Læknablaðið - 15.02.1997, Síða 3
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 3
III
hald í húsinu þannig að fólk getur tekið hund-
ana sína með. Það er alltaf fært að Hreðavatni,
enda hefur nýtingin líka verið mjög góð þannig
að ekki er hlaupið að því að fá húsið um helgi,
þótt utan orlofstíma sé.
- Er eitthvað sem gestir ættu að hafa sérstak-
lega í huga?
Fyrir utan almenna góða umgengni væri
helst að hvetja græna fingur til dáða. Reynt
hefur verið að gróðursetja aðeins umhverfis
bústaðinn en enginn hugar reglulega að því að
vökva, reyta eða sinna annarri vinnu sem
gróðri fylgir. Þetta er einn af ókostunum sem
fylgir því að hafa engan umsjónarmann á
staðnum.
- Er góð reynsla af húsafóstrinu?
Hún er það. Eins og ég hef bent á þá er
enginn umsjónarmaður að Hreðavatni, þannig
að þar þarf að sýna talsverða ræktarsemi. Ei-
ríkur Ingólfsson, smiðurinn sem séð hefur um
allar framkvæmdir fyrir okkur, hefur einnig
hlaupið undir bagga við minniháttar viðgerðir
og lagfæringar og hefur reynst einkar hjálpleg-
ur. Hann býr í Borgarnesi og hefur farið upp-
eftir þegar þess hefur verið þörf. En mikilvægi
húsafóstursins felst í því að sömu einstaklingar
fylgist stöðugt með bústöðunum og séu vak-
andi fyrir að bæta úr því sem afvega kann að
fara. Fyrir utan Hreðavatn varðar þetta einnig
húsin í Brekkuskógi sem Hlédís Guðmunds-
dóttir, Jón Brynjólfsson og Grete Have hafa
fóstrað. Einnig er rétt að nefna að Pétur Heimis-
son á Egilsstöðum og Friðrik Vagn Guðjónsson
á Akureyri, sem báðir eiga sæti í orlofsnefnd,
hafa sinnt umsjónarstarfi á sínum svæðum, sá
fyrmefndi að Brekku í landi Miðhúsa og hinn
síðarnefndi vegna íbúðarinnar á Akureyri.
- í fyrra voru orlofsstyrkir veittir í fyrsta
skipti til þeirra sem ekki gátu nýtt sér þá orlofs-
möguleika sem læknafélögin bjóða upp á.
Verður því haldið áfram?
Orlofsstyrkirnir virtust þó nokkuð vinsælir
þannig að þeim verður úthlutað áfram, en ein-
göngu vegna ferðalaga innanlands. Það er rétt
að ítreka við þá sem vilja nýta sér þennan
möguleika að framvísa verður kvittun á skrif-
stofu læknafélaganna fyrir orlofsdvöl og styrk-
urinn er greiddur eftir á.
- Missa menn punkta við úthlutun orlofs-
styrkja?
Rétt að útskýra núverandi úthlutunarkerfi í
örstuttu máli. Þetta er tölvukerfi sem nefnist
Hannibal og var tekið upp fyrir tveimur árum.
Það felur í sér að félagar læknafélaganna safna
punktum allan þann tíma sem greitt er fyrir þá í
orlofssjóð og við hverja úthlutun taka þeir út
ákveðinn punktafjölda. Úthlutun orlofsstyrkja
leiðir til úttektar á uppsöfnuðum punktum á
sambærilegan hátt og úthlutun orlofshúsnæðis.
Eina úthlutunin sem er undanþegin frádrætti á
punktum er vegna íbúðarinnar í Ljósheimum í
Reykjavík, engu að síður þarf að sækja um
íbúðina yfir orlofstímann. Það góða við Hanni-
bal er að kerfið er ópersónulegt og því ekki
unnt að sakast við okkur sem sitjum í orlofs-
nefndinni, þótt einhverjum þyki biðin eftir
bústað löng.
- En tjaldvagnarnir sem einnig voru nýjung
síðastliðið sumar, hvernig hafa þeir nýst?
Fólk tók tjaldvögnunum mjög vel og var nýt-
ing á þeim góð, vonandi verður svo áfram.
Kostur vagnanna er náttúrlega sá að hægt er að
elta góða veðrið hvar á landinu sem það kann
að vera.
Almennt má segja að nýting á húsum og
íbúðum orlofsnefndar sé góð. Eina sem á
skyggir er að fólk hefur ekki lagt í, einhverra
hluta vegna, að nýta húsið við Miðhús í ná-
grenni Egilsstaða yfir vetrartímann. Þetta er
dálítil synd þar sem Egilsstaðir og umhverfi
þeirra bjóða upp á afskaplega skemmtilega
möguleika yfir vetrartímann, hvort heldur fólk
kýs að ferðast gangandi eða akandi. Brekka,
en húsið heitir það, er ekki nema um einn
kflómetra frá Egilsstöðum þannig að öll aðföng
eru í göngufæri. Fyrir utan það er húsið sjálft
einstaklega hlýlegt og vistlegt. í kynningar-
skyni höfum við nú í vetur boðið fólki að dvelj-
ast ókeypis í bústaðnum, en það hefur samt
ekki verið mikið notað. Það er ástæða til þess
að benda fólki á þennan möguleika og hvetja
þá sem tök hafa á að nýta sér hann.
- Ríkir sátt um orlofsbústaðina og störf or-
Iofsnefndar?
Eg hef ekki orðið vör við annað. Einhverj-
um þykir trúlega óþarfi að greiða í sameigin-
legan orlofssjóð vegna þess að þeir nýta ekki
möguleikana sem bjóðast, en menn hafa ekki
verið að tjá sig neitt sérstaklega um það núna.
Mig langar hinsvegar að taka fram að það hef-
ur veitt okkur Ása ómælda ánægju að leggja
okkar af mörkum til að bæta dvalarmöguleik-
ana við Hreðavatn um leið og við höfum notið
stundanna þar til fullnustu.
-bþ-