaðinu er dreiFt í 9.500 eintökum á öll heimili á suðurlandi. SELFOSS 23. TBL. 2. ÁRGANGUR 2013 Selfoss inn á hvert heimili! Bæjarráð fellur frá hækkunum vegna þrýstings frá minnihluta Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum að undanförnu komu bæjarfulltrúar minni- hlutans í Sveitarfélaginu Árborg ekkert að vinnu við fjárhagsáætl- un fyrir árið 2014 áður en hún var lögð fram til fyrri umræðu. Í þeirri fjárhagsáætlun sem meirihlutinn D-lista lagði fram var gert ráð fyrir 4% hækkunum á gjaldskrár vegna þjónustu við börn og barnafjöl- skyldur í sveitarfélaginu. Um var að ræða hækkanir á leikskólagjöld- um, gjöldum vegna skólavistar og matarkostnaði í leik- og grunnskól- um. Í umræðu um fjárhagsáætlun í fræðslunefnd þann 14. nóvember sl. lagði ég fram eftirfarandi bókun og tillögu: „Undirrituð harmar að fræðslunefnd hafi ekki komið að undirbúningi fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014, sérstaklega þegar horft er til þess að miklar breytingar standa fyrir dyrum á fræðslusviði með tilkomu sérfræðiþjónustunn- ar til sveitarfélagsins ásamt nýsam- þykktri skólastefnu. Fræðslunefnd sem fagnefnd hefur afar mikið fram að færa inn í umræðu um fjárhags- áætlun á fagsviðinu. Undirrituð leggur til að horfið verði frá hækkunum á álögum á barnafjölskyldur í Sveitarfé- laginu Árborg, þ.e.a.s. hækkun- um á leikskólagjöldum, gjöldum í skólavistun og fæðisgjaldi. Sífellt erfiðara reynist fyrir ungar barna- fjölskyldur að ná endum saman. Afar mikilvægt er því að Svf. Ár- borg leggi sitt af mörkum til þess að hamla verðlagshækkunum og viðhalda kaupmætti eins og Samtök atvinnulífsins, verkalýðshreyfingin og fjármálaráðherra hafa beint til sveitarfélaga á síðustu vikum„. Á fundi þann 27. nóvember sl. náðist samkomulag um að fallið yrði frá fyrirhuguðum gjaldskrár- hækkunum meirihlutans vegna þjónustu í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins. Þessi viðsnún- ingur er jákvætt skref og viðleitni í þá átt að styðja betur við bak- ið á barnafjölskyldum sem eru að greiða hátt hlutfall af launum vegna nauðsynlegrar þjónustu við ung börn sín. Það er ánægjulegt að þessi sátt skyldi nást milli minni og meirihluta um þetta mikilvæga mál, þrátt fyrir að undirtektir hefðu ekki verið jákvæðar hjá öll- um meirihlutanum í upphafi þegar tillagan kom fram. Niðurstaðan er fyrst og fremst mikilvæg fyrir af- komu barnafjölskyldna í sveitarfé- laginu okkar. Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi S-lista í Svf. Árborg. Kjörís valið fyrirtæki ársins Kjörís hefur verið valið fyrir-tæki ársins í árlegri könnun sem Báran, stéttarfélag og Verslunarmannafélag Suðurlands stóðu fyrir meðal félagsmanna sinna. Ágæt þátttaka var í könnuninni og er markmið könnunarinnar er að gera það eftirsóknarvert fyrir fyrirtæki að hljóta þessa nafnbót og um leið að skapa sér gott orðspor á vinnumarkaði. Félagsmenn lögðu mat á aðbún- að, stjórnun, líðan og kjarasamn- ingsbundin réttindi. Fimm efstu fyrirtækin í valinu: 1. Kjörís 2. Landsvirkjun 3. Sláturfélag Suðurlands 4. Húsasmiðjan 5. Hótel Selfoss Stekkjastaur Kemur að skoða teikningu af foreldrum sínum Jóladagskrá annan fimmtudag í Listasafninu Fimmtudaginn 12. desember Kl.17 – 18 er efnt til jóla-dagskrár fyrir börn á öllum aldri í tengslum við litla jólasýningu sem búið er að setja upp í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Stekkjar- staur verður nýkominn til byggða og líklegt að hann komi við. Einkum ef hann fréttir af því að í safninu geti hann skoðað teikningu af foreldrum sínum og átt spjall við góða gesti. Anna Jórunn Stefánsdóttir syngur jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötl- um við lag tengdamóður sinnar, Ingunnar Bjarnadóttur og ungur afkomandi þeirra bregður á leik. Hörður Friðþjófsson leikur undir á gítar. Fjallað verður um listamenn- ina Jóhannes úr Kötlum, Tryggva Magnússon og Ingunni Bjarna- dóttur og sungnar verða saman aðrar vísur úr kverinu svo sem Jólin koma sem hefjast á Bráðum koma blessuð jólin. „Jóhannes notaði að mestu sömu nöfn á jólasveinana og séra Páll Jónsson á Myrká sjötíu árum fyrr í þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar. Með jólasveinavísunum má segja að Jóhannes hafi sett í fastar skorður nöfn jólasveinanna, fjölda þeirra og í hvaða röð þeir halda til byggða. Tryggvi færði með teikningum sín- um í kverinu, íslensku jólasveinana nær börnunum og smám saman varð til málamiðlun á milli íslensku tröllanna og ameríska jólasveinsins. Jólasveinarnir fengu að vera þrettán talsins og heita sínum gömlu nöfn- um, sérkennum og smáhrekkjum, þó þeir hafi farið að klæðast fötum hins ameríska og gefa gjafir. Ekki er vitað hvenær Ingunn samdi lagið við jólasveinavísur Jóhannesar, en það er ekki yngra en frá árinu 1947. Ári áður hafði Ingunn flust til Hvera- gerðis og þá bjó þar líka Jóhannes úr Kötlum,“ segir Inga Jónsdóttir, safnstjóri Listasafns Árnesinga. Boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur. Föstudaginn 13. desember og helgina 14. og 15. desember má líka búast við því að jólasveinn hvers dags, þeir Giljagaur, Stúfur og Þvörusleikir líti við kl.17 og gantist við börn og foreldra þeirra á meðan þau eiga samverustund í listasmiðju safnsins. Þetta eru jafnframt síðustu dagarnir á þessu ári sem safnið er opið. Jólasýningin sem sett hefur verið upp í safninu byggir á kvæðakverinu Jólin koma sem inniheldur fimm vísur eftir Jóhannes úr Kötlum; Jólin koma, Grýlukvæði, Jólasveinarnir, Jólakötturinn og Jólabarnið. Tryggvi Magnússon vann teikningar í kverið við kvæðin. Líklega hefur engin bók á Íslandi verið jafn oft endurútgefin og þessi, en hún kom fyrst út 1932 og verið er að gefa hana út nú í 30. sinn. Sýningin er samvinnuverkefni Listasafns Árnesinga, Hveragerðis- bæjar, Listvinafélags Hveragerðis og Landsbókasafn Íslands – Háskóla- bókasafn. Aðgangur er ókeypis bæði á sýninguna og á dagskráratriðin og eru allir velkomnir. Jólamarkaður í Þorlákshöfn 7. og 8. des. Félagar í Lista-og handverks-félagi Ölfuss hafa undanfarin sumur selt fjölbreytt og fallegt handverk sitt og listmuni í Herjólfs- húsinu í Þorlákshöfn. Næstkomandi laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. desember verður haldinn Jólamark- aður í Ráðhúsi Ölfuss frá 14:00 til 18:00 báða dagana. Félagsmenn munu bjóða upp á margskonar handverk og jólavörur. Öflugar handverkskonur í Lista-og handverksfélagi Ölfuss Á myndinni eru í réttri röð: Anna Kristín Kjartansdóttir, skrifstofustjóri, Valdimar Hafsteinsson, framkvæmdastjóri, Gils einarsson formaður Versl- unarmannafélags suðurlands, Halldóra s. sveinsdóttir formaður bárunnar, stéttarfélags og Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri. Jólasveinarnir á leið til byggða. Hin þekkta teikning Tryggva magnússonar

x

Selfoss

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.