Baldur - 10.06.1944, Síða 4
56
B A L D U R
|: k
* Skammtad úr skrínunni. |
Lengri syndajátning
en sálfur syndarinn.
Þórleifur Bjarnason, kenn-
ari, hefur nú jálað syndir sín-
ar eins og boðað hafði verið.
Birti Skutull, sem kom í gær,
játninguna. Maðurinn hefur
sýnilega haft mikið á samvizk-
unni og þurft að létta á sér.
Jálningin er, hvorki meira né
minna en tæpir 8 dállcar, eða
samtals 2 metrar og 60 centi-
rnetrar eindálka á lengd, eða
mun lengri en höfundur sjálf-
ur.
Præsten holdt en Tale —
men sagde ingen Ting
segir í dönsku gamankvæði
og það á sannarlega við um
þessa syndaj átningu, því hún
sýnir ákaflega vel, að:
„List er það líka og vinna
lítið að tæta upp í minna,
alltaf í þynnra þynna
þynnkuna allra hinna“,
og er með fádæmum hvað
mikil slefa getur lekið frá ein-
um manni.
Náhljóð nazismans
heyrðist í síðasta Vesturlandi
í iadæma aulalegri svívirðing-
argrein um Sovétríkin eftir
einhvern Ax.
Ekki er ástæða til að eyða
rúmi i að svara þeirri ritsmið,
því jafnvel heimskustu nazist-
um myndi ofbjóða aulaskap-
urinn og sjálfur Göbbels gera
grín að henni ef hann sæi.
Hitt er aftur á móti umtals-
vert, að ritstjóri Vesturlands
skuli birta þessa grein, án at-
liugasemdar í sama blaði og
hann birtir áberandi fregn um
að Sovétríkin hafa, ásamt öðr-
um ríkjum, sent okkur heilla-
óskir og viðurkenning i sam-
handi við ákvörðunum okkar
um lýðveldisstofnun.
Hið unga íslenzka lýðveldi
skiptir það svo miklu máli, að
fá viðurkenningu jafn voldugs
stórveldis og Sovétríkjanna og
halda vináttu við þau, að það
er einstakt ábyrgðarleysi af ís-
lenzlcum alþingismanni að
koma á framfæri jafn auð-
virðilegum og svívirðilegum
dylgjum um ríki, sem í hví-
vetna hefur sýnt okkur vin-
skap og viðurkenning, og það
riki, sem undanfarin ár hefur
staðið i eldinum í baráttu fyrir
frelsi og menningu alls mann-
kynsins.
þróttavellinum og sigraði
Hörðui\
Kl. 7 e. h. var kvikmynda-
sýning og kl. 8M> síðd. hófst
fjölhreytt kvöldskemmtun í
Alþýðuhúsinu.
Haukur Helgason, bæjarfull-
trúi, flutti ræðu, sjómannakór,
undir stjórn Högna Gunnars-
sonar, söng nokkur lög við
mikinn fögnuð álieyrenda.
Verðlaunum fyrir keppni í
reipdrætti, sundi og kappróðri
var úthlutað, skemmtilegur út-
varpsþáttur fluttur og kvik-
mynd sýnd.
Að aflokinni kvöldskennnt-
uninni var dansað i öll-
um samkomuhúsum bæjarins.
Bæði kvöldskemmtunin og
dansleikirnir voru fádæma vel
sótt. Merki sj ómannadagsins
voru seld á götunum allan dag-
inn. Fánar hlöktu livarvetna
við hún og öll skip voru fán-
um skrýdd.
Bíó Alþýðuhússins
sýnir:
Laugardag og
Sunnudag kl. 9
SÖNGDISIN
Söngva- og skemmti-
mynd.
Sunnudag kl. 5
TARZAN
Siðasta sinn.
Klæðið landið,
eflið Landgræðslusjóð.
Nú undanfarið hefir oftlega
verið getið um i útvarpinu,-
að efnt hafi verið til svonefnds
Landgríeðslusjóðs i tilefni lýð-
veldisstofnunarinnar. Hafa í
því skyni verið flutt ávörp og
hvatningartölur, þar sem lieit-
ið hefir verið á alþjóð þessa
lands, að „leggja sinn skerf til,
stóran eða smáan, eftir ástæð-
um“.
Ungmennafélaginu Árvakri
hafa verið send tilmæli um að
veita slíkri fjársöfnun mót-
töku hér, og geta þeir, sem
þetta þjóðræktarfyrirtæki vilja
styðja, komið tillögum sínum
til Páls Guðmundssonar á hæj-
arskrifstofunni, Helga Guð-
mundssonar i Norskabakaríinu
og Guðmundar frá Mosdal.
Einnig munu bókaverzlan-
ir Jónasar Tómassonar og
Matthíasar Bjai'nasonar taka á
móti framlögum til sjóðsins.
Viðurkenningarblöð fyrir 5,
10, 25, 50 eða 100 krónum
verða afhent um leið.
Þakkarávarp.
Alúðar þakkir fyrir sýnda
vinsemd á fimmtugsafmæli
mínu.
Isafirði 9./6. ’44.
Gisli Jálíusso'n,
skipstjóri.
Prentstofan Isrún h.f.
I. S. I. I. B. I.
Afmælismót Harðar
18. júní.
Keppt verður í eftirtöldum íþróttum: Hástökki, Langstökki,
Stangarstökki, Spjótkasti, Kringlukasti, Kúluvarpi, 100 metra
hlaupi, 400 metra hlaupi, 1500 metra hlaupi, ‘Húndknattleik
kvenna, Ivnattspyrnu, 1. floklc.
Verðlaunapeningar gelnir l'yrir bezta afrek í liverri grein.
Félög á Vestfjörðum innan 1. S. 1. tilkynnið þátttöku fyrir
16. júni n. k. til Péturs Þórarinssonar, Isafirði.
Stjórn H A R Ð A R.
Áskorun um kolasparnað.
Með því að miklir örðugleikar hafa verið á því und-
anfarið að fá nægileg kol til landsins og líldegt að svo
verði fyrst um sinn, er héi\með brýnt fyrir öllum að
gæta hins ýtrasta sparnaðar um kolanotkun, og jafn-
framt skorað á menn að afla og nota innlent eldsneyti
að svo miklu leyti sem unnt er.
Er sérstaklega skorað á héraðs- og sveitastjórnir að
hafa forgöngu í því að aflað verði innlends eldsneytis.
Viðskiptamálaráðuneytið, 20. maí 1944.
Auglýsing um hámarksverð.
Með tilliti til árstíðasveiflna á verði eggja, hefur
Viðskiptaráðið ákveðið eftirfarandi hámarksverð á eggj-
um frá og með 1. júní 1944:
1 heildsölu ..... kr. 10,00
I smásölu .......— 12,60
Með auglýsingu þessari er úr gildi fallin auglýsing
Viðskiptaráðsins um hámarksverð á eggjum, dags. 29.
marz 1944.
Reykjavík, 31. maí 1944k
VERÐLAGSST J ÓRINN.
Tilkynning.
Viðskiptaráðið hefur ákveðið eftirfarandi hámarks-
verð á brauðum:
Rúgbrauð, óseydd,.. 1500 gr. kr. 1,70
Rúgbrauð, seydd, . 1500 — — 1,80
Normalbrauð ...... 1250 — — 1,70
Franskbrauð ........ 500 — — 1,20
Heilhveitibrauð .... 500 — — 1,20
Súrbrauð ........... 500 — — 0,95
Wienarbrauð pr. stk........... — 0,35
Kringlur pr. kg............... — 2,75
Tvíbökur pr. kg............... — 6,55
Séu nefnd brauð bökuð með annari þyngd en að
ofan greinir, skulti þau verðlögð í hlutfalli við ofan-
greint verð.
Á þeim stöðum, þar sem brauðgerðir eru ekki starf-
andi, má bæta sannanlegum flutningskostnaði við há-
marksverðið.
Ákvæði tilkynningar þessarar koma til framkvæmda
frá og með 1. júní 1944.
Reykjavík, 31. maí 1944.
VERÐLAGSSTJÖRINN.
AÐALFUNDUR Blóma* og trjáræktarfél. á morgun kl. 4 e. h. á Samvinnufélagsskrifstofunni.