Baldur - 10.06.1944, Blaðsíða 2
54
B A L D U R
íþróttir.
Knattspyrnufélagið
HÖrður 25 ára.
Þann 27. maí s.l. var Knatl-
spyrnufélagið Hörður 25 ára.
Stol'nendur i'élagsins voru
þessir 12 menn: ílelgi Guð-
mundsson, bræðurnir Karl,
Þorsteinn og Guðbrandur
Kristinssynir, bræðurnir Iírist-
ján og Jón Alberts, Axel Gísla-
son, Þórhallur Leósson, Ölaí'ur
Ásgeirsson, Dagbjartur Sig-
urðsson og bræðurnir Hjörtur
og Garðar Ólafssynir. Þórb.
Leós var fyrsti formaður fé-
lagsins.
Hörður var upphaflega stofn-
aður sem knattspyrnulelag og
lagði fyrstu árin eingöngu
stund á þá íþróttagrein. En á
seinni árum fór hann að iðka
fleiri íþróttir; leggur hann nú
stund á frjálsar íþróttir, fim-
leika, handknattleik og glímur
og er nú fjölhæfasta íþróttafé-
lagið á Vestfjörðum.
Félagsmenn eru nú 213 kon-
ur og karlar og er um helm-
ingur þeirra yngri en 16 ára.
Er þannig örugglega séð fyrir
í'ramtið félagsins, því að þetta
unga fólk tekur við þegar þeir
eldri heltast úr lestinni af ein-
hverjum ástæðum. Það má
því óhætt fullyrða að félaginu
sé tryggð glæsileg framtíð.
1 stuttri blaðagrein er ekki
hægt að skrifa sögu Harðar,
enda er þess ekki þörf. Félag-
ið hefur nú gefið út fjölbreytt
og myndarlegt blað í tilefni af
aldarfjórðungsafmælinu. Er á-
stæða til að hvetja bæjarbúa
og aðra til að kaupa þetta blað
og kynnast þannig sögu i'élags-
ins og starfi.
S.l. laugardag hélt Hörður
afmæli sitt hátíðlegt með veg-
legu og fjölmennu hófi að
Uppsölum.
Var þar matur veittur af
mikilli rausn, ræður fluttar,
sungið og að lokum var dans-
að.
Félaginu barst i'jöldi hcilla-
skeyta frá einstaklingum og
félögum og margar merkilegar
gjafir. Gjafirnar voru þessar:
Frá Iþróttasambandi Islands
skj aldarmerki 1. S. 1. i eir sem
viðurkenningarvottur fyrir
mikið og gott starf. For-
menn K. s. f. Harðar gáfu
silfurbikar til verðlauna i
drengjahlaupi Harðar er fram
fari sumardaginn fyrsta ár
hvert. Þeir bræður Leóssynir
gáfu bikar úr silfri, sem heitir
Leósbikarinn og Dagbjartur
Sigurðsson, einn stofnandi ie-
lagsins, gaf annan silfurbikar,
sem talað var um að ldyti
nafnið Dagbjartai-bikarinn. —
Báðir þessir bikarar verða
^ verðlaunagripir í íþrótta-
keppni. Þá gaf Knattspyrnufé-
.
Talið frá vinstri: Einar 0. Kristjánsson, dómari, Hjörtur Ólafsson, Matthías Sigurðsson, Karl Krist-
insson, Helgi Guðinundsson, Þórhallur Leós, Jón Alberts, Guðbrandur Kristinsson, Þorsteinn Kristins-
son, Dagbjartur Sigurðsson og Garðar Ólafsson. Sitjandi: Ólafur Kárason, markvörður.
lagið Vestri félagsmerki Harð-
ar útskorið í tré af Guðmundi
l'rá Mosdal, hina mestu völund-
arsmíði eins og að likum lætur,
og varaforseti bæjarstjórnar
Hannibal Valdimarsson aí'-
henti félaginu, í umboði bæjar-
sjóðs, 10 þús. kr. áætlað fram-
lag bæjarins til íþróttamála á
þessu ári.
Stjórn Harðar skipa nii:
Karl Bjarnason formaður, Pét-
ur Þórarinsson varaform., Guð-
riður Matthíasdóttir ritari, Her-
bert Sigurjónsson gjaldkeri,
Sveinbjörn Kristjánsson fjár-
málaritari, Sigriður G. Haga-
lín og Þórður Kristjánsson
meðstjórnendur. Fjármálarit-
arinn Sveinbjörn Kristjánsson
er nú fluttur úr bænum og
gegnir Kristmundur Gíslason
störfum í hans stað.
Baldur þakkar Herði mikið
og gott starf á undanförnum
árum og óskar honum allra
heilla í framtíðinni.
Iþróttabandalag Isfirðinga
var stofnað hér á Isafirði
23. apríl s.l. Undirbúning
stofnunarinnar f. h. íþrótta-
ráðs Vestfjarða önnuðust þeir
Friðrik Jónasson, kennari, og
Sverrir Guðmundsson banka-
gjaldkeri. Friðrik Jónasson
var kjörinn fundarstjóri.
Starfsvið bandalagsins, sem
hlaut nafnið Iþróttabandalag
Isfirðinga skammst. I. B. I., 'er
íþróttahérað Isaf j arðar og nær
yfir Isafj.kaupstað; Eyrarhr.,
og Hólshr. í Norður-Isafjarðar-
sýslu og Suðureyrarhrepp í
Vestur-Isafjarðarsýslvu
Þessi félög tóku þátt í stofn-
un bandalagsins: Ivnattspyfnu-
l'élögin Hörður og Vestri, Isa-
firði, Skiðafélag Isafjarðar,
fjarðar, Skátafélagið Ein-
herjar, og Málfunda- og
íþróttafélagið Ármann í Skut-
ulsfirði og sendu þau öll full-
trúa á stofnfund, ennfremur
eru: Kvenskátafél. Valkyrjur
og U. M. F. Bolungarvíkur
stofnendur bandalagsins, en
þau sendu ekki fulltrúa, og
íþróttal'él. Stefnir á Suðureyri
mun ganga í bandalagið.
á stofnfundinum voru sam-
þykkt lög bandalagsins, kosin
stjórn o. fl.
Formaður var kosinn Sveri’-
ir Guðmundsson og meðstjórn-
endur, er skiptu þannig með
sér verkum: Varaformaður
Karl Bjarnason, verkstjóri, rit-
ari Hafsteinn 0. Hannesson
bankaritari, gjaldkeri Magnús
Konráðsson, rafv.nemi, og með-
stjórnandi Guðm. Sveinsson
vélstjóri frá Góustöðum.
Vara'stjórn: Sigurjón Hall-
dórsson, Tungu, Halldór Er-
lendsson, íþróttakennari, og
Sveinn Elíasson, bankaritari.
I héraðsdómstól voru kosnir:
Friðrik Jónasson, kennari,
Ágúst Leós, kaupm., og Salo-
mon Hafliðason, trésmiður.
Varamenn: Herbert Sigur-
jónsson, bakari, Kjartan J.
Jóhannsson læknir og Maria
Gunnarsdóttir íþróttakennari.
Fulltrúar á þing I. S. I. í
sumar voru kosnir: Sverrir
Guðmundsson og Hafsteinn 0.
Hannesson. Til vara: Magnús
Konráðsson og Guðm. Sveins-
son.
Á fundinum kom fram svo-
hljóðandi tillaga, og var hún
samþykkt í einu hljóði:
„Fulltrúafíindur I. B. 1. skor-
ar á stjórn 1. S. 1. að beita sér
fijrir því að fá tögum um
skemmtanaskatt breytt þannig,
að allur skemrntanaskattur
renni til viðkomandi bæjar- og
sveitarfélaga og að skattinum
verði varið til þess að reisa
íþráttamannvirki og styrkja
aðra æskulýðsstarfsemi i við-
komandi héruðum. Fundurinn
lítur svo á að brýna tiauðsyn
beri til að bæta nú þegar skil-
yrði til íþróttaiðkana í land-
inu, og tryggasta leiðin til þess
sé að bæjar- og sveitarfélög-
unum sé tryggður fastur tekju-
stofn til þessara framkvæmda'‘
Hlutverk I. B. I.
Iþróttabandalag Isfirðinga er
stofnað samkvæmt íþróttalög-
um ríkisins og lögum I. S. 1.
og U. M. F. I., en samkvæmt
þeim skal landinu skipt í
íþróttahéruð, og skulu íþrótta-
og ungmennafélög á félags-
svæði þessu mynda með sér
samband. Tilgangur þessara
samstjórna er m. a.:
Að hafa forystu íþróttamála
innan héraðsins, efla samvinnu
íþróttaiðkenda og vera full-
trúi þeirra gagnvart öðrum
héraðssamböndum,
að vinna að byggingu íþrótta-
mannvirkja, viðhaldi á þeim
og endurbótum, að sjá um
rekstur íþróttamannvirkja ef
með þarf,
að koma á framfæri styrk-
umsóknum íþróttafélaga til
ríkis-, bæjar- og sveitarfélaga,
að úthluta styrktarfé til
kennslu verklegrar eða bók-
legrar,
að útvega kennara og eign-
ast tæki til þjálfunar og
fræðslu,
að sjá um dómsúrskurð á-
greiningsmála og kærumála,
sem upp kunna að rísa meðal
félaga og keppenda,
að gefa umsögn um íþrótta-
mál, íþróttamannvirki o. s. frv.
að vinna að útrýmingu skað-
nautna og hafa samvinnu um
<5
( *