Baldur - 07.11.1947, Side 4

Baldur - 07.11.1947, Side 4
BALDUR Sturla Agnar Guðmundsson. formaður fimmtugur 14. október 1947. Klofningsbrölt. Nýlega er lokið á Akranesi stofnþingi Alþýðusambands Suðurlands. Ekki er Baldri kunnugt um hversu mörg verkalýðs- og sjó- mannafélög tóku þátt i þessu stofnþingi, en forustu i málinu höfðu verkalýðs- og sjómanna- félögin á Akranesi og i Kefla- vík. Samband þetta er stofnað þvert ofan í lög Alþýðusam- bands tslands, þar sem í þeim er ekki gert ráð fyrir sérstöku sambandi í Sunnlendinga- fjórðungi, heldur annist stjórn Alþýðusambands tslands mál- efni sambandsfélaga í þessum landshluta. Strax í sumar, þeg- ar félög þau, er gengust fyrir stofnun þessa sambands, sendu út boðsbréf um stofnun þess, benti Alþýðusambandisstjórn á að með því væri verið að brjóta lög Alþýðusambands- ins. Þessari viðvörun var ekki sinnt. Þá má í þessu sambandi minna á framkomu sumra, þeirra félaga, sem vitað er að standa að stofnun þessa nýja sambands, í kaupdeilu Dags- brúnar og félaganna á Norður- landi í sumar, en þá gerðu for- vígismenn þessara félaga allt, sem þeir gátu, til þess að koma í veg fyrir að verkamenn sigruðu í þeirri deilu. Bendir sú framkoma til þess að til- gangurinn með stofnun þessa nýja fjórðungssambands, sé ekki að öllu leyti heiðarlegur, og að á bakvið búi tilraun til að kljúfa Alþýðusambandið, enda er það athyglisvert að stærstu félögin á þessu svæði, félögin i Reykjavik og Hafn- arfirði, voru ekki boðuð á stofnþingið. Aukaþing Alþýðusambands Islands, sem saman kemur 9. þ. m. mun væntanlega taka á- kveðna afstöðu til þessa máls og það á þann hátt, að þetta klofningsbrölt verði þeim, sem að þvi standa til minnkunar, og að alþýðusamtökin standi jafn sterk og einhuga eftir sem áður. ------O------ Sjötta þing Æskulýðs- fylkingarinnar er fyrir nokkru lokið. Þingið var sett 30. f. m. og sátu það 54 fulltrúar frá öllum deildum Æ. F. Á þinginu voru jinsar mik- ilsverðar ályktanir samþykkt- ar bæði varðandi helztu bar- áttumál æskulýðsins og inn- byrðis starfsemi Æ. F. Æskulýðsfylkingin hefur nú byrjað útgáfu mánaðarblaðs, heitir það Landneminn og er Jónas Árnason ritstjóri þess. Það hefur dregist um skör fram hjá höfundi eftirfarandi minningarorða að minnast þessa mæta og þrekmikla dugnaðar- og atorkumanns við hin mikilsverðu tímamót í æfi hans. Vona ég að afmælis- barnið taki vægt á drætti þeim, sem orðinn er, og virði viljann fyrir verkið. Sturla Agnar Guðmunds- son er fæddur 14. okóber 1897, að Innri Bakka í Tálknafirði, en þar bjuggu þá foreldrar hans, Guðmundur Sturluson og Guðrún Oddsdóttir. Ólst Agnar upp lijá foreldr- um sínum, sem dvöldu á ýms- um stöðum í Tálknafirði, þar til hann flutti til Súganda- l'jarðar baustið 1914, til Odds Hallbjarnarsonar frænda síns. Snemnia fór Agnar að fara til sjós, og byrjaði sjómennska hans er bann var 13V2 árs gamall. Var hann þá hjá Bene- dikt Sigurðssyni á þilskipinu „Vegu“ frá Patreksfirði i tvö sumur. En var þá mikið sjó- veikur og ætlaði skipstjóri oft að leggja hann á land, en af því varð þó aídrei, og mun þar hafa mestu um ráðið mótstaða hans sjálfs, því eitt sinn, er skipstjóri ætlaði að gera al- vöru úr því að leggja hann á land, faldi drengurinn sig í seglinu, svo þeir ekki skyldu finna hann. Hjá Oddi frænda sínum var hann á mb. Mumma. Nokkru seinna varð hann formaður á mb. „Svaninum“, sem þá var eign Jóns sál. Einarssonar ís- hússtjóra, sem ávalt var hon- um góður meðan hans naut við. Síðan hefur Agnar verið með ýmsa báta, svo sem „Cesar“, „Mímir“, „Bolla“, „Svend“, að nokkrum fleirum ótöldum. Til Isafjarðar fluttist hann haustið 1929. Á ísafirði hefur hann verið með ýmsa báta en lengst með Mumma, sem hann var sjálfur eigandi að, og lánast með ágætum vel, enda þótt hann sé ekki skip- stj óra-lærður, og hefur honum aldrei hlekkst á en verið oft- ast með aflahæstu formönnum. Má teljast að honum hafi ver- ið .sjómennska í blóð borin samfai’a aflaláni, og hefur hann eflaust vex-ið gildur arf- taki þeiri-a afa síns og föður- frænda sinna Sturlu Ólafsson- ar og Egils Hallgi’ímssonar í Vogum. Sturla Agnar er giftur Krist- jönu Margrétu Sigmundsdótt- ur. Hafa þau eignast 14 börn, en eitt þeirra dó ungt. Eru öll börn þeirra mannvænleg. Allir ættingjar og vinir óska honum til hamingju og blessunar á þessum mikilvægu timamót- um í lífi hans. Ég, sem þetta rita, átti um tveggja ára skeið þvi láni að fagna að vera háseti hjá Sturla Agnari á mb. „Cesari“. Og vil ég enda þessar línur með inni- legu þakklæti til hans fyrir þær mjög svo hugljúfu endur- minningar, sem ég á enn frá þessum samverustundum okk- ar, og þakka honurn innilega fyrir alla umhyggju hans og góðvild í minn garð, og óska honum allrar blessunar og hamingju unx öll hans ólifuð æfiár. Suðureyri, 20. okt. 1947. Halldór Guðmundsson. ------0----- LEIÐRÉTTING I síðasta bl. Baldurs, í grein- inni „Minningarorð um Skarp- béðinn Hinrik Elíasson“, er í 3. dl. 3. 1. a. o. sagt að Peti’ína kona Skai-phéðins hafi látist i Reykjavík, en það var Pálína, síðai’i kona hans, samanber það, sem fyrr er sagt í grein- inni. BIÓ ALÞYÐUHUSSINS sýnir: Föstudag kl. 9: Fridagur skipasmiðsins Siðasta sinn. Laugard. og sunnud. kl. 9: Meðal fyrirmanna („I Live in Grosvenor Squai-e“) Ágæt og vel leikin ástar- saga. Aðalhlutverk: Rex Harrison Anna Neagle Sunnudag kl. 5: Haltu mér, slepptu mér Síðasta sinn. Barnasýning. Mánudag kl. 9: Glötuð helgi. Ahi’ifamikil mynd um baráttu ofdrykkjumanns- ins. ,------—---—------------— Sósíalistar! Aðgöngumiðar að skemmtun Sósíalistafé- lags Isaf jarðar og Æsku- lýðsfylkingarinnar í Al- þýðuhúsinu í kvöld fást á afgreiðslu Baldurs fram til kl. 7 í kvöld. Ef þið hafið enn ekki fengið miða fyrir ykkur og kunningja ykkar, þá sækið þá strax og þið hafið lesið þessa auglýs- ingu. ____________________________t Fundarályktun. Fundur bifreiðastjóra og l)if- reiðaeigenda, haldinn á Isafirði þ. 26. okt. 1947 skorar hérmeð á hátt- virta bæjarstjórn Isafjarðarkaup- staðar að vinna að eftirfarandi um- bótum í umferðarmálum bæjarins til aukins öryggis: 1. Vegna þeirrar bættu, sem skapast af sleðaferðum barna á Urðarvegi og efsta hluta Hafnar- strætis, verður að teljast nauðsyn- legt að útbúa sérstaka sleðabraut í nágrenni þess staðar, t. d. brekk- unni fyrir vestan Blómagarðinn, svo hægt sé að banna sleðaferðir barna eftir nefndum götum, en börnunum jafnframt bent á vissan stað, þar sem þeim er leyfilegt að leika sér. 2. Vegna þess hve skiftistöð sú, sem reist hefur verið á gatnamót- um Seljalandsvegar og Hlíðarveg- ar, hindrar útsýn ökumanna, væri æskilegt að hún yrði flutt úr stað eða grafin í jörðu. 3. Telja verður aðkallandi að lagfæra þau blindu gatnamót, víðs- vegar um bæinn, sem skapast af því að skúrar og hús standa út í göturnar. 4. Leggja verður áherzlu á aukna gatnagerð og endurbætur á lielztu umferðargötum bæjarins, svo sem Hafnarstræti, til þess að umferð geti talist örugg fyrir gangandi fólk og ökumenn. 5. Athugaðir séu nú þegar mögu- leikar á því að ákveða aðalbrautir og einstefnuakstursgötur innan- bæjar, til þess að greiða fyrir um- ferðinni í bænum. 6. Unnið verði áfrain að Hlíðar- vegi út á Hnífsdalsveg og afleggj- arinn frá húsi Sigurðar Guðmunds- sonar niður á veginn verði lokaður. 7. Unnið verði að endurskoðun núverandi lögreglusamþykktar bæj- arins, og þau atriði hennar, sem snerta umferðarmálin, samræmd nútíma ökutækjum og umferð. Á nefndum fundi voru fast að hundrað manns mættir, og voru tillögur þessar samþykktar í einu hljóði. Fundarályktun þessi hefur verið send bæjarráði og bæjarstjórn, er tekið hafa málið til rækilegrar at- hugunar. Samþykkti bæjarstjórn á fundi sínum 5. þ. m. að vinna að framkvæmd ofanritaðra tillagna annað livort nú þegar eða síðar, eftir því sem aðstæður og efni standa til. BÓKASAFNIÐ verðui’ opið til útlána kl. 6—7 í kvöld en ekki kl. 8—9.

x

Baldur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.