Baldur - 16.12.1943, Qupperneq 3

Baldur - 16.12.1943, Qupperneq 3
B A L D U R 39 Umhyggja Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins fyrir hag útgerðarinnar. „Riðkláfar og fúaduggur" eru þeirra framtíðar fieytur. Frá því var skýrt liér í blað- inu 18. nóv. s. 1., að þingmenn Sósialistaí'lokksins i l'j árveit- inganeí'nd tögðu til, að áætlað- ar væru 10 milj. kr. til bygg- inga nýrra fiskiskipa. Þessi tiilaga var felld við aðra um- ræðu fjárlaganna. Þingmenn sósialista, Barði Guðmunds- son, Sigurjón Ólafsson og Sig- urður Kristjánsson greiddu henni meðatkvæði, allir aðrir þingmenn á móti. Vakti þessi atkvæðagreiðsla stórmikla at- hygli um land allt, og það, sem menn undrast mest, var afstaða þingmanna Alþýðu- flokksins. Aöeins tveir þeirra greiddu tillögunni atkvæði, hinir á móti. Fulltrúi Alþýðu- flokksins í fjárveitinganefnd, Finnur Jónsson, var á móti til- lögunni, þegar hún kom fram í nefndinni og boðaði þá ekki heldur, að hann myndi flytja tillögu er færi í sömu átt. En vegna þeirra staðreynda, að þessi tillaga átti óskipt fylgi meðal manna af öllum flokk- um utan þingsins, og til þess siðar meir að geta notað þetta þjóðþrifamál til framdráttar Alþýðuflokknum, bar Finnur fram, á síðustu stundu, í fjár- veitinganefnd tillögu um, að 9,5 milj. kr. verði á fjárlögum varið til skipabygginga, og all- ir þingmenn Alþýðuflokksins fluttu þá tillögu við þriðju um- ræðu fjárlaganna. Auðvitað lýstu sósíalistar, þegar í stað, fylgi sínu við þessa tillögu Al- þýðufl.þingmannanna, þeim er það ekkert aðalatriði hverj- ir tillöguna flytja, heldur á hvaða rökum hún byggist. Greiddu þeir tillögunni at- kvæði bæði í fjárhagsnefnd og við lokaafgreiðslu fjárlag- anna, en þar var tillagan felld með 32 atkv. gegn 17. Allir þingmeiui Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins greiddu atkuæði gegn henni. Sósíalist- ar og Alþgðuflokksmenn með. Það er staðreynd að meira en 9/10 af öllu útflutnings- verðmæti landsmanna er sj ávarafurðir, og sjávarútveg- urinn er undirstaða allra ann- ara, atvinnuvega. Þá er það ennfremur öllum ljóst, að í þessum atvinnuvegi ríkir hið mesta ófremdarástand. Fiskifélag Islands hefur lát- ið gera skýrslu um ástand skipaflotans eins og hann var 1942. Sú skýrsla sýnir að 66,2% af rúmlestatöiu skipaflotans er eldri en 20 ára. 71% af rúmlestatölu línugufu- skipanna er 30 ára og eldri og öll eru þau yfir 20 ára. Eldri en 20 ára eru ennfrem- ur 80% togaraí'Iotans, 03,0% mótorskipa yfir 100 rúmlestir, 62,9% mótorskipa 35—100 rúmlestir, 33,7% mótorbáta undir 12 rúmlestir, allt miðað við rúmlesta tölu. Þá hefur skipastóllinn minnkað síðan 1939. Þessar tölur lýsa mjög skýrt því ástandi, sem nú er, í aðalatvinnuvegi okkar Is- lendinga. Þær sýna, að endur- nýjun og aukning fiskiflotans þolir enga bið. Athugi menn þessar tölur og þá um leið livað í húl'i er, ef skipastóll landsmanna reynist ekki hlut- verki sínu vaxinn, þá hljóta þeir að sjá, hve taumlaus skemmdarstarfsemi er nú rek- in af afturhaldsflokkunum á Alþingi. Þessir llokkar, sem sam- þykkja, svo að segja í einu- hljóði, 10—15 milj. kr.framlag til uppbóta á landbúnaðar- vöru, fé, sem að rnestu fer til auðugra stórbænda vegna þess að það er greitt á framleiðslu- magn, standa sem einn maður gegn því, að mun minni upp- hæð sé varið til endurnýj unar og aukningar aðalatvinnuvegi landsmanna. Berari fjandskap er ekki liægt að sýna vinnandi fólki á Islandi. Raddir lesenda. Frá Bíldudal er blaðinu skrifað 28. nóv. sl.: „Það væri mjög æskilegt að takast mætli að lialda Baldri úti reglulega og þess væri auð- vitað mikil þörf að hann gæti komið út vikulega, eins og blöð hinna flokkanna. Það er mjög hætl við því að svona Iítil blöð eigi erfitt uppdráttar í samkeppni við Tímann og Isa- fold, bæði vegna verðsins, en einkum þó vegna einhliða efnis, sem oftast takmarkast mjög við útgáfu stað blaðsins og bæjarmál þar, enda áhrif slíkra blaða mest í næsta um- hverfi. — Þó ég sé þannig ekki trúaður á áhrif Baldurs hér, mun ég þó gera mitt bezta til að útbreiða hann, ásamt Rétti, sem ég legg sérstaka áherzlu á. Þjóðviljinn er of dýr til að fá útbreiðslu hér, þar sem ferðir eru svo strjálar, en Nýi Tíminn er ekkert verka- mannablað. Eiginlega vantar Sósíalistaflokkinn blað fyrir kauptúnin, blöð eins og Bald- ur eru ol' lítil. Héðan er fátt að frétta, róðrar hafa verið með minnsta móti í haust og afli í tregara lagi. Allir beztu bátarnir eru með bilaðar vélar, sumir bún- ir að vera frá veiðum mánuð- um saman. Verkalýðsíelagið samdi við atvinnurekendur i haust og fékk nokkrar kjara- bætur, einkum í yfirvinnu, og varð Frystihúsið auk þess að greiða verkafólki uppbót fyrir sumarið, þvi þar liafði ekki verið greidd full vísitala. Fé- lagið hefir ekki ennþá lialdið fund á vetrinum, en trúnaðar- mannaráð þess hefur gengist fyrir því, að nýlega er hafin starfsemi málfundaflokks inn- an félagsins, er gert er ráð fyrir að haldi fundi tvisvar i viku og skemmtifundi öðru hvoru. Mun vera ætlunin að efla þessa starfsemi er frá líð- ur, ^f þetta gefst vel. Húsnæði er ekkert til starfsemi þessarar nema í prívathúsi, en mikil nauðsyn er að félagið geti tryggt sér hentugt húsnæði i framtíðinni, þar sem hægt væri að færa þessa starfsemi út og gera hana almenna eink- um meðal hinna yngri félags- manna“. Um leið og Baldur þakkar höfundi þessara lína þann á- huga og dugnað sem hann hef- ur sýnt við útbreiðslu blaðsins á Bíldudal, vill blaðið bæta hér nokkrum orðum við. Það er rétt, að miklir örðug- leikar eru á því að gera lítið blað eins og Baldur að áhrifa- miklu málgagni sósíalismans liér á Vestfjörðum, bæði vegna þess, hve litlu er hægt að koma í slíkt blað af greinum um áhugamál þessa byggðarlags, og eins vegna þess, hve sam- göngur eru óhagstæðar. Það er þessvegna brýn nauðsyn, að bluðið geti sem allra fyrst far- ið að koma vikulega út. En þrátt fyrir þessa smæð blaðs- ins og aðra örðugleika má með góðu samstarfi við áhuga- mefm víðsvegar um Vestfirði, efla blaðið til töluverðra á- hrifa, með því að þessir áhuga- menn sendi því greinar um þau mál, sem efst eru á baugi í þeirra byggðarlagi, fréttir þaðan o. fl. Á þennan hátt mætti auka áhrif og vinsældir blaðsins mjög mikið. Fólk i'inndi, að það léti sig áhuga- mál þess einhverju skipta, og myndi, þegar stundir liða, skoða það sem ákveðinn og ómissandi málsvara sinn, og þar með skapaðist grundvöllur fyrir því að blaðið gæti farið að koma oftar út og orðið þess megnugt áð verða málgagn sósíalista hér á Vestfjörðum,og þá aðallega í kauptúnunum. Væntir Baldur þess, að hann fái sem oftast greinar frá les- endum sínum í kauptúnunum hér á Vestfjörðum og komist þannig í lifandi samband við þessa staði, og geti orðið þeirri ætlan sinni vaxinn, að verða málgagn alþýðunnar á Vest- fjörðum. Blað fyrir kauptúnin, sem bréfritari bendir réttilega á að Sósíálistaflokkinn vanti. ★ Góður afli. Góðar gæftir voru liér síðari hluta. liðinnar viku og afli fá- dæma góður, íiskuðu sumir bátanna um og yl'ir 30 þúsund pund I legu. Sýnir þetta að gnægð fisks fæst nú hér úti- i'yrir, þegar gefur á sjó. Þessi aflahrota gefur tilefni til að athuga, að í liaust hefur aðeins einn stærri bátanna hérna gengið á veiðar. Að visu er nú verið að framkvæma viðgerðir á sumum þeirra, sem munu taka langan tíma, en áreiðanlega hefði verið liægt að búa einhverja þeirra á veiðar fyr í haust, ef vilji og áhugi hefði vexúð til þess. Nú þarf ekki að bera því við að elcki sé hægt að selja. fisk- inn, þar sem eftirspurn er nú eftir fiski. Bátaflotinn hér á Isafirði er heldur ekki svo stór, að ástæða sé til að þeir bátar, sem hægt er að láta ganga á sjó, séu bundnir við bryggju. Væi’i ástæði til að taka út- gerðai’málin hér í bænurn til rækilegrar meðferðar síðax*. ★ Verkamaðurinn 25 ára. Verkamaðurinn á Akureyri, sem ásamt Mjölni á Siglufirði, er nú málgagn sósíalista norð- anlands, var 25 ára 14. nóv. í haust. Blaðið hóf göngu sína þennan mánaðardag 1918 og var Halldór Friðjónsson fyrsti ritstjóri þess. Þegar Verka- lýðssamband Norðurlands var stofnað 1925 tók það að sér út- gáfu blaðsins og hafði liana á hendi þar til sú breyting var gerð á verkalýðssamtökunum, sem nú gildir, að þau eru áháð öllum stjórnmálafl. og eiga því ekki að standa að útgáfu stj órnmálablaða ákveðinna flokka. Hefur Sósíalistafélag Akureyrar gefið blaðið út síð- an. Ritstjóri þess nú er Jakob Árnason. Verkamaðurinn er nú elzta blað alþýðunnar á Islandi. Hann liefur j afnan verið, og er enn, skeleggur í málaflutningi fyrir hagsmunamálum alþýð- unnar. Islenzk alþýða á hon- um mikið að þakka í baráttu undanfarinna ára og það er von hennar, að áhrifa lians gæti enn betur á ókomnum árum. ★ BALDUR kemur aftur út fyrir jól. Aug- lýsingar og jólakveðjur verða að vera komnar í prentsmiðj- una eða til ritstjórans í sið- ast lagi á mánudagskvöld n. k. Baldur er nú keyptur al' rúmlega sjötta hvcrju manns- barni í bænum og lesinn af langtum fleiri. Þeir, sem vilja að auglýsingar sínar og jóla- kveðjur komist til allra Is- firðinga, auglýsa í Baldri.

x

Baldur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.