Baldur - 07.11.1947, Page 3

Baldur - 07.11.1947, Page 3
BALDUR 3 torin — til Bretlands, Ráð- stjórnarríkjanna, Frakklands, Tékkóslovakíu, Hollands og Finnlands. Til Bandaríkjanna hafa þegar verið seld 375 tonn á verði, sem er undir ábyrgð- arverði. Nú nýlega voru send 750 tonn til Bandaríkjanna og vitað .er að þau munu einnig verða seld á undirverði. Eftir eru þá óseld ca. 4500 tonn. Þegar liggur fyrir tilboð frá 1- talíu í þetta magn á fullu á- byrgðarverði, en gegn greiðslu í lírum. Óvisst er hvort þessu tilboði verður sinnt eða hvort selt verður til annara landa. En reiknum með að ríkissjóð- ur þurfi að inna af hendi há- mark þess, sem hann lögum samkvæmt á að greiða af öllu hinu óselda magni og því, sem selt var á undirverði til Banda- ríkjanna, þá verða útgjöld hans ca. 4.000.000 kr. Útgjöld ríkissjóðs verða því i allt kr. 14.330.000,00 vegna fiskábyrgðarinnar. Á móti þessari fjárhæð koma ca. kr. 3.500.000,00 vegna síldarkúfs- ins fræga. Bein útgjöld verða því rétt innan við 11 milj. krónur, eins og sagt var hér á undan. Og reyndar möguleiki á að lækka þá upphæð mjög verulega ef stjórnarherrarnir héldu vel á málunum — en við því er varla liægt að bú- ast svo illa sem þeir til þessa liafa haldið á afurðasölumál- inu og er það önnur saga. Ellefu miljón krónur! Það er sama fjárhæðin og einka- bifreiðaeigendur i Reykjavík eru reiðubúnir til að greiða í ríkissjóð, ef þeir fá auka- skammt af benzíni til þess að geta keyrt á milli húsa! Nú er allt útlit fyrir að fiski- skipaflotinn verði bundinn við land á komandi vertíð, ef ekk- ert verður aðhafst af hálfu hins opinbera. En raunhæfar aðgerðir, eins og nú standa sakir, er framlenging fiská- byrgðarlaganna frá því í fyrra haust. Jafnframt verði gerðar aðrar þær ráðstafanir, sem getið er hér að ofan. Allar þessar ráðstafanir get- ur Alþingi gert, ef það hefur þor og vilja. Sem kunnugt er, er Alþingi skipað 42 þing- mönnum stjórnarflokkanna og 10 sósíalistum. Sósíalistar eru nú, sem ætíð áður, reiðubúnir til þeirra raunhæfu aðgcrða, sem minnst hefur verið á. Verði ekkert að- gert, verði flotinn látinn liggja hundinn í höfn, verði sjómenn látrtir ganga atvinnulausir í landi, er þjóðinni ljóst hverjir standa a.ð þessu ástandi, hvei'j- ir bera ábyi’gðina. Það verða þeir þingmenn st.jórnarflokk- anna, sem fastast standa að # þeirri stjórn auðvaldsins, sem nú ríkir á landi héi’. Haukur Helgason. -------0------- Auglýsing nr. 20, 1947 frá skömmtunarstjóra, Viðskiptanefndin hefur, samkvæmt heimild í 4. gr. reglugerðar frá 23. sept. 1947 um vöruskömmtun, tak- mörkun á sölu, dreifingu og afhendingu vara, samþykkt, að gefnir skuli út sérstakir skömmtunarseðlar, ásamt stofnum til notkunar við úthlutun á hreinlætisvörum handa fyrirtækjum og öðrum, sem þurfa á slíkum úthlut- unum að halda til sérstakrar notkunar, annarrar en heimilisnotkunar. Skömmtunarreitir þessir eru af sömu gerð og M- skömmtunarreitir þeir, en um ræðir í auglýsingu skömmt- unarstjóra nr. 8,1947, með þeirri breytingu, að í stað taln- anna 1, 2, 3, og 4, sem eru á eldri M-reitunum, standa á þessum nýju reitum orðin: okt. nóv. des. Þessir nýju M-reitir skulu hafa sama gildi til kaupa á hreinlætisvörum og hinir eldri M-reitir, en afhending í smásöluverzlunum skal aðeins vera heimil í þeim mánuði, sem hver reitur sýnir. Bæjarstjórar og oddvitar hafa með höndum úthlutun á þessum nýju reitum samkvæmt reglum, sem þeim hafa verið sendar, ásamt skömmtunarseðlunum sjálfum. Reykjavík, 28. okt. 1947. Skömmtunarstj órinn. ÞAKKARORÐ. Hjartanlega þökkum viö öllum þeim, sem sgndu okkur vinsemd á 50 ára hjúskaparafmæli okkar þ. 31. okt. s. I. Við þökkum börnum, tengdabörnum og barnabörnum okkar og öðrum skyldmennum rausnarlegar gjafir og margskonar fyrirhöfn. — Góðtemplarastúkunum á Isa- firði þökkum við vinsamlegt ávarp og kærkomna minn- ingargjöf. — Kær kveðja og þakkir til þeirra 200 ísfirð- inga, sem frá fundi Isfirðingafélagsins í Reykjavík sendu okkur lieillaskeyti, og til þeirra 34 óskarkvenna á Isafirði, sem frá aðalfundi sendu okkur heillaósk. Við þökkum öllum nær og fjær, sem með blómasendingum, heilla- skeytum og heimsóknum sýndu okkur' vinsemd. Við óskum ykkur öllum farsældar og guðs blessunar. Helga Tómasdóttir Magnús ólafsson ------------------------------------------------------- Að gefnu tilefni vill byggingarnefnd vara menn alvarlega við því að hefja byggingar, áður en þeir hafa fengið til þess leyfi byggingarnefndai’. Mun sektarákvæðum byggingarsamþykktar sbr. 38. gr. fram- vegis'verða beitt vægðarlaust ef út af er brugðið. 38. gi’. er svohljóðandi: „... Sektir fyrir brot á byggingarsamþykkt skulu nema 100 —30.000 kr., og skal farið með slík mál sem alrnenn lögreglu- mál. Ef haldið er áfram byggingu, eftir að bann hefur verið lagt við henni skv. ákvæðum þessarar greinar, varðar það eigi minna en 1000 ki-óna sekt...“ Byggingarfulltrúi. Lögtak hefur í dag verið úrskurðað á þinggjöldum í ísafjarð- arsýslu og kaupstað fyrir árið 1947, og munu þau hef jast innan átta daga frá birtingu þessarar auglýsingar hafi ekki verið gerð skil áður hingað í skrifstofuna. Skrifstofu Isafjarðai', 3. nóv. 1947. Jóh. Gunnar Ólafsson. Tilkynning til verzlana og iðnfyrirtækja varðandi stofnauka nr. 13. Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að stofnauki nr. 13 gildir ekki sem innkaupaheimild í heildsölu fyrir öðrum vör- um, en tilbúnum fatnaði. Þær verzlanir, sem selt hafa metravöru, þ. e. efni og tilleggi í yti'i fatnað, sem seldur er gegn stofnauka nr. 13 og ætla að fá út á slíka sölu metravöru, eða tillegg í heildsölu, þurfa að skila stofnaukum nr. 13 til skömmtunarskrifstofu ríkisins, eða trúnaðarmanna hennar, ásamt sérstakri nótu með hverjinn stofnauka. Á slíkri nótu skal tilfæra hvaða metravai’a hefur ver- ið afgreidd, hve mikið af hverju, svo og sundurliðað verð, en kaupandi skal einnig árita slíka nótu. Innkaupaleyfi fyrir metravöru, verður svo veitt fyrir því verðmæti, er nóturnar sýna. Klæðskei’ar og saumastofui*, er framleiða og selja vörur út á stofnauka nr. 13, þurfa á sama hátt að útbúa nótur yfir það efni, sem fer lil hins selda fatnaðar út á stofnauka nr. 13, og svo innlcaupaleyfi fyrir samsvarandi upphæð í metravörum hjá skömmtunarski’ifstofunni. Reykjavík, 24. okt. 1947. Skömmtunarskrifstofa ríkisins. 1

x

Baldur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.