Baldur - 16.12.1943, Page 1

Baldur - 16.12.1943, Page 1
LDUR SÓSÍALISTAFÉLAG ÍSAFJARÐAR ísafjörður, 16. desember 1943 B A Ú T G.EF ANDj: IX. ÁRG. Sj álfstæðismáliö og 18 barna faðir í álfheimum. Síðan á 13. öld hafa Íslend- ingaa* haldið uppi baráttu fyrir frelsi sinu. Islenzk alþýða lief- ir raunar frá fyrstu byggð Is- lands háð ósleitilega baráttu við innlenda og erlenda kúg- un, kirkju, hallæri, eldgos, isa, og pestir. Oft hefir horft ó- vænlega. Einu sinni stóð til að flytja alla Islendinga til Dan- merkur. Fyrri hluti 19. aldar fól í sér spíruna að írelsi þjóð- arinnar, vökvaða i blóði franskrar alþýðu. Skáld 19. aldarinnar hlúðu að nýgræð- ingnum. Fyrir aðhlynningu Jóns Sigurðssonar varð hann að stóru tré, sem byrjaði að blómstra og bar að lokum full- an ávöxt 1918; ávöxt, sem við þó ekki máttum njóta, var talinn okkur of megn, unz við urðum 25 ára — rnyndug. 1918 þurftu Danir að semja við tvo aðila. Þeir þurftu að semja við handamenn þeirra tima um endurheimt dansks lands af Þjóðverjum, og þeir þurftu að semjá um íslenzkt land við lslendinga. Islendingar höfðu aldrei samið við danskt fólk, dönsk stjórnarvöld, né danskan kóng. — Þeir höfðu aðeins sániið við norskan kóng. Sá sanmingur var kajlaður Gamli sáttmáli. Eftir að Noregur sameinað- ist Danmörku 1380 og varð raunverulega danskt land með danskan kóng, varð Island lagalega laust úr álögum vegna vanefnda norskra kónga. Hefði Jón Sigurðsson ekki haft Gamla sáttmála til að styðjast við, væri Island að líkindum ennþá dönsk hjá- lenda. lslendingar lieimtu rétt sinn 1918, af því að dönsk stjórn- arvöld mátu meir Suður-Jót- land heldur en Island. En samningamennirnir 1918 komu sér saman um að telja Islendinga ekki l'ullveðja fyrr en eftir 25 ár, eða 1943. Þetta var að vísu harður dómur, en lionum varð að hlýta, enda töldu Islendingar sig eiga stutt í land, og hafa víst ár- menn Islands ekki látið sig dreyma um, að þeir Islending- ar myndu fyriríinnast á því herrans ári 1943, sem spyrndu fótum við, þegur þeir loks skyldu öðiast fullt sjálfsfor- ræði. Eftir þetta biðu Islendingar ánægðir og fullir áhuga fyrir að vinna landi sínu gagn, því að nú áttu þeir að fá að njóta þess einir. Eftir 10 ár, eða 1928, koma fyrstu yfirlýsingar l'lokkanna á alþingi,, undantekningar- laust, um að Islendingar myndu taka að fullu og öllu í sínar hendur sjáll'sforræði sitt 1943. Eftir það komu margar slíkar yfirlýsingar fram við jins tækifæri. Engan grunaði nein eftir- mál. Engan grunaði Islendinga um hugleysi. Alþýðunni kom ekki annað til hugar en að samhandslög- unum yrði sagt upp 1940, til þess að hægt yrði að fullu og öllu að slíta sambandslögunum 1943. 1940 eru Islendingar her- numin þjóð eins og Danir. Siðar var hernáminu aflétt og Islendingar fengu hervernd Bandaríkjamanna sem frjáls þjóð, við það breyttist mjög aðstaðan til sambandslagasátt- málans. Yfirlýsingin 17. maí 1941, um að Islendingar á- skilji sér rétt til fullkominna sambandsslita, sem þeir muni þó ekki framkvæma að ó- breyttum aðstæðum — var gerð meðan Islendingar voru hernumin þjóð: seinna um sumarið var hernáminu aflétt; við það breyttust aðstæðurnar. Þrem árum seinna er því sam- bandssáttmálinn úr gildi fall- inn, formlega, lagalega — eng- ar vanefndir, aðeins sjálfstæð- ið fullra 25 ára garnalt — eða þjóðin vel fullveðja eftir dómi samningamanna 1918. Enginn lætur sér detta ann- að í hug, en að þjóðin þori að gjörast fullveðja og fara með fullan atkvæðisrétt á þingi þjóðanna, sem vonandi brátt verður sett, að loknum þeim hildarleik sem nú stendur yl'ir. Þá kemur hér í Skutli 13. nóv. s. 1. út grein eftir ritstjór- ann á móti málstað Islendinga. Þar telur ritstjórinn sig eða Skutul höfund að andstöðu við sjáífsforræði Islendinga 1943. Þessa sömu daga er verið að prenta í Víkingsprenti bækl- ing, sem túlkar skoðanir nokkurra merkismanna (!!!) þ. e. yfirgnæfandi jafnaðarmenn með fáeinum afturhaldssöm- ustu íhaldsmönnum sjálfstæð- isflokksins, svo sem Árna Páls- syni og Guðm. Hannessyni o. fl. Þessi bæklingur er alls 18 atriði, umsagnir 14 merkra Islendinga, tvær áskoranir ýmsra merkismanna til Al- þingis. önnur frá 1942 hin frá 1943 og umsögn um þess- ar tvær áskoranir og skýring- ar við 18. grein sambandslag- anna mestmegnis liaft eftir grein Einars Arnórssonar um það'efni, en föðurinn að öllu þessu brölti, að þessu nýja viðhorfi á móti Islendingum telur ritstjóri Skutuls sig vera. 18 barna faðir í álfheimum. Helstu röksemdir 18 barn- anna og föðursins eru þessar: 1. Drengskapur gagnvart Dönum; það atriði þarf varla að skýra fyrir almenningi, það er misskilin mannúð. Danir eiga raunverulega ekkert i okkar garð að sækja eftir að við höfum haldið alla samn- inga, jafnvel samninga, sem voru gagnstæðir okkar rétti. Ef Danir liefðu gagnstæða meiningu þá væru þeir ekki viðtalsverðir, þvi að sögulegi rétturinn er okkar megin, en ef þeir hafa söniu meiningu, þá er málið sjálf léyst. Hinsvegar höfum við marg- vísleg og mikil verðmæti að sækja í danskan garð, og það þótt beinlínis peningaleg verð- mæti væru í öðrum flokki. Danir hafa um langt skeið varðveitt fjöregg okkar í fullu samþykki heggja aðila, mörg merkilegustu íslenzku handrit- in. Endurheimt þeirra kemur ekkert við endurheimt fulls sjálfsforræðis. Við berum því meiri virð- ingu fyrir Dönum sem þeir standa sig betur í sjálfstæðis- baráttu sinni gagnvart kúgara sínum, Þjóðverjum, en þar eru stærðarhlutföllin sömu sem áður milli Dana og Is- lendinga. 2. Álit Einars Arnórssonar; en það er framkomið vegna þess misskilnings, að um samnings- rof kunni að vera að ræða, eða vanefndir. En þegar 3 ár eru liðin frá yfirlýsingunni 1941, kemur slíkt ekki til greina, enda liggur fyrir um það ylir- lýsing Einars Arnórssonar sjálfs og rökstuðningur í langri ræðu 1. des. s.l., en Einar er talinn einna merkilegastur Kemur út tvisvar í inánuði. Árgangurinn kostar 10 kr. Ritstjóri og ábyrgðarmaður er Hallilóv Ólafsson, Odda. 10. tölublað. liinna merku manna, sem svo oft er vitnað til. 3. Álit ríkisstjórnarinnar; það verður að teljast ótvírætt, samkvæmt yfirlýsingu rikis- stjórnarinnar nú í haust, en þar kemur fram ákveðið fylgi við sambandsslit, eigi síðar en mai—júni 1944. 4. Skoðanakönnunin; Magn- ús Asgeirsson, sem að mörgu leyti skrifar skynsamlega um þetta mál, er raunalega af- vegaleiddur af 0,5% áhugan- um; það þýðir ekki áhuga- leysi fyrir sambandsmálinu, en stafar af því að allur fjöldinn hefir skoðað málið óumdeilan- legt, að sambandsslitin færu óhj ákvæmilega fram eftir áð- ur umsamdan 25 ára reynslu- tíma. 5. „Mikilvægi merku mann- anna“. Því er þar til að svara, að merkir menn hala oft verið á móti málstað fólksins. Al- þýðan í löndunum hefir oftast fórnað mestu fyrir frelsi þjóð- anna. 6. Að við höfum annað að gera en vera að hugsa um sambandsmál — gerfimál — okkur sé nær að hugsa um dýrtíðarmálin; i þessu kemur fram- sú mesta regin firra. Okkur er einmitt lifsspursmál að geta farið að ganga frá lýð- veldismálunum, að geta farið að úthúa hina nýju stjórnar- skrá, sem meðal annars á- kvæði valdsvið forsetans. Má- ske myndi þá ganga betnr að eiga við innanlandsmálin, ef til væri ábyrgur forseti við hlið þingsins, en ekki bráðabirgða ríkisstjóri. Og þegar er liægt verður að tala á þingi þjóða eftir stríð eiga Islendingar að hafa fullskipaða, ábyrga stjórn í landi hér, sem ekki þarf að fara með utanríkismál sín gegnum danska skrifstofu. En allt þetta er ómögulégt meðan við höldum sambands- lögin og viðurkennum dansk- inn sem drottnunarvald. 7. Aðvaranir stjórna Banda- ríkjanna og Englands; i því máli er keimur af afskifta- semi, af einkamáli Islendinga, þvert ofan í gefin loforð áður nefndra stjórna. En þetta lé- lega vopn undanhaldsmpnna hefir nú snúist móti þeini sjálfum, þar sem sömu stjórn- ir hafa lýst yfir viðurkenningu sinni á sambandsslitum 1944. Afstaða þessara merku manna er einkennileg og að mörgu leyti raunarleg. Það er enginn eli á því að mennirnir Framh. á 4. síðu.

x

Baldur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.